Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Qupperneq 60

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Qupperneq 60
36 menning Helgarblað 16. júní 2017 Þ að er misjafnt hvernig forríkt fólk ráðstafar auði sínum, en óhætt er að segja að Banda- ríkjamaðurinn Albert C. Barnes hafi þar hagað sér vit- urlega. Hann var ástríðufullur mál- verkasafnari og þegar hann lést í bílslysi árið 1951, 79 ára gamall, var í hans eigu stærsta einkasafn af verkum impressjónista, póst-impressjónista og módernista. Þar á meðal voru 69 verk eftir Cézanne, 59 eftir Matisse, 46 eftir Picasso og 181 eftir Renoir. Hann átti einnig verk eftir Van Gogh, Manet, Monet, Modigliani, Degas, Rousseau, Gauguin og Toulouse-Lautrec, svo einungis örfá nöfn séu nefnd. Eins og í fjársjóðshelli Barnes Foundation í Fíladelfíu hýs- ir þetta mikla og undurfallega einka- safn en þar eru rúmlega 3.000 munir, þar af 900 málverk. Listaverkasafnið er á tveimur hæðum og í mörgum herbergjum. Að koma inn í hvert og eitt herbergi er eins og ganga inn í fjársjóðshelli. Veggir eru þaktir lista- verkum póst-impressjónistanna, im- pressjónistanna og módernistanna. Þarna má þó finna innan um verk mun eldri meistara eins og Titian, El Greco og Hals. Barnes safnaði einnig antíkmunum og listmunum frá Afríku og Asíu. Listaverkin eru því ekki einungis á veggjum því á gólfinu standa voldugar antíkmublur og á þeim eru forláta vasar, ker og glös. Allt sem þarna sést er listaverk. Barnes hafði hugsað út í hvert smáatriði og þessar uppstillingar eru ekki tilviljun. Hann sagði sjálfur að þegar listmun- um, sérstaklega þeim afrísku, væri stillt upp nálægt myndunum yrðu þær enn betri. Mikil nánd við listaverkin Þeir sem áhuga hafa á listasögu þekkja handbragðið og eiga ekki í erfiðleikum með að ráða í það hvaða heimsþekkti málari hafi málað hverja mynd. Þarna eru mjög þekkt verk eins og Pósturinn eftir Van Gogh, en einnig minna þekkt verk og nær undantekningarlaust undurgóð. Það er einmitt stór þáttur í upplifuninni í Barnes-safninu að sjá verk sem sjást ekki í stóru listasöfnunum, en eru um leið gerð af meistara höndum. Frægustu listasöfn heims eru yfir- leitt nokkuð yfirþyrmandi vegna stærð- ar sinnar og þar er auðvelt að villast. Fjöldi listaverka gerir síðan að verkum að sá sem á safnið kemur sér yfirleitt ekki nema brot af því sem þar er til sýn- is. Þetta á ekki við um Barnes-safnið. Þar þarf enginn að villast. Hin hæfilega stærð gerir að verkum að listunnand- anum finnst hann vera í mikilli nánd við verkin. Meistari Matisse sagði að Barnes-safnið væri eitt það áhuga- verðasta við Ameríku. Þar mætti sjá verk gamalla meistara við hlið verka yngri málara og einmitt það veitti þeim áhugasömu innsýn í fjölmargt sem kennarar gætu ekki kennt þeim. Renoir á metið Barnes, sem var lyfjafræðingur og viðskiptajöfur, var orðinn forríkur 35 ára gamall. Hann hafði glöggt auga fyrir góðri list og varð ástríðufullur safnari. Hann hafði einnig vit á því að leita álits fagmanna og keypti iðu- lega verk eftir ráðgjöf. Árið 1912 þegar hann var í París kynntist hann Ger- trude og Leo Stein og á heimili þeirra hitti hann listamenn á borð við Henri Matisse og Pablo Picasso, en fjöldi verka þeirra var í eigu hans. Renoir á þó metið því Barnes átti tæplega 200 verk eftir hann og sagðist ekki geta átt of margar myndir eftir listamanninn. Það er mikil upplifun að heim- sækja Barnes Foundation. Enginn sem heimsækir Fíladelfíu ætti að fara þaðan án þess að heimsækja safnið og gleyma sér innan um hina eilífu fjársjóði Alberts Barnes. n Eilífir fjársjóðir Alberts Barnes n Í Fíladelfíu er listaverkasafn sem unun er að skoða n Glæsilegt einkasafn manns sem kunni að ráðstafa auði sínum Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Rosa La Rougue Þetta kraftmikla olíumálverk Toulouse- Lautrec af vændiskonunni Rósu kallar á athygli áhorfandans. Heillandi Monet Það er ekki annað hægt að en hrífast af þessari fallegu mynd og kyrrðinni sem í henni býr. Jeanne Hébuterne Mynd Modigliani af ástkonu sinni. Barnes Foundation Hýsir stórbrotið listaverkasafn. Albert Barnes Ástríðufullur myndlistar- safnari. Metsölulisti Eymundsson 8.– 14. júní 2017 Allar bækur 1 Með lífið að veðiYeonmi Park 2 EftirlýsturLee Child 3 Gestir utan úr geimnum Ævar Þór Benediktsson 4 Litla bakaríið við Strandgötu Jenny Colgan 5 Talin afSara Blædel 6 Independent PeopleHalldór Laxness 7 Morðið í GróttuStella Blómkvist 8 Sagas Of The Icelanders Ýmsir höfundar 9 BrestirFredrik Backman 10 HÍF OPP! Gaman-sögur af íslenskum sjómönnum Guðjón Ingi Eiríksson Handbækur / Fræði- bækur / Ævisögur 1 Með lífið að veðiYeonmi Park 2 HÍF OPP! Gaman-sögur af íslenskum sjómönnum Guðjón Ingi Eiríksson 3 Stofuhiti Bergur Ebbi Benediktsson 4 Gæfuspor - Gildin í lífinu Gunnar Hersveinn 5 171 Ísland: Áfanga-staðir í alfaraleið Páll Ásgeir Ásgeirsson 6 Býr Íslendingur hérGarðar Sverrisson 7 Volcano SudokuÝmsir höfundar 8 109 Sudoku bók 13 9 Íslensk litadýrð-Colorful Iceland Elsa Nielsen 10 Náðu tökum á félagskvíða Sóley Dröfn Davíðsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.