Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 14
14 Helgarblað 15. september 2017fréttir - erlent
F
æstir vita að Íslendingar og
Grænlendingar hafa háð
blóðugt stríð þar sem afhöfð-
un er daglegt brauð. Þetta
stríð er þó hvorki háð á Íslandi né á
Grænlandi heldur í smáþorpum í
Nígeríu. Sagan er um margt lygileg
en þó lýsandi fyrir þá ringulreið
sem ríkir í mörgum Afríkuríkjum.
Ólíkleg byrjun
Sagan hófst á ólíklegum stað,
Ibadan- háskólanum í vesturhluta
Nígeríu árið 1952. Jafnvel furðulegri
er sú staðreynd að það var Wole
Soyinka sem hratt henni af stað
en hann varð fyrsti svarti Afríku-
maðurinn til að vinna Nóbels-
verðlaun í bókmenntum árið 1986.
Hann og sex aðrir félagar hans í há-
skólanum komu á fót bræðralagi
sem nefndist Pyrates (Sjóræningj-
arnir).
Tilgangurinn með bræðra-
laginu var að brjóta upp hefð-
ir sem höfðu myndast innan há-
skólans þar sem flestir vinguðust
einungis við nemendur úr þeirra
eigin ættbálki. Þá fannst þeim
skólafélagar þeirra einnig líta of
mikið upp til bresku nýlenduherr-
anna. Deildir bræðralagsins voru
opnaðar í fleiri háskólum landsins
og í tvo áratugi áttu Sjóræningj-
arnir enga keppinauta.
Í upphafi áttunda áratugarins
klofnaði Pyrates í tvennt eftir
að nokkrum meðlimum var
vikið úr bræðralaginu. Til urðu
tvö ný bræðralög, Seadogs og
Buccaneers. Mikil spenna mynd-
aðist á milli þeirra og slagsmál
brutust út við háskólana. Á níunda
áratugnum spruttu ný bræðralög
upp eins og gorkúlur víðs vegar
um landið eins og til dæmis Svarta
Öxin, Klanið og Víkingarnir.
Herforingjar landsins sáu tæki-
færi á borði og vígvæddu bræðra-
lögin til að hafa hemil á róttækum
nemendum skólanna. Þessi vopn
notuðu þau hins vegar einnig í
deilum sín á milli. Á þessum tíma
fór einnig að bera á því að bræðra-
lagsmeðlimir iðkuðu vúdú og farið
var að tala um trúarreglur eða költ
í því samhengi.
Samgönguráðherra
vopnar Íslendinga
Skömmu eftir árið 1990 var
orðið ljóst að bræðralögin voru
komin ansi langt frá því sem
Nóbelskáldið hafði hugsað sér
þegar hann stofnaði Sjóræningja-
klúbbinn sinn. Meðlimir eins
bræðralagsins, Fjölskyldunnar,
horfðu til ítölsku mafíunnar sem
fyrirmyndar og starfsemin varð
eftir því. Á þeim tíma var mörgum
bræðralagsmeðlimum vikið úr
háskólunum og því fluttist starf-
semin að mestu leyti á götuna.
Farið var að tala um költista, eða
vúdú-glæpagengi.
Þessum gengjum fjölgaði með
hverjum deginum. Hvítu Biskup-
arnir, Herramennirnir, Svarti
sporðdrekinn, Trójuhestarnir,
Annar sonur satans og Vina-
bandalagið voru meðal gengja
sem spruttu upp. Eitt þeirra
gengja sem urðu til á þessum tíma
voru Hinir miklu víkingar í Fljóta-
héraðinu í suðausturhluta lands-
ins þar sem búa um fimm milljón-
ir manna. Leiðtogar þess stofnuðu
dóttur félag, Íslendingana, sem
varð að lokum öflugra en móður-
félagið.
Leiðtogi Íslendinganna var
Tom Ateke og hann naut stuðn-
ings samgönguráðherra Níger-
íu við að vígvæða og byggja upp
gengið. Að launum hjálpuðu Ís-
lendingarnir flokki hans, PDP, að
halda völdum í Fljótahéraðinu í
aðdraganda kosninga árið 2003.
Íslendingarnir voru þá ekki lengur
gengi heldur skæruliðahreyfing.
Hreyfingin varð ein sú öflugasta
í héraðinu og beitti sér af hörku
gegn andstæðingum sínum með
árásum, nauðgunum og morðum.
