Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 30
Ferðamálafræðingurinn, bloggarinn og fagurkerinn María Gomez býr á Álftanesi ásamt eiginmanni sínum og fjórum börnum. Það elsta er átján ára en litla hjörðin telur tvo stráka, þriggja og fjögurra ára, og eina stelpu sem er tveggja ára. Þegar fjölskyldan flutti í nýtt húsnæði á Álftanesinu höfðu þau hjónin það að leiðarljósi að gera heimilið nýtískulegt og fallegt, án þess að tilkostnaðurinn yrði allt of mikill. „Ég keypti fyrstu íbúðina mína árið 2011. Þá tók ég hana alveg í gegn og seldi svo einu og hálfu ári síðar fyrir talsvert hærri upphæð. Svo endurtókum við maðurinn minn leikinn þegar við seldum húsnæðið okkar í Garðabæ og flutt- um hingað á Álftanes. Mér finnst ótrúlega gaman að taka húsnæði í gegn og fegra án mikils tilkostnað- ar. Hlutirnir þurfa ekki endilega að kosta svo mikið og oft er hægt að gera miklar breytingar til hins betra án þess að það kosti handlegg,“ segir María. Of mikið drasl og dót skapar áreiti fyrir börnin Spurð að því hvað skipti mestu máli þegar kemur að barnaherbergjum segir hún mikilvægt að karakter barnsins fái að njóta sín. „Svo finnst mér mikilvægt að hafa herbergin einföld. Ekki drasl og myndir úti um allt. Það getur orðið svo mikið áreiti fyrir börnin. Þau hafa dótið sitt í hirslum, vita hvar það er og hvar á að ganga frá því. Allt á sínum stað. Börnin hafa heldur ekki gott af því heldur að það sé allt í drasli hjá þeim,“ segir María sem skikkar krílin sín til að taka til eftir hvern leik. „Þau þekkja þetta hvort sem er af leik- skólanum. Þar verða þau að ganga frá kubbunum sínum áður en næsti leikur fer í gang. Það er fínt að sömu reglur gildi heima og á leikskólanum. Það verður bara minni ruglingur. Með þessu næ ég líka oftast að halda herbergjunum mjög snyrtilegum. En auðvitað verða þau að fá að njóta sín líka í herbergjunum sínum. Svo þurfa þau að vita að hver og einn á sitt herbergi. Mikael, elsti strákurinn minn, vill til dæmis bara fá að vera í friði í herberginu sínu. Hann þolir ekki þegar litla systir kemur inn og rústar öllu. Núna er þetta mál einmitt efst á blaði, að kenna þeim að virða pláss hvort annars. Þetta er auðvitað alltaf stöðug barátta á milli þessara þriggja,“ segir hún og hlær. Fylgið blogginu hennar Maríu á www.paz.is Að eignast þrjú börn á tveimur árum og sjö mánuðum er ákveðið þrekvirki. Að búa þeim svo falleg sérherbergi og fá þau til að taka reglulega til í þeim er ekki síður magnað. Sérherbergi Viktoríu Ölbu, tVeggja ára Gólfmottan og loftljósið koma úr versluninni Laura Ashley en hillurnar á veggnum eru úr Rúmfatalagern- um. Stelpubíllinn kemur úr versluninni Petit sem er í miklu uppáhaldi hjá Maríu. Þrjú börn á Þremur árum og sérherbergi fyrir hvert og eitt heimaSaumað bangSatjald Tjaldið saumaði María sjálf með tals- verðum herkjum. „Þetta var alls ekki eins auðvelt og margir myndu halda. Ég fann þessar bambusstangir í blómabúð og fór svo að baksa við að setja þetta saman. Það mistókst mörgum sinnum áður en ég fékk tjaldið til að standa. Krökkunum finnst gaman að leika sér við að láta bangsa í tjaldið og svoleiðis, þetta er kannski aðallega til skrauts,“ segir María kankvís. innlit
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.