Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Blaðsíða 56
32 Helgarblað 16. júní 2017fréttir
fyrir 10 árum
n Ferðamönnum fjölgaði n Fermetraverð í hæstu hæðum n Hinu opinbera sagt að gefa gott fordæmi
E
ftir því var tekið að ferða-
mönnum á leið um Flugstöð
Leifs Eiríkssonar fjölgaði
fimm fyrstu mánuði ársins
2007 miðað við fyrra ár, voru
122.000 talsins og hafði fjölgað sem
nemur 43 prósentum frá árinu 2003
og þótti gott. Fyrstu fjóra mánuði
2017 fóru 605.000 ferðamenn í
gegnum flugstöðina og ljóst að töl-
ur ársins 2007 blikna í samanburði.
Hafnarfjarðarbær var bendl-
aður við hryðjuverk í kjölfar fram-
kvæmda á vegum bæjarins. Ósáttur
íbúi taldi hús sitt gjörsamlega ónýtt
vegna framkvæmdanna og sagðist
ætla að „flýja þennan hryðjuverka-
bæ við fyrsta tækifæri.“
Fermetraverð á höfuðborgar-
svæðinu og víðar er nú í hæstu hæð-
um og hefur vart verið hærra „eins
lengi og elstu menn muna“ eins
og stundum er sagt. Hátt húsnæð-
isverð er engin nýlunda og fyrir tíu
árum var fermetraverð í einni íbúð
í Skuggahverfinu 735.000 krónur
og sagði markaðsstjóri 101 Skugga-
hverfis ekkert óeðlilegt við það.
Eilíft umræðuefni er laun í op-
inbera geiranum og sá Alþjóða
gjaldeyris sjóðurinn ástæðu til að
hvetja ríkisstjórn Íslands til að sýna
sterka forystu í kjaraviðræðum og
stilla launahækkunum opinberra
starfsmanna í hóf. Einhverjum
kann að finnast sem þær ríkis-
stjórnir sem hér hafa síðan setið við
völd hafi hugsanlega skilið orðin
„sterka forystu“ á þann veg að emb-
ættismenn ættu að standa almenn-
um launþegum framar hvað launa-
kjör áhrærir. n
varðar rekstur og tilfærslur ríkissjóðs
eru laun og aðrir þættir sem ráðast
af kjarasamningum og það segir sig
sjálft að ef það á að vera aðhald í rík-
isfjármálum, þá þarf það að koma
fram þar á einhvern hátt.“
Árni telur jafnframt að laun op-
inberra starfsmanna þurfi að vera í
takt við það sem gerist annars staðar
í þjóðfélaginu og aðhald á almenna
markaðinum sé því ekki síður nauð-
synlegt en hjá hinu opinbera.
Sem olía á eld
Hart var deilt á launahækkun
seðlabankastjóra á Alþingi í gær og
krafðist Kristinn H. Gunnarsson þing-
maður Frjálslynda flokksins, skýringa
á því hvað mönnum gengi til með
slíkri hækkun. Helgi Hjörvar þing-
maður Samfylkingarinnar tók und-
ir gagnrýnina og sagði þessar hækk-
anir vera sem olíu á eld í viðkvæmu
ástandi. Þá sagði Lúðvík Bergvinsson
hækkanirnar vera óhóflegar og senda
fráleit skilaboð út í samfélagið.
Árni Mathiesen kvaðst í samtali
við DV ekki hafa sérstaka skoðun á
hækkuninni. „Seðlabankinn er sjálf-
stæður og hluti af sjálfstæði hans er
að ákveða laun sinna starfsmanna og
ég hef ekkert með það að gera.“
miðvikudagur 13. júní 20074
Fréttir DV
Ætlar að kæra
úrskurð
Farbann Viggós Þóris Þóris-
sonar, fyrrverandi framkvæmda-
stjóra verðbréfasjóðs Spari-
sjóðanna, var framlengt um tvo
mánuði í gær. Sagðist Viggó ætla
að kæra úrskurðinn til Hæsta-
réttar.
Hjá efnahagsbrotadeild Ríkis-
lögreglustjóra fengust þær upp-
lýsingar að verið væri að skoða
tengsl málsins við önnur lönd og
að það væri sérlega þungt í vöfum
að þurfa að leita yfir landamæri
til að fá upplýsingar. Viggó var
vikið fyrirvaralaust úr starfi í apríl
vegna meintra bókhaldssvika.
Enn í haldi vegna
skotárásar
Mál karlmanns sem skaut af
haglabyssu að eiginkonu sinni í
Hnífsdal á föstudagskvöld er enn
í rannsókn. Maðurinn var úr-
skurðaður í gæsluvarðhald fram
á föstudag.
Vopnuð sérsveit var kölluð
út eftir að tilkynning barst um
byssumanninn og ríkti umsátur-
sástand um hús hans í nokkrar
klukkustundir. Eiginkonan hlaut
minniháttar áverka í andliti eftir
að hann hleypti af skoti.
Viðbúið er að þegar lögreglan
hefur lokið rannsókn verði málið
sent til saksóknara.
Einkavæða ekki
Íbúðalánasjóður verður
hvorki einkavæddur né lagður
niður í nánustu framtíð, segir
Árni Mathiesen fjármálaráð-
herra.
Framtíð sjóðsins er hins vegar
í skoðun. Að mati
sendinefndar Al-
þjóða gjaldeyr-
issjóðsins, sem
kynnti skýrslu
sína í vikunni eru
vextir hér á landi
of háir og það
skrifast að hluta
til á Íbúðalána-
sjóð. Nefndin
hvatti til að sjóðurinn verði lagð-
ur niður í núverandi mynd.
Árásarmaðurinn
er enn ófundinn
Árásarmaður sem reyndi að
nauðga konu við Þjóðleikhús-
ið aðfaranótt laugardags er enn
ófundinn. Engin vitni hafa gefið
sig fram.