Grænlendingar sýna enga miskunn
Árin 1967 til 1970 geisaði blóðug
borgarastyrjöld í suðausturhluta
Nígeríu eftir að aðskilnaðarsinn-
ar í Igbo-ættbálknum klufu sig
frá landinu og stofnuðu eigið ríki,
Bíafra. Þessi uppreisn var brotin
á bak aftur á grimmdarlegan hátt
af stjórnarhernum og um 100.000
manns féllu í átökunum. Talið er
að á bilinu 1–2 milljónir Bíafram-
anna hafi soltið til bana eftir að
landið var sett í herkví. Óánægja
Bíaframanna var þó enn til staðar
og íbúarnir kvörtuðu sáran yfir
olíumengun, arðráni og skorti á
uppbyggingu.
Árið 1998 hófust vopnaðir bar-
dagar á svæðinu og Fljótahéraðið
lenti í átökunum miðjum. Átök
milli ýmissa stríðsherra og skæru-
liðahreyfinga brutust út og Ís-
lendingarnir, undir stjórn Ateke,
tóku þátt í þeim bardögum. Eftir
áralanga bardaga gaf Ateke sig vilj-
ugur fram við stjórnvöld í höfuð-
borginni Abuja þann 1. október
árið 2009 en sú uppgjöf var leik-
rit til að friða fólk á svæðinu. Ís-
lendingarnir voru ekki leystir upp
og bardagarnir á héldu áfram.
Um þetta leyti stigu nýir leik-
menn inn á sviðið, Aswana-sam-
tökin eða Grænlendingarnir, sem
kröfðust þess að fá yfirráð yfir öllu
Bíafra-svæðinu. Leiðtogi Græn-
lendinganna, Olomubini Kakara-
kokoro, betur þekktur sem Engin
miskunn, gaf út yfirlýsingu sem
byrjar svo:
„Ef ríkisstjórn Nígeríu sam-
þykkir ekki skilmála okkar um allt
svæðið við Níger Delta-fljót þá
munum við sprengja Bonga-olíu-
stöðina, Asaba-Onistha-brúna og
allar aðrar brýr í suðurhluta lands-
ins … til að byrja með.“
Því var fyrirséð að Græn-
lendingarnir, sem einnig stunda
vúdú, myndu þurfa að kljást við Ís-
lendingana, dyggustu stuðnings-
menn ríkisstjórnarinnar á svæð-
inu. Költista-stríð var í vændum.
Blóðug átök í smábæjum
Hreyfingarnar lenda iðulega
saman í opnum en fámennum
bardögum og einnig eru árásir
einstaka meðlima afar tíðar. Hreyf-
ingarnar ráðast einnig á óbreytta
borgara og fjölskyldur sem þær
telja að styðji andstæðinga þeirra.
Flestar þessar árásir eiga sér stað í
litlum bæjum í Fljótahéraðinu þar
sem löggæsla er lítil eða engin.
Ibaa er dæmi um bæ sem hefur
lent sérstaklega illa í deilunum
þrátt fyrir að herstöð sé á svæðinu.
Árið 2014 réðust bæði Íslendingar
og Grænlendingar inn í bæinn og
drápu samtals tíu manns og særðu
enn fleiri. Þremur árum seinna
voru átta drepnir í bænum, þar
af fimm Íslendingar. Helmingur
þeirra sem voru drepnir fannst af-
höfðaður.
Í maí 2016 féllu 19 manns í
átökum hreyfinganna í bænum
Idoha. Grænlendingarnir drápu
fjögurra manna fjölskyldu og af-
höfðuðu einn Íslending skömmu
seinna. Íslendingarnir gerðu þá
umsátur um Grænlendingana á
svæðinu og drápu 15 þeirra. Allir
íbúar bæjarins flúðu á meðan
átökin áttu sér stað.
Sumir eru drepnir með sveðjum
og aðrir með byssum og sprengj-
um. En mörg drápin eru fram-
kvæmd með frumstæðari aðferð-
um. Mjög algengt er að lík finnist
með kramið höfuð eftir stóra
steina eða steypuhnullunga. Kirkj-
ur og samkomuhús lítilla bæja eru
staðir sem verða iðulega skotmörk
hreyfinganna og oft á sér stað van-
helgun tengd vúdú.
Þrátt fyrir að margar skæruliða-
hreyfingar og vúdú-gengi starfi á
svæðinu hafa Íslendingarnir og
Grænlendingarnir ávallt litið á sig
sem höfuðandstæðinga. Stríðið
milli þeirra hefur nú staðið yfir í
mörg ár og ekki sér fyrir endann á
því. Engar tölur eru til um heildar-
mannfall í átökunum. n
AFhöFðun
Algeng í stríði
íslendingA og
grænlendingA
n sjóræningaklúbbur nóbelskáldsins n olían og Bíafra
„ef ríkis-
stjórn
nígeríu sam-
þykkir ekki skil-
mála okkar um
allt svæðið við
níger delta-
fljót þá mun-
um við sprengja
Bonga-olíustöð-
ina, Asaba-on-
istha-brúna og
allar aðrar brýr
í suðurhluta
landsins …
til að byrja með
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is