Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Side 52

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Side 52
28 sakamál Helgarblað 16. júní 2017 n Kokkur gekk berserksgang n Varð fjórum að fjörtjóni Morð í Maine C hristian Nielsen, rúmlega þrí- tugur atvinnulaus kokkur, hafði daðrað við þá hugmynd að bera fyrir sig geðveiki þegar réttað yrði yfir honum í október 2007. Einhverra hluta kastaði hann þeirri hugmynd fyrir róða einum degi áður en velja átti í kviðdóm vegna málsins, sem rekja mátti til at- burða sem átt höfðu sér stað rúm- lega ári fyrr í Newry, skíðasvæði í Maine í Bandaríkjunum. Fyrsta dag septembermánaðar 2006 hafði morðæði gripið Nielsen og stóð það í fjóra daga. Þann 1. sept- ember skaut Nielsen fimmtugan karlmann, James Whitehurst frá Batesville í Arkansas, til bana. Fátt um skýringar Síðar gat Christian Nielsen litlar skýringar gefið á morðinu aðrar en þær að James Whitehurst, sem var alltmúligmaður og bjó á Black Bear – Bed and Breakfast líkt og Nielsen, hefði verið fráhrindandi. Eftir að Nielsen myrti Whitehurst sundur- limaði hann líkið og brenndi síðan inni í skógi. En ekki voru öll kurl komin til grafar því á næstu þremur dög- um sendi Nielsen þrjár konur yfir móðuna miklu. Hann myrti Julie Bullard, 65 ára eiganda gistiheimil- isins, þrítuga dóttur hennar, Selby Bullard, og vinkonu Selby, Cindy Beatson, 43 ára. Þetta gerði Nielsen til þess að morðið á Whitehurst upp- götvaðist ekki. Keðjusög og fleiri verkfæri Lík kvennanna fengu svipaða út- reið og lík Whitehurst því Nielsen sundurlimaði þau og notaði til verksins keðjusög, járnsög og ísöxi. En Adam var ekki lengi í Paradís því að kvöldi verkalýðsdagsins, sem bar upp á 4. september, fyrsta mánu- dag þess mánaðar, uppgötvuðust ódæði Nielsen. Nielsen ákvað nefnilega að slá á þráðinn til föður síns og sagði honum að hann sæi um rekstur Black Bear-gistiheimilisins í fjar- veru Julie Bullard. Það fannst föður Nielsen ærið tilefni til að líta við hjá drengnum sínum, sem hann síðan gerði ásamt konu sinni. Skömmu eftir að þau komu á gistiheimilið hringdu þau á lög- regluna og segir ekki meira af þeim. Nokkrar greiningar Skammbyssa Nielsen fannst á gisti- heimilinu og hann játaði á sig morðin. Þegar sakhæfi Nielsen var síðar metið vottuðu nokkrir sál- fræðingar að hann glímdi við geð- klofa og jafnvel fleiri andleg mein, þar á meðal Asperger's-heilkenni. Við þessi tíðindi reyndu verjendur Nielsen árangurslaust að fá ógilta játningu Nielsen og hann úrskurð- aðan ósakhæfan. En sem fyrr segir aftók Nielsen á síðustu stundu að leggja í þá vegferð. Þann 18. október fékk Christian Nielsen lífstíðardóm fyrir fjögur morð. „Mig langar að segja að ég iðr- ast mjög gjörða minna,“ sagði hann við það tækifæri. n „Mig langar að segja að ég iðrast mjög gjörða minna Kokkurinn Christian Nielsen varð fjórum að fjörtjóni. Vinkonan Cindy Beatson hlaut sömu örlög og Julie og Selby. Fyrsta fórnarlambið Nielsen fannst James Whitehurst „fráhrindandi“. Dóttirin Selby Bullard var dóttir Julie. Julie Bullard Varð að deyja, að mati Nielsen.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.