Rannsókn er í fullum gangi og
lýsir lögregla eftir árásarmann-
inum. Hann er talinn vera um
þrítugt, 185 til 190 sentímetrar
á hæð, grannvaxinn, með stutt
mjög dökkt hár og svarta skegg-
brodda eða svart skegg.
Þeir sem hafa upplýsingar um
árásina eru beðnir að hafa sam-
band við lögreglu í síma 444 1000
eða 444 1100.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn segir að halda þurfi aftur af hækkun launa hj
á hinu opin-
bera. Seðlabankinn kynnti ráðleggingarnar viku eftir að laun seðlabankas
tjóra hækk-
uðu um tvö hundruð þúsund krónur. Ekki sömu lögmál fyrir almenna laun
þega og
seðlabankastjóra segir Halldóra Friðjónsdóttir, formaður Bandalags háskólamanna.
Ný ríkisstjórn þarf að sýna sterka
forystu í kjaraviðræðum á kjör-
tímabilinu og halda aftur af hækk-
un launa hjá hinu opinbera. Þetta
kemur fram í nýrri úttekt sendi-
nefndar Alþjóða gjaldeyrissjóðsins
á hagkerfi Íslands. Þetta þarf ríkis-
stjórnin að gera þrátt fyrir skort á
vinnuafli. Seðlabankinn kynnti út-
tekt sendinefndarinnar viku eft-
ir að bankaráð Seðlabanka Íslands
samþykkti umdeilda launahækkun
til handa seðlabankastjóra um tvö
hundruð þúsund krónur. Þar var sú
skýring meðal annars gefin að mikil
samkeppni væri um hæfustu starfs-
menn í fjármálageiranum.
Þarf að ná til allra stétta
Halldóra Friðjónsdóttir formað-
ur Bandalags háskólamanna seg-
ir skýrslu sendinefndarinnar vera
nokkur vonbrigði. Ennþá séu laun hjá
hinu opinbera og á almennum mark-
aði ekki sambærileg. „Það er ekki hjá
hinum almenna launamanni sem
mestar hækkanir hafa orðið á síðasta
samningstímabili. Við þurfum ekki
nema að horfa til síðustu hækkanna
hjá Seðlabankanum.“ Hún undrast
jafnramt rökfærslur fyrir hækkuninni
um að samkeppnin um starfsmenn
sé hörð. „Það virðast ekki gilda sömu
lögmál þegar kemur að heilbrigðis-
og umönnunarstéttum. Framboð og
eftirspurn virðast ekki hafa nein áhrif
þar. Launahækkun seðlabankastjóra
er jafn há því sem nemur mánaðar-
launum hjá starfsfólki í umönnunar-
og hjúkrunarstéttum.“
Aðhald á almenna markaðnum
Árni Mathiesen fjármálaráðherra
segist ánægður með niðurstöðu Al-
þjóða gjaldeyrissjóðsins um íslenskt
efnahagslíf. Skýrslan sé jákvæð, bæði
hvað varðar stöðu efnahagsmálanna í
heild sem og ríkisfjármálastjórnina.
Árni var hins vegar varkár í tali
eftir ríkisstjórnarfund í gærmorgun
um kröfur sendinefndarinnar um að
halda þurfi aftur af launahækkunum
opinberra starfsmanna í kjarasamn-
ingum. „Tveir þriðju hlutar þess hvað
VAlgeir Örn rAgnArSSon
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
FrÁlEit skilaboð
út í samFélagið
„laun opinberra starfsmanna
þurfa að vera í takt við það
sem gerist annars staðar
í þjóðfélaginu.“
Seðlabanki
Íslands
Launahækkun
seðlabankastjóra
nemur mánaðar-
launum starfs-
manna í umönnun-
arstéttum.
Óvirk eftirspurn „Það virðast ekki gilda
sömu lögmál þegar kemur að heilbrigð-
is- og umönnunarstéttum. Framboð og
eftirspurn virðast ekki hafa nein áhrif
þar,“ segir Halldóra Friðjónsdóttir,
formaður Bandalags háskólamanna.
Sjálfstæður Seðlabanki „Seðlabank-
inn er sjálfstæður og hluti af sjálfstæði
hans er að ákveða laun sinna starfsmana
og ég hef ekkert með það að gera,“ segir
fjármálaráðherra.
Tilraunaverkefni Reykjavíkurborgar um nágrannavörslu gefur góða raun:
Fleiri vilja vera með
„Verkefnið hjá okkur hefur gefið
mjög góða raun og því þótti okkur
alveg sjálfsagt að bera út þennan já-
kvæða boðskap. Þegar sveitarfélög-
in byrjuðu að setja sig í samband við
okkur ákváðum við að best væri að
afhenda Sambandi íslenskra sveit-
arfélaga merkið. Þaðan er hægt að
dreifa boðskapnum um allt land,”
segir Anna G. Ólafsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi á skrifstofu borgarstjóra.
Í gær afhenti Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson borgarstjóri fram-
kvæmdastjóra Sambands íslenskra
sveitarfélaga, Þórði Skúlasyni, merki
tilraunaverkefnis borgarinnar í ná-
grannavörslu. Fyrir vikið fá öll sveit-
arfélög í landinu afnot af verkefni og
geta hafið tilraunir innan sinna bæj-
armarka.
Í samvinnu við hverfamiðstöðv-
ar borgarinnar var ákveðið að hleypa
verkefninu af stokkunum í ákveðn-
um götum í tilraunaskyni. Þær götur
eru; Blesugróf, Brekkustígur, Dverg-
hamrar, Freyjugata, Malarás, Ritu-
hólar, Starrahólar og Trönuhólar.
Íbúar þeirra fengu fræðslu um inn-
brotavarnir og bundust óformlegu
samkomulagi um að líta eftir húsum
og eignum nágranna sinna í götunni
í tímabundnum fjarvistum. Lág-
marks nágrannavarsla felur í sér að
íbúi taki að sér að skrá grunsamlega
hegðun, bifreiðanúmer og lýsingu á
fólki og tilkynni til lögreglu með því
að hringja í símanúmerið 112.
