Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Page 50

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Page 50
26 fólk - viðtal Helgarblað 16. júní 2017 auðvitað skrítið en á sama tíma svo eðlilegt. Ég var orðin ástfangin af stelpu. Ég vil taka það skýrt fram að ég skammaðist mín ekkert. Ég hafði einfaldlega aldrei séð mig fyrir mér í þessum sporum. Ég hafði verið hrifin af þeim strákum sem ég hafði verið í sambandi með. Það tók smá tíma að átta sig á þessu.“ Guðbjörg og Mia földu sam- bandið fyrir öðrum fyrstu mánuðina eftir að þær byrjuðu saman. „Við vorum að átta okkur á öllum þessum tilfinningum og vildum ekki segja neitt fyrr en við værum 100 prósent vissar um þetta. Það kom aldrei til greina að fela neitt. Við vor- um einfaldlega óvissar í byrjun hvað í ósköpunum var í gangi.“ Þegar komið var að því að opinbera sam- bandið viðurkennir Guðbjörg að hún hafi verið mjög stressuð. Fyrsta manneskjan sem hún sagði frá sam- bandinu var Dóra María, æskuvin- kona hennar og samherji í íslenska landsliðinu. „Hún þekkti alla kærastana mína í Verzló og vissi allt um mig. Þess vegna var ég alveg að tryllast úr stressi þegar ég loksins kom þessu frá mér. Ég sagði Dóru að ég væri hrifin af stelpu og ég vissi ekkert hvað ég ætti að gera. Auðvitað var hún sultuslök yfir þessu og hló að mér.“ Neyðarlegt símtal Guðbjörg á gott samband við for- eldra sína og systkini. Þó svo að þau búi ekki í sama landinu hefur hún vanið sig á að tala við foreldra sína á Facetime á hverju kvöldi. „Ég var klárlega ekki að fara að segja þeim þetta í svoleiðis spjalli svo ég hringdi þegar ég vissi að mamma væri ein heima. Símtalið, sem tók í mesta lagi 30 til 40 sekúndur, er það skrítnasta sem ég hef hringt,“ segir Guðbjörg hlæjandi og biður blaða- mann um að taka tillit til þess, þegar hún segir frá „hrikalegasta símtali sem hún hefur hringt.“ „Ég sagði einfaldlega: „Hæ mamma. Þú veist, Mia, sem ég er alltaf með. Við erum ekki bara vin- konur. Við erum saman og ég er mjög hrifin af henni.“ „Svo lauk ég samtalinu með því að segja, og ég veit enn þann dag í dag ekkert hvaðan það kom: „Það er ekki eins og þú fáir ekki barna- börn. Sénsinn er tvöfaldur núna.“ Svo sagði ég bara bless.“ Um kvöldið hringdi móðir Guð- bjargar í hana og sagði að það skipti hana engu máli hvort hún væri í sambandi með stelpu eða strák. Það eina sem skipti máli væri að hún væri hamingjusöm. „Auðvitað vissi ég að mamma myndi bregðast vel við þessu, hún er svo frábær. En að sama skapi skil ég ekki hvernig mér tókst troða barnabörnum inn í samtalið á þess- um tímapunkti. Þetta var algjör skelfing.“ Nú eru liðin rúm sex ár síðan Guðbjörg og Mia opinberuðu sam- band sitt. Miðað við hvernig Guð- björg ljómar þegar hún talar um kærustuna sína er augljóst að þær hafa fundið sálufélaga í hvor annarri. Fyrstu tvö árin í sam- bandinu spiluðu þær báðar fyrir Djurgården í Stokkhólmi. En þar sem þær eru báðar atvinnumenn, og þurfa þar af leiðandi að elta sín tækifæri, voru þær næstu tvö ár á eftir í fjarbúð. Guðbjörg segir það hafa tekið mikið á. „Við söknuðum hvor annarrar svo mikið að þegar Djurgården bauð okkur að koma aftur í liðið gerðum við það. Við vor- um líka búnar að kaupa okkur íbúð í Stokkhólmi sem við höfðum aldrei búið í. Þess vegna hentaði þetta full- komlega.“ Langar í fjölskyldu Í dag eru Guðbjörg og Mia búnar að koma sér upp framtíðarheim- ili á besta stað í Stokkhólmi. Guð- björg segir það einnig henta þeim vel að vinna saman. „Það sér enginn að við séum par. Eini munurinn er að við förum heim saman. Við komum ekki einu sinni alltaf á æf- ingar saman. Ég get alveg öskrað á hana á æfingum og hún á mig. En svo förum við heim og gerum okkar hluti þar. Við höldum þessu mjög aðskildu.“ Guðbjörg, sem er 32 ára, er sömuleiðis farin að huga að fram- tíðinni og hvað hana langi að gera eftir að ferlinum lýkur. „Ég fékk smá kvíðakast þegar ég varð þrítug og áttaði mig á því að ég hafði aldrei unnið neitt. Ég er auðvitað með hag- fræðigráðu og fór því og fékk mér vinnu. Þetta er reyndar bara hluta- starf en ég er komin með smá sýn á hvernig lífið verður eftir fótboltann. Ég er því orðin aðeins rólegri núna.“ Hún segir það heldur ekkert leyndarmál að þær Miu langi til að eignast barn. „Það er samt svo erfitt að skipuleggja barneignir þegar maður er í atvinnumennsku. Ég er ekkert að stressa mig, en mig langar að eignast fjölskyldu. Á meðan það er svona mikið að gerast í fótboltan- um þá er það samt í biðstöðu.“ Þó svo að stærstur hluti ársins hjá Guðbjörgu fari í að æfa og spila fótbolta þá hefur hún mikinn áhuga á matargerð og ferðalögum. „Við fáum ekki frí á sumrin en tökum í staðinn frí í desember. Þá förum við eitthvert langt út í heim og slökum vel á. Í fyrra fórum við til Kambódíu og árið á undan til Mexíkó. Á þessu ári langar okkur til Jamaíku, Balí eða Máritíus. Það er svo stórkostlegt að uppgötva nýja staði og fá aðra sýn á heiminn.“ Guðbjörg heldur úti Instagram -síðunni lanslidsrettirguggu. Þar setur hún mjög reglulega inn girni- legar uppskriftir þar sem hollustan er í fyrirrúmi. „Það sem skiptir mestu máli þegar maður er kom- inn svona langt í atvinnumennsku, og hvað þá þegar maður er orðinn 32 ára, er að halda líkamanum í samkeppnishæfu standi. Ég hugsa rosalega vel um sjálfa mig. Bæði hvað varðar mataræði, hvíld og svefn. Auðvitað vona ég að ég geti spilað, á þessu stigi, sem lengst, en að sama skapi er ég gríðarlega sátt og stolt af því sem ég hef afrekað.“ n „Ég veit alveg hvenær ég á skil- ið að fá skítkast yfir mig. Það fylgir því að vera atvinnumaður en á sama tíma tekur það á taugarnar að kíkja á Twitter eftir tapleik. Við Angkor Wat í Siem Reap Kærustuparið fór til Kambódíu í fyrra. Hefur spilað 51 landsleik með A-landsliðinu Guðbjörg hefur unnið ótal titla með félagsliðum sínum í gegnum tíðina. Þá hefur hún verið fyrirliði hjá Djurgården og Avaldsnes, en það er liðið sem hún spilaði með í Noregi. MyNd SigtRygguR ARi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.