Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 10
10 Helgarblað 15. september 2017fréttir
U
m nýliðna helgi stóð Lög-
fræðingafélag Íslands fyrir
afar áhugaverðri uppákomu
þegar réttað var á nýjan
leik í sakamálunum gegn Agnesi
Magnús dóttur, Friðriki Sigurðssyni
og Sigríði Guðmundsdóttur. Agnes
og Friðrik voru dæmd til dauða árið
1830, fyrir morðin á Natani Ketils-
syni og Fjárdráps-Pétri. Sigríður
var einnig dæmd til dauða en var
síðar náðuð og dæmd til ævilangrar
þrælkunarvinnu. Agnes og Friðrik
voru síðan afhöfðuð á hrottafenginn
hátt en um var að ræða síðustu af-
tökurnar á Íslandi. Agnes var 34 ára
þegar hún var tekin af lífi en Friðrik
aðeins 19 ára gamall.
Það var Eyrún Ingadóttir, fram-
kvæmdastjóri Lögfræðingafélags Ís-
lands, sem fékk þá hugmynd að rýna
í söguslóðirnar með félagsmönnum,
fara í vettvangsferð og endurvekja
síðan réttarhöldin með nútíma
réttarfari. Áhuga Eyrúnar má rekja
til þess að hún er frá Hvammstanga
og er að auki sagnfræðingur að
mennt. „Fyrir nokkrum árum birti
tímaritið Saga frábærar greinar eftir
virta sagnfræðinga þar sem farið var
yfir málið frá mörgum hliðum. Það
varð kveikjan að þessari hugmynd
sem ég bar undir stjórn félagsins
og hlaut góðar undirtektir. Ég er
afar ánægð með hvernig til tókst og
núna óska ég þess að sálfræðingar
landsins leggist yfir dómskjölin og
gefi sitt álit á málinu,“ segir Eyrún
glaðlega.
Taldi lærbrotið vera happ
Einn áhrifamesti viðburður dagsins
var framsögn Magnúsar Ólafssonar,
fyrrverandi bónda á Sveinsstöðum,
á vettvangi aftökunnar, við Þrístapa
í Vatnsdal. Fyrir utan þá staðreynd
að Magnús hefur alla tíð alið mann-
inn í sveitinni þar sem harmleik-
urinn átti sér stað þá tengist hann
málinu á sérstakan hátt. Afi hans
og faðir fundu höfuðkúpur og bein
Agnesar og Friðriks eftir að maður
að nafni Guðmundur Hofdal hafði
fengið hjálparbeiðni að handan frá
Agnesi sjálfri. Með leiðsögn Guð-
mundar fundust beinin fljótt en
þau höfðu horfið eftir aftökuna.
Þá lýsti Magnús aftökunum
sjálfum og hversu mikil raun þær
voru fyrir þá sem voru skikkaðir
til þess að fylgjast með. Alls voru
150 bændur og vinnumenn úr
nærliggjandi sveitum boðaðir á
aftökustað og þeir látnir fylgjast
með hryllingnum. Afar áhrifarík
voru þau orð Magnúsar að ungur
maður frá Guðlaugsstöðum í
Blöndudal hafi síðar sagt frá því að
hans mesta lán í lífinu hefði verið
að hestur hans hnaut á leið til af-
tökunnar með þeim afleiðingum
að maðurinn lærbrotnaði. Hann
komst því ekki á aftökustað en að
telja það lán að lærbrotna árið 1830
þegar lítið var um lækna og lækn-
ingar segir ýmislegt um þann hryll-
ing sem þarna átti sér stað.
Þá lét Magnús gesti raða sér í
þrefalda röð í kringum ímyndaðan
aftökupallinn. Þá varð öllum ljóst
hversu nærri menn stóðu þegar
höfuð Agnesar og Friðriks fengu
að fjúka. Blóð spýttist í allar áttir og
hryllingurinn hefur verið óbæri-
legur. Það var skipun yfirvaldsins
að enginn skyldi líta undan. Þegar
einn viðstaddra gerði það þá laust
sýslumaður hann kinnhesti með
hanska sínum og hrópaði: „Það
má enginn undan líta.“
Dómar mildaðir
Því næst var ferðinni haldið til
Hvammstanga þar sem sjálf rétt-
arhöldin fóru fram en þau voru, að
sögn viðstaddra, allt í senn, fræð-
andi og skemmtileg. Lögmennirnir
sem tóku þátt höfðu lagt mikla vinnu
í undirbúning sinn en að sama skapi
var reglulega slegið á létta strengi.
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissak-
sóknari sóttið málið og fór ákæru-
valdið fram á hámarksrefsingu,
sextán ára fangelsi fyrir Agnesi og
átta ára fangelsi fyrir Friðrik og Sig-
ríði, fyrir morð, brennu og þjófnað.
Guðrún Sesselja Arnardóttir
varði Agnesi og Sigríði. Hún fór
fram á vægustu mögulegu refsingu
og byggði vörnina á því að konurnar
hafi búið við heimilis- og kynferðis-
ofbeldi af hendi Natans. Þá hafi að-
stöðumunur verið gífur legur þar
sem þær voru í lægsta þrepi sam-
félagsins. Guðrún Sesselja vísaði
í fjölmörg dómafordæmi þar sem
slíkar aðstæður leiddu til refsilækk-
unar. Gestur Jónsson varði Friðrik
af krafti og benti meðal annars á
ungan aldur hans og skýlausa játn-
ingu. Þessi atriði voru síðan metin
til refsilækkunar og hlaut Agnes
fjórtán ára dóm fyrir sína aðild að
málinu en Friðrik sjö ára fangelsi.
Sigríður, sem aðeins var sextán ára
gömul, hlaut fimm ára dóm. n
„Það má enginn líta undan“
n Velheppnaður viðburður Lögfræðingafélags Íslands n Réttað á ný yfir Agnesi og Friðriki
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Sögulegt handaband Gestur Jónsson
og Ólafur Haukur hafa marga hildina háð
í dómsal í tengslum við ýmis sakamál. Oft
hafa þung orð fallið en kollegarnir heils-
uðust kumpánalega á Hvammstanga.
Kjarnakonur Alþingismennirnir fyrrverandi, Vigdís Hauksdóttir og
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, létu sig ekki vanta.
Hlýddu á réttarhöldin Ragnheiður Elín Clausen, Helga Vala Helgadóttir, Sólveig
Pétursdóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir voru ánægðar með hvernig til tókst.
Dómarar Kolbrún Sævarsdóttir héraðsdómari, Ingibjörg Benediktsdóttir, fyrrverandi hæstaréttardómari, og Davíð Þór Björgvinsson,
fyrrverandi dómari við mannréttindadómstólinn í Strassborg, sáu um að dæma í málinu.
Magnús Ólafsson, fyrrverandi bóndi
á Sveinsstöðum Magnús hélt magnað
erindi á aftökustað. Afi hans og faðir fundu
bein og höfuðkúpur Agnesar og Friðriks
rúmri öld eftir aftökurnar.
Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari
Að sögn viðstaddra fór hún á kostum í hlut
verki
sínu sem saksóknari.
Lögðu hönd á plóg Leikararnir
Jóhann Sigurðarson og Jóhanna
Vigdís Arnardóttir hjálpuðu gestum í
réttarsal að fá innsýn í málið.