Aðspurð á Anna von á því að verk-
efnið Nágrannavarsla verði stækkað
út hjá Reykjavíkurborg og vonandi
víðar um land. Hún ítrekar mikil-
vægi þess að ekki er ætlast til þess að
þátttakendur taki að sér löggæslu-
hlutverk með því að grípa inn í at-
burðarrás innbrota. „Góður granni
er áhrifaríkasta afbrotavörnin. Við
erum sérlega ánægð með hvernig til
hefur tekist. Bæði hefur þetta aukið
öryggi í þeim götum sem þetta hef-
ur verið prófað í ásamt því að þjappa
íbúum gatnanna saman. Þannig eru
möguleikar á áframhaldandi sam-
stöðu íbúanna í framtíðinni,” segir
Anna. trausti@dv.is
Allir saman nú í samstarfi við lögregluembætti landsins stefna sveitarfélög á
útbreiðslu nágrannavörslu.
fimmtudagur 14. júní 20074
Fréttir DV
Siglinganemar
strönduðu
Björgunarsveit Ársæls var
kölluð út þegar lítil seglskúta
strandaði rétt utan við Löngusker
í fyrrakvöld. Um borð voru fimm
manns, nemar í siglingum auk
skipstjóra, og sakaði þá ekki.
Skútan náðist fljótlega á
flot og var hún lítið sem ekkert
skemmd. Björgunarbáturinn
Gróa Pétursdóttir fór á staðinn
auk lögreglubáts en fólkið hafði
sjálft óskað eftir aðstoð. Eftir
strandið va skútan dregin að
ö n í Kópavogi.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Á þriðja þúsund
nýnemar
Nær fimmtungi fleiri sóttu um
að komast í grunnnám í Háskóla
Íslands nú en í fyrra. Ef tekið
er tillit til þeirra stúdenta sem
þreyta inntökupróf í greinum
heilbrigðisvísinda og umsókna
erlendra stúdenta í grunnnám
má ætla að hátt á þriðja þúsund
nýnema hefji nám við Háskólann
næsta haust.
Innan einstakra námsleiða
raunvísindadeildar má nefna að
rúmlega fjórðungi fleiri sækja
um líffræðinám og í hátæknieðl-
isfræði hafa fimm stúdentar sótt
um skólavist en það er 150 pró-
sent aukning.
Bíll brann
á Hellisheiði
Bíll brann til kaldra kola á
Hellisheiðinni við Litlu Kaffistof-
una í ærmorgun og var Suður-
landsvegi lokað í um 20 mín-
útur á meðan slökkvistarf stóð
yfir. Hvorki ökumann né f þega
sakaði.
Ökumaður stöðvaði bílinn
þegar rjúka fór úr vélinni og kom
í ljós að bensín lak á götuna.
Skömmu síðar kviknaði í bílnum
og er hann gjörónýtur. Ei nig
kviknaði í bensíninu og þurfti að
nota froðu til að slökkva eldinn.
Bílhræið var dregið til Hvera-
gerðis.
Flestir nemar
vilja í Verzló
Mikil aðsókn er í nám í
framhaldskólum landsins og
hafa 4.200 af 4.500 nemend-
um 10. bekkjar grunnskóla sótt
um nám í dagskóla á haust-
önn 2007. Það samsvarar því
ð tæp 98 prósen útskrifaðra
grunnskólanema stefni á nám
í framhaldsskóla. Flestar um-
sóknir bárust Verzlunarskóla
Íslands, Menntaskólanum við
Hamrahlíð, Menntaskólanum í
Reykjavík og Kvennaskól num.
Þessir skólar þurfa að vísa frá
rúmlega 400 nemendum sem
höfðu v lið þá sem f rsta kost.
Þeir eiga þó vísa vist í öðrum
skólum þar sem pláss er nægi-
legt í framhaldsskólunum.
Óá ægðu íbúi í Hafnarfi i sár eftir að bæjarframkvæmdir skemmdu hú
sið hans:
Flýr hryðjuv rk bæinn Hafnarfjörð
„Ég svona rétt hef það,“ segir Ægir
Örn Óskarsson, verkamaður og íbúi
við Vesturgötu 26 í Hafnarfirði, að-
spurður um hvernig hann hafi það.
Ægir Örn hefur staðið í deilum við
bæjaryfirvöld í Hafnarfirði vel á annað
ár. Hann vill meina að framkvæmdir
á vegum bæjarins, er sprengt var fyr-
ir lögnum í götunni, hafi valdið það
miklum skemmdum á húsi hans að
það standi gjörsamlega ónýtt eftir.
Fleiri hús urðu fyrir skemmdum vegna
sö u framkvæmda og Ægir Örn undr-
ast hvers vegna nágranni hans hafi
fengið greitt að fullu fyrir sitt hús á
meðan hann fái smánarbæt r. Hann
býr enn í húsinu ásamt eiginkonu
sinni og vonast eftir því að bæjaryfir-
völd sjái sóma sinn í því að bæta sér
s aðann að f llu.
