Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 35
Veitingastaðir 3Helgarblað 15. september 2017 KYNNINGARBLAÐ
VON Mathús: Ljúfar stundir í
hjarta Hafnarfjarðar
Laxavafflan
Úrvals fiskur
Einar og Kristjana
Veitingahúsið VON Mathús var opnað af þeim Einari Hjaltasyni
og Kristjönu Þuru í Hafnarfirði
árið 2015 og hefur reksturinn
gengið vonum framar. Einar
er sannkallaður reynslubolti
og margrómaður matreiðslu-
maður sem útskrifaðist af
Grillinu á Hótel Sögu og kom
að opnun háklassa veitinga-
staðar í London sem hlaut
Michelin-stjörnu. Kristjana
hefur einnig verið viðloðandi
veitinga- og hótelgeirann í
um tíu ár og svo er hún Hafn-
firðingur í húð og hár. „Við
verðum tveggja ára í des-
ember og þetta heldur bara
áfram að dafna hjá okkur,“
segir Kristjana.
Allt það ferskasta
Matseðill VON Mathúss á
kvöldin og í hádeginu er alla
jafna stuttur og árstíða-
bundinn og tekur ávallt mið
af því sem er ferskast hverju
sinni, hvort sem um fisk
eða grænmeti er að ræða.
Matseðlinum er svo breytt
á 2–3 mánaða fresti og allt
hráefni er í mestu mögu-
legu gæðum. Fiskinn kaupir
VON Mathús frá Hafinu og
kjötið frá SS og því er hvort
tveggja ætíð íslenskt hrá-
efni. „Við leggjum upp úr því
að nota ferskt íslenskt hráefni
og er allt unnið frá grunni.
Enn fremur bökum við okkar
eigið brauð alla morgna, sem
hefur vakið mikla lukku,“ segir
Kristjana. Ásamt sérstökum
barnaréttum á matseðlinum
er hægt að fá alla rétti í
skammtastærðum fyrir börn.
Einnig er hægt að fá græn-
metis- eða veganrétti bæði
í aðalrétt eða í samsettum
seðlum.
Ekta bröns, magnaðar
vöfflur og fiskur dagsins
Um helgar fæst ekta bröns í
hádeginu hvort sem um er að
ræða hádegisverðarplatta
eða fjölskylduhlaðborð. Að
auki er boðið upp á vöfflur
með ýmsu spennandi
meðlæti og er laxavafflan
langvinsælust á bröns-
seðlinum, að sögn Kristjönu.
Vöffludeigið er vegan og því
ættu allir að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi. Einnig
er hægt að fá fisk dags-
ins. Helgarbröns væri varla
fullkomnaður ef ekki væri
boðið upp á mímósur eða
dásamlega súrsætt límonaði.
Helgarbröns er hægt að fá á
laugardögum og sunnudög-
um frá 11.30–14 og mælt er
með borðapöntun.
Alla þriðjudaga–föstu-
daga, milli kl. 11.30–14.00,
er boðið upp á súpu, salat,
ferskan fisk
og kjötrétt,
sem auglýst
er daglega
á Facebook-
síðunni.
„Við erum
mjög virk á
samfélags-
miðlunum
okkar og þar er hægt
að fylgjast með okkar
daglegu verkum,“ segir
Kristjana. Þá er boðið
upp á það ferskasta
sem fæst hverju sinni og
tekur matseðillinn mið af því.
Hafnarfjörður
hefur lifnað við
Sumir telja að Hafnarfjörður
sé mjög langt frá miðborginni
og því ekki besti staðurinn til
þess að opna veitingastað á,
en Kristjana og Einar eru því
algerlega ósammála. „Það er
ekki nema tíu mínútna akstur,
korter í versta falli, frá Vestur-
bænum og inn í Hafnarfjörð.
Hér eru líka ætíð næg bíla-
stæði og Hafnarfjörðurinn er
að auki svo fallegur og nota-
legur staður. Á VON Mathúsi
er fallegt útsýni yfir smábáta-
höfnina, sanngjarnt verð og
mikil gæði,“ segir Kristjana.
„Það er dásamlegt að sjá
mannlífið blómstra hér í mið-
bænum í Hafnarfirði, eins og
það hefur gert hér undanfar-
in ár. Ný kaffihús og veitinga-
hús, Bæjarbíó og fleira
skemmtilegt glæða bæinn
miklu lífi og hér er gaman að
starfa,“ segir Kristjana Þura
að lokum.
VON Mathús er til húsa
að Strandgötu 75, 220
Hafnar firði. Opnunartími: Frá
11.30–14.00 og 17.30–21.00
alla daga nema mánudaga
en þá er lokað; auk þess er
lokað á sunnudagskvöld-
um. Sími: 583-6000. Email:
info@vonmathus.is. Nánari
upplýsingar má nálgast á
vefsíðu VON Mathúss, von-
mathus.is, og á Facebook-
síðunni. Einnig eru þau með
Instagram-síðuna
VON Mathús&Bar.
Brauð bakað á staðnum á hverjum morgni