Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 34
2 Veitingastaðir Helgarblað 15. september 2017KYNNINGARBLAÐ
Tvöfaldur Wabamm með bræddum óðalsosti, sultuðum lauk, tómat, fersku salati og chili-majónesi
Borgarinn sem vekur
bragðlaukana með látum
SósuhimnaríkiSagt er að hann felli ekki tár við að skera lauk, heldur sé það
laukurinn sem væli. Einnig
ganga sögur um að hann
hafi eitt sinn verið bitinn af
baneitruðum snák, sem lést
síðan sjálfur af völdum eitr-
unar eftir að hafa engst um
í fjóra klukkutíma. Þeir eru
margir naglarnir í Hollywood
en Chuck Norris er án efa
sá harðasti af þeim öllum.
Það er líka sagt að ham-
borgararnir frá Chuck Norris
Grill séu þeir bestu í bænum,
en þar er um að ræða lítinn
en kröftugan veitingastað
í miðbænum, sem selur
frábæra borgara, samlokur,
steikur og salöt á heiðarlegu
verði.
Einstakt chili-majónes og
sultaður laukur. Banvæn
blanda!
„Kjötið sem við notum er alltaf
fyrsta flokks. Einnig látum við
sérbaka fyrir okkur brauð fyrir
borgarana og samlokurnar.
Það sem gerir hamborgar-
ana okkar sérstaka er sultaði
laukurinn sem við sultum
samviskusamlega á hverjum
morgni. Hann gefur smá kikk
á meðan chili-majónesið okk-
ar gefur léttan kinnhest til að
vekja bragðlaukana. Sultaði
laukurinn vinnur sérlega vel á
móti chili-majónesinu og gef-
ur gott jafnvægi í bragði og
styrkleika. Úr verður banvæn
blanda sem gerir borgarann
epískan eins og Chuck Norris
sjálfan,“ segir Jón Bjarni, eig-
andi Chuck Norris Grill.
Sósubarinn fyrir þá sem
vilja „spæsa“ upp matinn
Þeir sem vilja færa matinn
sinn upp á næsta stig geta
tekið hring á sósubarnum
víðfræga sem Chuck Norris
Grill býður gestum sínum upp
á. „Þetta er opinn bar með
20–30 gerðum af sósum
sem eru tilvaldar til þess að
„spæsa“ upp matinn. Við
erum með spicy sriracha-
sósu, Bbq-sósu, hot sauce og
margt fleira. Við látum það
ekki fréttast að einhver hafi
fengið bragðlausan borgara
á Chuck Norris Grill,“ segir
Jón Bjarni.
Heiðarlegir hamborgarar
Fyrir eiturharða nagla eins
og Chuck Norris sjálfan, þá
mælir Jón Bjarni sérstaklega
með tvöfaldum Wabamm
með bræddum óðalsosti,
sultuðum lauk, tómat, fersku
salati og chili-majónesi.
Honum fylgja franskar og var
hann sérstaklega hannaður
með snillinginn Chuck Norris
í huga. En Chuck Norris Grill
er ekki bara fyrir eiturharða
nagla sem kalla ekki einu sinni
ömmu sína ömmu sína. Þessi
rómaði veitingastaður er
fyrir alla sem hafa smekk fyrir
bragðgóðum og vel gerðum
mat. Skammtarnir eru
rausnarlegir og verðið kemur
skemmtilega á óvart. Þannig
er Chuck Norris-andinn kraft-
mikill, heiðarlegur, bragðmikill,
hreinn og beinn því á Chuck
Norris Grill færðu einfaldlega
góðan mat á góðu verði. Vilji
menn gera sérstaklega vel
við sig þá er líka hægt að fá
sér sæti á Dillon Whisky bar á
efri hæðinni og panta mat-
inn þangað upp og súpa á
einhverri þeirra 180 tegunda
af whisky sem boðið er upp
á þar.
Chuck Norris Grill er
staðsettur við miðjan Lauga-
veg, 101 Reykjavík. Opið alla
daga frá 11.00–01.00 nema
sunnudaga, þá er opið til
miðnættis. Sími: 561-3333.
Email: chucknorrisgrill@gmail.
com. Nánari upplýsingar má
nálgast á Facebook-síðunni
Chuck Norris Grill.
CHuCK NorriS Grill,
EKKi Bara Fyrir Þá allra HörðuStu