Aðspurður ætlar Ægir Örn ekki
að búa lengur í Hafnarfirði en nauð-
syn krefur. Hann segist hafa þurft að
bjarga persónulegum munum úr hill-
um á meðan framkvæmdirnar stóðu
yfir. „Ég er fæddur og uppalinn hér
og finnst helvíti skítt að það sé traðk-
að svona á mér. Bærinn gjöreyðilagði
einnig hús hjá nágranna mínum og
þeir sáu sóma sinn í því að kaupa hús-
ið af honum. Þeir borguðu mér ein-
hverjar smánarbætur og fyrir aurinn
gæti ég hugsanlega keypt mér í stað-
inn ónýtan gám til að búa í,“ segir Ægir
Örn. „Ég er mjög ósáttur við þetta mál
að öllu leyti og það er bara ekki farið
eftir neinum reglum í Hafnarfirði. Það
þýðir ekk rt að tala við neinn hjá bæn-
um, ég get alveg sleppt því. Ég er bú-
inn að gefast algjörlega upp og ætla að
flýja þenna hryðjuverkabæ við fyrsta
tækifæri.“ trausti@dv.is
Ónýtt hús Ægir Örn segir hús sitt gjörsamlega ónýtt eftir bæjarframkvæmdir í
götunni. Hann er óánægður með smánarbætur sem honum voru greiddar.
rfitt að Hitta
iginmanninn
„Ég er bara orðin það fullorðin að ég
get ekki labbað alla þessa leið niður
að næstu strætóstöð,“ segir Ásgerður
Ólafsdóttir, sem lendir illa í því eft-
ir að strætó hætti að ganga upp að
hjúkrunarheimilinu á Vífilsstöðum.
„Þetta var ekkert mál á meðan strætó
gekk hingað. Þá gat ég tekið strætó
héðan frá Vífilsstöðum, niður að Ás-
garði og ég skipti bara þar og fór það-
an heim, það var mjög auðvelt. Ég
get bara ekki labbað niður eftir, það
er of löng leið,“ segir Ásgerður.
Strætó hefur lengi gengið upp að
hjúkrunarheimilinu að Vífilsstöðum
en hefur nú hætt með ferðir þangað.
Þarf a ónáða ættingja á
vinnutíma
„Maðurinn minn Einar Egilsson
er búinn að vera hér á Vífilsstöð-
um í meira en mánuð. Ég hef alltaf
tekið strætó hingað uppeftir,“ seg-
ir Ásgerður en að sögn starfsfólks-
ins á Vífilsstöðum hefur hún mætt á
slaginu þrjú nánast á hverjum degi
síðan maðurinn hennar kom inn á
hjúkrunarheimilið. Eftir að strætó-
inn hætti að ganga að Vífilsstöðum, á
hún erfitt með að komast til þess að
heimsækja manninn sinn.
„Nú þarf ég að ónáða börnin mín
og barnabörn og trufla þau í vinn-
unni. Auðvitað er það erfitt að taka
þau úr vinnu til þess að keyra mig
hingað uppeftir,“ segir Ásgerður.
Einn sagt upp nú þegar
Sigríður Pálsdóttir, deildarstjóri
á hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum,
segir að þetta komi illa niður á að-
standendum vistmanna á hjúkrun-
arheimilinu og starfsfólkinu. „Það er
alltaf verið að hvetja fólk til þess að
taka strætó og svo leggja þeir nið-
ur ferðir svo fólk kemst ekki til að
hitta ættingja sína og á erfitt með að
komast til og frá vinnu,“ segir Sigríð-
ur Pálsdóttir. Einn starfsmaður hef-
ur nú þegar sagt upp störfum vegna
breytinganna hjá Strætó en sá starfs-
maður sá sér ekki fært að komast til
og frá vinnu með öðrum hætti en að
taka strætó og verður því að hætta.
Kemur illa niður á starfsfólkinu
Júlíana Guðmundsdóttir hef-
ur unnið á Vífilsstöðum í rúmt ár
og hefur hingað til treyst á strætó
til þess að komast úr vinnu. „Ég hef
ekki aðgang að bíl því ð maðurinn
minn fer á honum í vinnuna. Ég fæ
far í vinnuna og hef vanalega tekið
strætó heim,“ segir Júlíana sem býr
úti á Álftanesi og þarf að ferðast alla
leiðina frá Vífilsstöðum og út á Álfta-
nes. Hún þarf nú að ganga út á næstu
strætóstoppistöð, sem er Ásgarður
en Júlíana segist vera allt upp undir
hálftíma að komast þangað. Þá á hún
eftir að taka strætóinn upp á Álfta-
nes.
„Ég skil ekki af hverju þessi ferð
er felld niður, sérstaklega á með-
an sumarstarfsfólkið er við vinnu
hér. Mér hefði fundist eðlilegra að
auka þær yfir sumartímann. Það eru
margir af starfsfólkinu sem nýta sér
strætóferðirnar og sérstaklega inn-
flytjendurnir og skólafólkið sem ekki
á bíl og hefur ekki efni á því að reka
bíl,“ segir Júlíana en þessar breyting-
ar hjá Strætó koma illa við hana.
Óánægð með Strætó
„Mér finnst þetta ekki nógu gott,“
segir Ásgerður sem er ekki ánægð
með strætó og finnst að bæta verði
úr ástandinu.
Vífilsstaðir er hjúkrunarheimili
fyrir 50 aldraða hjúkrunarsjúklinga,
þar eru 80 starfsmenn í heildina og
er starfseminni skipt í tvær deildir.
Reksturinn hófst í byrjun árs 2004
eftir að gerðar höfðu verið gagngerð-
ar breytingar á húsinu sem byggt var
árið 1910. Fyrsta hæðin er rekin sem
ein deild með 14 heimilismönnum,
en önnur og þriðja hæðin eru reknar
sem ein deild með 36 heimilismönn-
um.
Strætó er hættur að ganga út að hjúkrunarheimilinu að Vífilsstöðum og
það gerir að-
standendum vistmanna á hjúkrunarheimilinu erfitt fyrir. Þeir komast ja
fnvel ekki til
þess að hitta aðstandendur sína og hefur einn starfsmaður sagt upp störf
um því hann
kemst ekki lengur í vinnuna:
KriStín hrEfna halldÓrSdÓttir
blaðamaður skrifar: kristinhrefna@dv.is
Ásgerður Ólafsdóttir Eiginmaður
Ásgerðar er vistmaður á Vífilsstöðum og
hún á erfitt með að fara og hitta hann
eftir að strætó hætti að ganga að
Vífilsstöðum.
