Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Síða 42
STJÖRNUSPÁ
Tvíburinn er loftmerki og þarf á fjölbreytni að halda til að viðhalda lífsorku sinni.
Hann þarf einnig á pælingum og samræðum að halda. Tvíburanum líður best þegar
mikið er um að vera og mörg verkefni sem þarf að sinna á sama tíma. Tvíburinn er
félagslyndur, forvitinn og fróðleiksfús. Hann er málgefinn og finnst gaman að segja frá.
HRÚTUR 21. mars–19. apríl
Forsjónin er allt í kringum hrútinn.
Frjósemi, sköpun, virkni ríkir. Vernd
er yfir ávinningi. Eldmóður, áræði,
elja, skilar hrútnum lausnum. Það er
ómissandi að kafa djúpt, en stundum
þarf að koma upp og sýna og segja frá
afrakstrinum. Nýtt upphaf er í farvatn-
inu. Breytingar í viðskiptum.
NAUT 20. apríl–20. maí
Hvatning frá vinum er sterk hjá
nautinu. Góðar fréttir berast og miklar
breytingar eru í fjármálum. Vinnan
kemur sterk inn og tengist viðskiptum.
Náttúruöflin vinna vel. Velvild, vinátta
og velgengni er heilun.
TVÍBURAR 21. maí–20. júní
Nýjar leiðir skjóta upp kollinum.
Viðskipti sem tengjast vinnu. Góður
félagsskapur. Stjórnkænska. Vinir eru
mikilvægir en passa vel sitt. Fortíðin
lætur á sér kræla. Skemmtilegur tími er
framundan. Vinátta, heilindi er heilun.
KRABBI 21. júní–22. júlí
Áhyggjur eru hluti af daglegu lífi en
þetta snýst um hvernig við leysum þær.
Vinna þarf í lausnum. Markmið nást.
Allur mótbyr eflir. Það þarf að passa vel
upp á fjármálin. Togstreitu þarf að eyða.
Nýir samningar eða nýtt samstarf hefst.
Erfiðið undanfarið skilar árangri. Öll
kerfi veita aðhald og það þarf að læra að
vinna sig í gegnum þau. Íhugun, slökun
er heilun.
LJÓN 23. júlí–22. ágúst
Nýtt áhrifaríkt samband kemur til
sögunnar. Heimilið kemur sterkt inn.
Velvild, vinátta, kærleikur. Erfið verkefni
leysast á viðskiptasviðinu. Skref eru
tekin fram á við í vinnu og heima fyrir.
Kaup og sala ríkir. Góð ráðgjöf er gulls
ígildi. Ljónið er tilbúið til að ná árangri.
Viðurkenning eftir mikla vinnutörn.
Góðar fréttir frá útlöndum. Ljónið er
eins og „klettur í hafi.“ Eldlegur vilji er
heilun.
MEYJA 23. ágúst–22. sept.
Þolinmæði kemur sterkt inn hjá meyju.
Erfið verkefni. Áhætta og spenna er góð
í hófi. Forvitni. Óvæntir hlutir banka
upp á í viðskiptum. Undir er uppfyllt
ósk. Fjárhagur verður traustur. Græðgi
er löstur. Nýtt upphaf er í kringum
meyju. Kærleikur, velvild, vinátta. Ást
er heilun.
VOG 23. sept.–22. okt.
Gleði og skemmtilegheit eru í kringum
vogina. Þó að erfiðleikar séu fyrir
hendi þá eru góðar fréttir af fjármálum
að koma inn. Nýtt samstarf eða nýir
samningar eru framundan og eins og
nýir bílar eða ferðalög séu í farvatninu.
Leiðsöguferli. Dýr eru afar verðmæt
voginni og eru heilun.
SPORÐDREKI 23. okt.–21. nóv.
Mikið er að gerast í vinnu. Umfang er
mikið. Gott að vera með keppnisskap-
ið. Erfiðið skilar árangri. Bardagavilji
ríkir en einnig umhyggja fyrir dýrum.
Tilfinningaríkir drekar eru á réttri leið.
Gæta þarf vel að sínu og sínum og sýna
þolinmæði. Stjórnkænska er heilun.
BOGMAÐUR 22. nóv.–21. des.
Öll leit er af hinu góða. Ráðgjöf er lykill.
Tónlistin leikur stórt hlutverk í kringum
bogmanninn. Nýtt upphaf er í viðskipt-
um og tengist það vinum. Hið óráðna
er alltaf spennandi. Sköpun, frjósemi,
miklir möguleikar. Tónlist er heilun.
STEINGEIT 22. des.–19. jan.
Steingeitin hefur hæfileikafestu og býr
yfir skörungsskap og dugnaði. Lipurð
þarf að vera með steingeit. Forsjónin er
sterk. Treysta innsæi sínu. Steingeitin
þarf að draga úr streitu. Fjölbreytileiki
er mikill bæði í fjármálum og við-
skiptum. Samvinna er lykill. Óvæntar
uppákomur. Góðar fréttir eru heilun.
VATNSBERI 20. jan.–18. feb.
Forsjónin er allt um kring. Eitt tekur
enda og nýtt tekur við. Tengist viðskipt-
um og fjármálum. Gleði og ánægja ríkir
hjá vatnsbera. Sköpun, frjósemi, miklir
möguleikar eru í stöðunni. Heillatala er
ríkjandi. Keppnisskapið er á fullu. Bar-
dagaíþróttir. Grípa gæsina meðan hún
gefst. Góð og traust vinátta er heilun.
FISKAR 19. feb.–20. mars
Þolinmæði er lykill. Gleði og ánægja er
allt um kring hjá fiskum. Nýtt upphaf
og mikill kærleikur því fylgjandi. Óskir
verða uppfylltar og það mun rætast úr
öllum erfiðleikum. Samvinnu er best
lýst með því, að miða við lúðrasveit.
Samningar eru í höfn. Velvild, elska og
vinátta er heilun.
18. júní–1. júlí