Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 50
26 fólk - viðtal Helgarblað 15. september 2017 vinnandi á meðan konurnar voru heima með börnin. Sem betur fer hefur það breyst en það þýðir ekki að fólk eigi að vinna sólarhringum saman, myrkranna á milli, án þess að hitta fjölskyldu sína.“ Þá kveðst Nichole aldrei hafa upplifað eins mikla gagnrýni á persónur fólks, heyrt jafn mikið talað niður til þess og snúið út úr orðum þess eins og eftir að hún hóf störf á Alþingi. „Ég naut miklu meiri virðingar í samfélaginu sem leikskólastjóri en ég geri í dag sem þingmaður. Ég heyri líka, aft- ur og aftur, að það sé mikilvægt í þessu starfi að hafa harðan skráp. Þetta er leiðinlegur fylgifiskur þess að vera í pólitík. Það hefur verið erfitt að venjast því að vera alltaf í skotlínunni, enda er ég mikil til- finningamanneskja. Ég hef fengið mína skelli og gagnrýni en ólíkt mörgum sem ég starfa með þá hika ég ekki við að viðurkenna mistök. Það mættu fleiri gera.“ Nichole segir jafnframt að „skrápurinn“ svokallaði, geri þing- mönnum betur kleift að baktala og skjóta skoðanir annarra þing- manna í kaf þar sem þeir feli sig á bak við þennan ósýnilega verndar- vegg. „En fyrir hverju erum við að eiginlega vernda okkur? Við erum bara venjulegt fólk. Ég bý í Efra- Breiðholti, borga af lánum og við erum á einum bíl. Ég á sömu ná- grannana og ekkert hefur breyst í okkar samskiptum. Ég fer reglulega út að hjóla með börnunum mínum og stoppa hjá reykingafólkinu, sem stendur fyrir framan hverfispöbb- inn, til að spjalla. Ég ætla ekki að láta starfið breyta því sem ég er.“ Erum öll manneskjur Fylgi Bjartrar framtíðar, líkt og ríkis- stjórnarinnar, hefur dalað töluvert frá kosningum. Nichole undrar sig á mikilli gagnrýni frá almenningi sem segir Bjarta framtíð, nú þegar, hafa svikið hin ýmsu kosninga- loforð. „Við erum bara venju- legt fólk. Ég hefði haldið að fólk myndi sýna okkur meiri skilning. Við erum ekki tengd neinum hags- munaöflum og ætlum að láta verk- in tala í stað þess að segja alls konar hluti til að ná fylginu upp. Við erum búin að vera við völd í aðeins sex mánuði. Það er ekki raunhæft að leysa allt á svona stuttum tíma. En þetta kemur, ég hef fulla trú á því.“ Ólíkt mörgum Íslendingum sem sleiktu sólina og nutu lífsins í sumar varði Nichole sínu fríi fjarri fjölskyldu og vinum. Hún dvaldi í mánuð á Grikklandi þar sem hún kynnti sér aðbúnað hælisleitenda. Þessi mikla lífsreynsla er Nichole ofarlega í huga en í framtíðinni langar hana að tala fyrir málstað hælisleitenda. „Ástæðan fyrir því að ég fór til Grikklands er sú að umræðan um hælisleitendur er yfirleitt bundin skoðun annarra og því sem ratað hefur í fjölmiðla. Ég vildi fara út og mynda mér mína eigin skoðun á málefnum hælis- leitenda. Á sama tíma fannst mér mikilvægt að leggja mitt af mörk- um til að auðvelda fólki lífið við þessar hörmulegu aðstæður.“ Nichole fór á vegum alþjóðlegs neyðarstarfs SOS Barnaþorpanna. Upplifunin hafði djúpstæð áhrif á Nichole sem tók þátt í starfi á leik- skóla og á heimilum fyrir fylgdar- laus börn. „Það er svo dýrmætt að geta sett sig í spor annarra. Á meðan ég var með fólkinu hélt ég andliti en þegar ég var komin upp á hótel, eða sat ein úti að borða, byrjuðu tárin að streyma. Og gera það enn. Það mikilvægasta er að muna að við erum öll manneskjur. Hvar sem við fæðumst á jörðinni.“ Leggur fram frumvarp Nichole er að lokum spurð um mál ungu stúlknanna Haniye og Mary og fjölskyldna þeirra sem mjög hefur verið í umræðunni undanfar- ið. Logi Einarsson, formaður Sam- fylkingarinnar, hefur sagt að flokk- urinn hygðist leggja fram frumvarp um íslenskan ríkisborgararétt til handa stúlkunum og foreldrum þeirra. „Ég vonast enn til að farsæl lausn finnist á máli fjölskyldn- anna,“ segir Nichole. „Ég er með tilbúið frumvarp með sama mark- miði og frumvarpið sem er hér til umræðu, með tilliti til áhrifa á stöðu stúlknanna. Frumvarpið nær til allra í sömu stöðu, ekki bara þessara tilvika. Auk þess fel- ast í því varanlegar úrbætur og jafnræðis er gætt. Á miðvikudags- kvöld lýsti dómsmálaráðherra því yfir að hann vildi „taka á móti öll- um tillögum þingmanna hvað varðar lagabreytingar“. Ég trúi ekki öðru en að unnið verði að laga- breytingum sem eru í frumvarp- inu okkar í samstarfi með ráðu- neytinu. Mér finnst erfitt að taka tvö mál fram fyrir öll önnur sem bíða af- greiðslu. Ég veit að fleiri, sem eru jafnvel verr sett, hafa fengið synj- un en þyrftu líka svona meðferð. Mál margra fara ekki hátt, þau eru rekin í hljóði. Ég ætla ekki að vera meðal meðflytjenda í frumvarpi Loga Einarssonar. Ég hef jafnframt sagt að ef okkar frumvarp og vinna nær ekki að aðstoða þessa einstak- linga sem við í Bjartri framtíð ætl- umst til að það geri, þá muni ég styðja frumvarp um ríkisborgara- rétt í atkvæðagreiðslu. Svo finnst mér mikilvægt að þverpólitísk nefnd starfi að því að tryggja að framkvæmd nýju lag- anna um málefni útlendinga verði fylgt eftir og að lögin nái því mark- miði sem ætlast var til. Það stóð alltaf til að slík nefnd starfaði sam- hliða innleiðingu laganna. Ef slík nefnd hefði verið starfandi þá trúi ég því að tillögur að breytingum á lögum hefðu verið lagðar fram fyrir löngu. Þá værum við ekki að ræða neyðar úrræði, sem veiting ríkis- borgararéttar til fimm einstaklinga umfram aðra er svo sannarlega.“ n „Mér fannst myrkr- ið yfirþyrmandi, ég skildi ekki orð í tungu- málinu og var mjög ein- mana. Besta vinkona mín á þessum tíma var 16 ára mágkona mín. Eina starf- ið sem mér bauðst, af því að ég talaði ekki tungu- málið, var að þrífa skrif- stofur á kvöldin. Eleonas, hælisleitendabúðir í Aþenu Nichole dvaldi í búðunum í sumar. Leikskólinn Ösp í Fellahverfi Myndin er tekin haustið 2016. Nichole Leigh Mosty „Það er svo dýrmætt að geta sett sig í spor annarra.“ MyNd BryNjA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.