Júlíana Guðmundsdóttir
Það getur tekið júlíönu allt upp
í hálftíma að ganga að næstu
strætóstoppistöð og þá á hún
eftir að ferðast út á Álftanes,
með strætó, til þess að komast
heim úr vinnu sinni.
„Ég er mjög andsnúinn þessari að-
ferð og finnst hún að minnsta kosti
ósmekkleg,“ segir Hjálmar Jónsson
dó kirkjuprestur um bréf sem Ei-
ríkur Sigurbjörnsson, sjónvarpsstjóri
Omega, sendir fólki en í því er fólk beð-
ið um peningastyrk gegn því að fá óskir
sínar uppfylltar af Guði.
Bréfið hefst á því að Eiríkur segist
hafa góðar fréttir ð færa viðtakand-
anum: nýjan þátt á sjónvarpsstöðinni
sem stjórnað er af erlendum predik-
ara og forstöðumanni stærstu kirkju
í heimi sem sáð hefur fimm hundr-
uð kirkjum eins og segir í bréfinu. „Ég
trúi því að Guð muni gefa þér trú til að
kalla eftir því sem er þitt; að sjá banka-
innistæðuna vaxa úr nokkrum hundr-
uðum eða nokkrum þúsundum upp í
nokkrar milljónir,“ segir meðal annars
í bréfinu.
Þarf að vera fús til að meðtaka
Eiríkur Sigurbjörnsson, sjónvarps-
stjóri Omega, segist vita að viðtakand-
inn vi ji blessunina inn í líf sitt og þa sé
ýmislegt sem hann hafi þráð en aldrei
orðið að r unveruleika eins og nýtt
hús, nýjan bíl eð betra a svo itt-
hvað sé nefnt. „Þetta eru aðeins nokkr-
ar þeirra blessana sem Guð vill þér til
handa en hann getur ekki veitt þér þær
ef þú ert ekki fús til að sá sáðkorni til að
meðtaka blessunina frá Guði.“
Á síðustu blaðsíðu bréfsins, þar
sem skrá á niður kortanúmer, er hægt
að strika undir níu atriði á tilbúnum
óskalista en ef ekkert þeirra á við er líka
hægt að skrá niður bænarefni sitt. Efst
á blaði er nýtt hús og á eftir kemur nýr
bíll; betra starf; aukið fjármagn; góð
heilsa; sameining fjölskyldu og fleira.
Líta á bænina sem stjórntæki
„Þetta er ákaflega dapurlegt og
sýnir í hnotskurn af hverju við viljum
þjóðkirkju. Þarna eru samtök að selja
einhvern að-
gang að guði og líta á
bænina sem stjórntæki
gegn honum. Þarna er látið líta
út fyrir að þessi samtök séu í sérstakri
aðstöðu til þess að fá Guð til þess að
mismuna fólki,“ segir Hjálmar. Hann
segir að ekki eigi að nota bænina sem
töfraformúlu heldur sé hún til þess
fallin að blanda geði við Guð. „Hvað
ætti annars að segja við fólk sem bið-
ur heitt og innilega fyrir heilsu barna
sinna en missir hana samt, er það af því
það bað ekki nóg?“ spyr Hjálmar. Hann
segir erfiðleika mæta öllum, hvort sem
þeir séu trúaðir eða ekki, og það sé eðli
Krists að ganga inn í aðstæður með
fólki. Mörgum finnist auðveldara að
fást við erfiðleikana með hans fólki.
Sýnir af hverju við viljum
þjóðkirkju
Hjámar segir sem betur fer ekki
mikið um svona fjármagnanir á Íslandi
eða á hinum Norðurlöndunum þar
sem eru þjóðkirkjur sem fjármagnað-
ar eru með öðrum hætti. Hann bend-
ir aftur á móti á að í Bandaríkjunum sé
mikið um redika a og fjármögnun til
trúarstarfs sé þar umfangsmikil. „Það
er eðlilegt að biðj um fjárstyrki eins
o félög gera oft en það er ekki hægt að
lofa neinu á móti út á sambönd sín við
Guð.“
Ekki náðist í Eirík Sigurbjörnsson
við vinnslu fréttarinnar.
MÁNudagur 18. JÚNÍ 20072
Fréttir DV
Nýr dráttarbátur
í Fjarðabyggð
Nýr bátur var tekinn í notkun
og honum gefið nafnið Vöttur,
við hátíðlega athöfn í Fjarða-
byggð í gær. H lga Jónsdóttir
bæjar tjóri gaf nýja dráttarbátn-
um nafn og Séra Davíð Baldurs-
son blessaði hann.
Dráttarbáturinn sem er með
stærri dráttarbátum á landinu er
af Damen gerð, skrokkurinn var
smíðaður í Póllandi en hann var
settur saman í höfuðstöðvum
Damen í Hollandi. Báturinn er
96 tonn með tveimur 1.000 hest-
afla vélum. Vegna komu fleiri og
stærri flutningaskipa til Mjóeyr-
arhafnar meðal a nars í te gsl-
um við álver Alcoa Fjarðaáls var
talið nauðsynleg fyrir Fjarða-
byggðarhafnir að hafa öflu n
drát arbát til umráða.
Kennarar vilja
betri laun
„Samkvæmt tölum frá kjara-
rannsóknarnefnd opinberra
starfsmanna þá er komið fram
launabil á kjörum framhalds-
skólakennara og annarra
meðlima í Bandalagi háskóla-
manna,“ segir Aðalheiður
Steingrímsdóttir, o maður
Félags framhaldsskólakennara.
Samninga efnd félagsins lýsti
því yfir á dögunum að verulegt
átak þurfi til að leiðrétta laun
ken ara í framhaldsskólum.
„Ef við lítum aftur til ársins
2001 þá náðu framhaldsskóla-
kennarar að leiðrétta hlut sin
í samræmi við kjör annarra
félaga í Bandalagi háskóla-
ma na. Árið 2005 náðust svo
nýir samningar en framhalds-
skólaken rar hafa ekki notið
neins launaskriðs miðað við
hefðbundna viðmiðunarhópa í
Bandalagi háskólamanna,“ seg-
ir Aðalheiður.
