Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Qupperneq 51
Helgarblað 16. júní 2017 KYNNING
Hlíðarsmára 6, 201 Kópavogi – Sími 564 6464 – fasthof.is
að farsælum
viðskiptum
Guðmundur Hoffmann
Steinþórsson
Löggiltur fasteignasali
Jón Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali
Elsa Alexandersdóttir
Aðstoðarmaður fasteignasala
Evert Guðmundsson
Aðstoðarmaður fasteignasala
Við vorum að flytja okkur hérna í hinn endann í Mjóddinni, í göngugötunni.
Þetta er margfalt stærra pláss
enda var hitt húsnæðið sprungið
utan af okkur,“ segir Grétar Karls-
son, eigandi verslunarinnar Módjó,
en þar er gífurlegt úrval af alls
konar töskum og veskjum.
„Við erum í rauninni bara með
allt sem heitir taska eða veski. Við
reynum að ná yfir þetta allt; skóla-
töskur, ferðatöskur, dömuveski,
seðlaveski og hvað eina. Við seljum
líka mikið af þessum svokölluðu
mittisveskjum sem fólk notar á
ferðalögum til að forðast
þjófnað. Okkar megin-
einkenni er fjölbreytnin,
bæði í töskugerðum en
líka í verði. Hér er hægt
að fá mjög ódýrar vörur
en líka vandaðar leður-
vörur í dýrari kantinum.
Langmesta salan er hins
vegar í leðurvörum á
meðalverði.“
Af öllu því mikla úrvali
sem í boði er selur Módjó
mest af ferðatöskum, að
sögn Grétars: „Lang-
mesta salan undanfarið
hefur verið í þessum
svokölluðu „Wow air“-
töskum. Wow air setti nýjar reglur
um stærð handfarangurstaska, en
það er stærð sem ferðatöskufram-
leiðendur eru almennt ekki að
framleiða. Hins vegar þarf að
borga undir handfarangurstösk-
una í þeirri stærð
sem við þekkjum
hana. Við höfum hins
vegar töskur í þess-
um nýju stærðum
en þetta eru töskur
sem við flytjum inn frá
Hollandi.“
Allar ferðatöskur sem eru til
sölu í Módjó eru á fjórum hjólum
og mikil áhersla er lögð á léttar
töskur þannig að þunginn liggi
að mestu í farangrinum sjálfum.
Ferðatöskurnar eru í alls konar
litum, rauðum, bláum, svörtum,
appelsínugulum og ótal mörgum
öðrum. Enn fremur selur Módjó
strekkibönd, vigt-
ar og merkispjöld,
en þetta eru allt
hlutir sem koma sér
vel fyrir ferðalanginn.
Það er upplifun að koma í versl-
unina í Mjóddinni og sjá allt úrvalið
af alls konar töskum og veskjum. En
einnig má benda á heimasíðuna
modjo.is og Módjó á Facebook.
Verslunin er opin alla virka daga
frá kl. 10 til 18 og laugardaga frá
11 til 16.
Módjó FLutt í HINN ENdA MjóddArINNAr
Magnað úrval af töskum og
veskjum á nýjum og stærri stað