Löndunarb n
u helgar
Fiskimenn á dagróðrarbát-
um fá ekki að landa óslægðum
fiski um helgar fyrr en í s pt-
ember næstkomandi.
Sjávarútvegs áðuneytið
bannar löndun óslægðs fisks
frá 1. júní og til lok ágúst. Þetta
er gert til að tryggja að gert sé
að aflanum samdægurs, eða
innan tólf klukkustunda frá því
honum er landað. Þett er gert
til að tryggja gæði fisksins.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Ferðamön um
fjölgar
„Aukin áhersla hefur verið
lögð á markaðssetningu á vetrar-
ferðir undanfarið og verður svo
áfram,“ segir Ársæll Harðarson,
forstöðumaður markaðssviðs
Ferðamálastofu.
Ferðamönnum sem fóru um
Leifsstöð fjölgaði um tæp 17 pró-
sent fyrstu fimm mánuði ársins,
sé miðað við
sam tímabil í
fyrra. Í fyrra voru
þeir rúmlega
104 þúsund en
122 þúsund í ár.
Flestir ferða-
menn sem k mu
til Íslands ko u frá Bretlandi og
var fjölguni hlutfallslega mest
meðal þeirra. Alls hefur erlend-
um ferðamö num fjölgað um
rúmlega 43 prósent frá 2003.
ðstoðarlögregl stjóri segir ð bregðast þurfi við ofsaakstri bifhjólamanna og annarra:
Ofsaa stur geti varðað fjögurra ára fangelsi
„Við teljum fullt tilefni til þess að
bregðast við þessu í ljósi þess að til-
fellum glæfr aksturs hefur fjölgað.
Hægt er að ákæra ökumenn sem ger-
ast up vísir að ofsaakstri fyrir brot á
almennum hegingarlögum og getur
það varðað allt að fjögurra ára fang-
elsi,“ segir Jón H.B. Snorrason, að-
stoðarlögreglustjóri á höfuðborgar-
svæðinu um viðbrögð embættisins
við ofsaakstri bifhjólamanna og ann-
arra ð undanförnu.
Í almennum hegningarlögum
segir að hver sá sem í ábataskyni, af
gáska ða á annan ófyrirleitinn hátt
stofnar lífi eða heilsu annarra í aug-
ljósan háska geti sætt fangelsi allt
að fjó um árum. A sög Jóns hefur
þessu ákvæði lítið verið beitt heldur
sé oft st ákært að ins fyrir brot á um-
ferðarlögum. Jón segir glæfraakst-
ur á mótorhjólum færast í aukana
með vaxandi mótorhjólaeign jafn-
framt því að hjólin verði sífellt kraft-
meiri. „Því hraðar sem hjólin komast
því hættulegri ve ða þau. Það þarf
að bregðast ið þessu því ofsaakstur
eins ökumanns setur alla í umferð-
inni í hættu. Aksturslagið getur líka
skapað ótta og viðbrög hjá öðrum
ökumönnum sem geta haft alvarleg-
ar afleiðingar,“ segir Jón. Eins segir
hann hægt að gera ökutæki upptæk
í tengslum við refsimál og andviðri
þess látið renna í ríkissjóð. Hann
segir það vel þekkt í refsimálum að
tæki sem b ot eru fram með séu
gerð upptæk.
Tryggingafélög eiga endurkröfu-
rétt á á sem valda tjóni af ásetn-
ingi eða stórkostlegu gáleysi og geta
þau skotið máli, sé grunur um slíkt,
til endurkröfunefndar sem skipuð
er af dómsmálaráðherra. Helgi Jó-
hannesson, formaður endurkröfu-
nefndar, segir fólk sem gerist upp-
víst að stórkostlegtu gáleysi geta átt
von á kröfu upp á milljónir. Á síðasta
ári tók nefndin 103 mál til úrskurð-
ar og samþykkti nefndin endurkröfu
að öllu leyti eða hluta í 98 málum.
Til samans námu kröfurnar 29 millj-
ónum króna og var hæsta einstaka
krafan upp á þrjár milljónir króna.
Fles ar endurkröfurnar eru vegna
ölvunaraksturs en einnig vegna akst-
urs án réttinda og ofsaaksturs.
hrs@dv.is
Hraðakstur aðstoðarlögreglustjóri
telur brýnt að bregaðst við ofsaakstri.
Sjónvarpsstjóri Omega sendir út bréf til fólks þar sem það getur strikað undir það sem það vill og Guð á að veita þeim - hærri bankainnistæðu eða nýjan bíl. Á sömu blaðsíðu eru reitir fyrir kortanúmer viðkomandi. Dómkirkjuprestur segir þetta að minnsta kosti ósmekklegt og að ekki eigi að nota bænina sem stjórntæki á Guð.
„Þetta eru að-
eins nokkrar
þeirra bl ssana
sem Guð vill þér til
handa en hann getur
ekki veitt þér þær ef
þú ert ekki fús til að sá
sáðkorni til að meðtaka
blessunina frá Guði.“
OMEGA
SELUR
BLESSUN
GUÐS
Bréfið frá Omega Það eru
engin takmörk hvað guð getur
gert fyrir þig segir efst á síðunni
og aðeins neðar er óskalisti sem
hægt er að merkja við.
Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur
Finnst rangt að telja fólki trú um að þeir
geti fengið guð til þess að mismuna fólki.
HJördíS rut SigurJónSdóttir
blaðamaður skrifar: hrs@dv.is
Eiríkur Sigurbjörns-
son, sjónvarpsstjóri
Omega Segist geta
beðið guð um nýrri
og dýrari bíl handa
fólk láti það fé af
hendi rakna til
Omega.
Heimildir Íslands til Bandaríkja-
ma na vegna Íraksstríðsins hafa að
öllum líkindum ekki verið afturkall-
aðar. Þetta kom fram á þingfundi á
Alþingi í gær en þá spurði Valgerð-
ur Sverrisdóttir, varaformaður Fram-
sóknarflokksins, Geir H. Haarde for-
sætisráðherra út í heimildir vegna
stríðsins.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan-
ríkisráðherra sagði í síðustu viku að
stefnubreyting hefði orðið með hinni
nýju ríkisstjórn í málefnum tengdum
stríðsrekstrinum í Írak. Valgerður og
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
Vinstri grænna, kröfðust staðfesting-
ar á því að þessi orð Ingibjargar væru
rétt. „Ríkisstjórnin h rmar ástandið í
Írak og margt hefur farið á annan veg
en til var ætlast í upphafi. Við ákváð-
um ð styðja innrásina á sínum tíma
og það er söguleg staðreynd. Þróun-
in hefur ekki orðið á þann veg sem
flestar vestrænar þjóðir óskuðu sér,“
var meðal þess sem Geir H. Haarde
sagði.
Steingrímur sagði að þessi mál
yrðu að komast á hreint sem fyrst.
„Það er ljóst á orðum forsætisráð-
herra að þessi heimild hafi ekki ver-
ið formlega afturkölluð. Ég hef eng-
ar skýringar fengið á því. Var þessi
heimild tímabundin?“ sagði Stein-
grímur, g ítrekaði spurningu sína.
Lúðvík Bergvinsson, formaður þing-
flokks Samfylkingarinnar, sagði að
stefnubreyting væri í þessum efn-
um hjá hinni nýju ríkisstjórn og
sagði Lúðvík að Bandaríkjamenn
hefðu tekið eftir þessari breytingu.
Það væri klárt. Valgerður sagði að
henni þætti nauðsynlegt að þjóðin
viti hvernig þessi mál standi. Ég skil
það þannig á svari Geirs að hér hafi
ekki farið fram nein breyting. Orð
utanríkisráðherra í síðustu viku eru
því röng og það er alvarlegt,“ sagði
Valgerður og bætti því við að það
væri engin stefnubreyting að harma
þessa innrás.
Þrjú hundruð fermetra íbúð í fjölbýl-
ishúsi í Skuggahverfi í miðbæ Reykja-
víkur er verðlögð á um 230 milljónir.
„Ég myndi segja að þetta væri hæsta
verð á íbúð í fjölbýlishúsi sem ég hef
heyrt um,“ segir Stefán Hrafn Stef-
ánsson, héraðsdómslögmaður og
löggiltur fasteignasali.
Harpa Þorláksdóttir, mark ðs-
stjóri 101 Skuggahverfis, segir að vel
gangi að selja íbúðirnar. „Það má
kalla þessa íbúð einbýlishús á tut-
tugustu hæð,“ segir Harpa.
Dýrasta íbúðin er 313,2 fermetr-
ar en viðmiðunarverðið á þeirri íbúð
er 229,5 milljónir en aðeins ein íbúð
er af þessari gerð. Íbúðin er á tveim-
ur hæðum með tveimur svefnher-
bergjum, þakgarði, borðstofu og
bókastofu. Borðstofan er 34 fermetr-
ar og bókastofan er 45,7 fermetrar.
Til samanburðar er nýja bókasafnið í
Vallaskóla á Selfossi um 60 fermetrar
sem yfir 200 börn þurfa að gera sér
að góðu.
Ódýrasta íbúðin í áfa ga tvö í
Skuggahverfinu er verðlögð á 83
miljónir en hún er um 136 fermetrar.
Í þeirri íbúð er meðal annars bóka-
stofa og 40 fermetra stofa.
735 þúsund fermetrinn
„Þetta er auðvitað eftirsótt svæði,
nýjar og glæsilegar byggingar með
fallegt útsýni við strandlengjuna,“
segir Stefán Hrafn. „Íbúðin sem um
ræðir er væntanlega sérhönnuð þak-
íbúð en samkvæmt þessu er verð á
fermetranum 735 þúsund. Það er
töluvert hærra en við eigum að venj-
st enda hef ég ekki séð svona hátt
fe metraverð áður. Okkur bregður
ekkert sérstaklega við upphæðir eins
og 500 þúsund krónur fyrir fermetr-
ann á nýjum og glæsilegum íbúð-
um í miðbænum þótt algengara sé
að verðleggja íbúðir í Lækjargötu
eða í Þingholtunum á þrjú til fjögur
hundruð þúsund fermetrann.“
Verðið ekkert óeðlilegt
Harpa segir verðlagningu íbúð-
arinnar ekkert óeðlilega. „Við teljum
að verðlagningin sé rétt og eðlileg,
sérstaklega ef tekið er tillit til þess
að þetta eru glæsilegar íbúðir í mið-
borginni,“ segir Harpa. Stefán Hrafn
segir að hægt sé að leita skýringar á
ve ðinu með því að skoða framboð
og eftirspurn. „Markaðurinn er auð-
vitað að svara eftirspurninni. Rétt
verð hlýtur alltaf að vera það sem
einhver er tilbúinn að borga, það er
því ekki hægt að segja að þetta séu
rangt verð eða vitlaust ef einhver er
tilbúinn til þess að borga þessa upp-
hæð. En þetta eru vissulega hærri
tölur sem við höfum heyrt áður,“ seg-
ir Stefán.
Hátt fermetraverð
Stefán Hrafn segir að hæstu verð
á blokkaríbúð sem h nn hafi
kynnst séu á bilinu 50 til 100 millj-
ónir og hæstu verð á einbýlishús-
m sé á bilinu 100 til 250 milljónir.
„Hátt verð og hátt verð er hins veg-
ar ekki hið sama því fermetraverðið
segir auðvitað mest og 735 þúsund á
fermetrann er mun hærra en ég hef
nokkurn tíma komið að sölu á,“ seg-
ir hann.
„Rjóminn af íbúðunum“
Að sögn Hörpu, markaðsstjóra
101 Skuggahverfisins, er mikill
áhugi fyrir öðrum áfanga hverfis-
ins, en tekið er við tilboðum í þenn-
an áfanga til 18. júní. Um er að ræða
13 íbúðir og heildarviðmiðunarverð
íbúðanna er rúmur einn og hálfur
milljarður
Stefán Hrafn segir að nú sé ver-
ið að selja eftirsóttustu og dýrustu
íbúðirnar í Skuggahverfinu. „Þeir
eru auðvitað að fara af stað með
rjómann af þeim íbúðum sem selja
skal í þessum húsum en það eru
þessar 13 efstu hæðir. Það eru göm-
ul sannindi og ný að eftir því sem
maður fer hærra í íbúðirnar eru þær
dýrari og efstu hæðirnar í svona
glæsihýsum eru í flestum tilfellum
dýrast r. Þegar um er að ræða þak-
íbúðirnar þá eru þær eftirsóttastar
og dýrastar,“ segir hann.
DV Fréttir
miðvikudagur 13. júní 2007 7
191 milljarðs króna hlut í Kaupþingi,
Bakkavör, Exista á Íslandi og Flögu.
Að auki hefur Ólafur Ólafsson stofn-
að félagið Kjalar Invest BV, sem er
metið á 90 til 100 milljarða í heild-
ina. BV-endingin í nafni fyrirtækj-
anna þýðir einfaldlega hlutafélag í
Hollandi.
Ekki verið að skjóta
unda skatti
Með því að fara þessa leið nýta
fyrirtækin sér rýmri reglur um skatt-
lagninu á gengishagnaði í Hollandi
heldur en eru í gildi hér á landi.
Samkvæmt upplýsingum sem DV
leitaði hjá greiningardeild Glitnis eru
áhrifin af þessum tilfærslum óveruleg
fyrir íslenska ríkið. Það verði reynd-
ar af skatttekjum því félögin sem um
ræðir ná að fresta skattgreiðslu fram
í hið óendanlega á meðan þau end-
urfjárfesta söluhagnaðinn. Málið
snýst m að fyrirtæki sem skipta fyrir
milljarða króna á ári leita allra leiða
til þess að borga sem minnstan skatt
innan þess ramma sem lögin leyf
eða fresta skattgreiðslum. Með því
að fresta skattgreiðslu losna fjárfest-
ar við mikla fjárbindingu. Samkvæmt
upplýsingum frá embætti ríkisskatt-
stjóra kemur hins vegar til skattlagn-
ingar á uppsöfnuðum söluhagnaði
um leið og fjárfestar útleysa hagnað-
inn en fjárfesta ekki aftur. Skúli Egg-
ert Þórðarson ríkisskattstjóri telur
áhrifin jafnframt óveruleg og sagði í
samtali við DV a hann ger i lítið úr
því að mikið tekjutap verði af þessum
leiðum.
Eðlilegt að samræma reglur
Það er mat bankamanna sem DV
ræddi við að þessar aðferðir fyrir-
t kjanna hefðu ekkert með skatta-
undanskot að gera, einhvern tíma
komi að því að fyrirtækin greiði skatt
af söluhagnaðinum, en þessi leið
geri þeim þó kleift að fresta katt-
lagningu um óákveði n tíma. Eðli-
legt væri þó að samræma skattaregl-
ur hér á landi við ríki Vestur-Evrópu
til þess að sa ræmast hinu alþjóð-
lega viðskiptaumhverfi og koma í veg
fyrir að fyrirtækin þurfi að fara þessar
krókaleiðir. Í mörgu löndum Evr-
ópu sé mikil samkeppni um að lokka
stórfyrirtæki til sín, með því að skapa
þeim hagstætt starfsumhverfi og Ís-
lendingar verði að fara sömu leið.
Með því að lækka skatta sjái stór fyr-
irtæki sér hag í að færa aðalstöðvar
sínar til landsins og skatttekjur ríkis-
ins hækki á endanum.
S mkvæm upplýsingum frá fjár-
málaráðuneytinu eru reglur um
skattlagningu á söluhagnaði fyrir-
ækja hér á landi í endurskoð n.
Hannes Smárason Eigandi
Oddaflugs Bv í Hollandi
sem á 47 milljarða
króna hlut í FL
group.
Í nýrri blokk í Skuggahverfinu er til sölu íbúð á 230 milljónir. Fermetraverð með því hæsta sem þekkist í fasteignaheiminum, 735 þúsund. Vel gengur að selja íbúðirnar.
Borðstofan er 34 fer-
metrar og bókastofan
er 45,7 fermetrar. Til
samanburðar er nýja
bókasafnið í Valla-
skóla á Selfossi um 60
fermetrar sem yfir 200
börn þurfa að gera sér
að góðu.
KRISTÍN HREFNA HALLDÓRSD.
blaðamaður skrifar: kristinhrefna@dv.is
Hæst ver s m
heyrst hefur
Stefán Hrafn verðið á
þakíbúðinni í áfanga tvö
í Skuggahverfinu er
hæsta verð sem Stefán
hefur heyrt.
Harpa Þorláksdóttir að
sögn Hörpu hefur gengið
vel og mörg tilboð eru
komin í íbúðirnar í áfanga
tvö í Skuggahverfinu.
Blokkin í miðjunni íbúðin
sem um ræðir er á efstu
hæð í blokkinni í miðið en
íbúðin er 313 fermetrar.
Útsýnið úr dýru íbúðinni Það er
ótrúlegt útsýni úr dýrustu íbúðinni í
Skuggahverfinu.
Valgerður Sverrisdóttir Fyrrverandi utanríkisráðherra segir að það sé nauðsynlegt að vita hvernig málin standi.
Engin breyting á heimildum vegna Íraksstríðsins, segir V lgerður Sverrisdóttir:
Hei ldi Bandaríkjahers enn í gildi
13. júní 2007
13. júní 2007
14. júní 2007
18. júní 2007