Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Qupperneq 30
Ferðamálafræðingurinn, bloggarinn og fagurkerinn María Gomez býr á Álftanesi
ásamt eiginmanni sínum og fjórum
börnum. Það elsta er átján ára en
litla hjörðin telur tvo stráka, þriggja
og fjögurra ára, og eina stelpu sem
er tveggja ára.
Þegar fjölskyldan flutti í nýtt
húsnæði á Álftanesinu höfðu þau
hjónin það að leiðarljósi að gera
heimilið nýtískulegt og fallegt, án
þess að tilkostnaðurinn yrði allt of
mikill.
„Ég keypti fyrstu íbúðina mína
árið 2011. Þá tók ég hana alveg í
gegn og seldi svo einu og hálfu ári
síðar fyrir talsvert hærri upphæð.
Svo endurtókum við maðurinn
minn leikinn þegar við seldum
húsnæðið okkar í Garðabæ og flutt-
um hingað á Álftanes. Mér finnst
ótrúlega gaman að taka húsnæði í
gegn og fegra án mikils tilkostnað-
ar. Hlutirnir þurfa ekki endilega að
kosta svo mikið og oft er hægt að
gera miklar breytingar til hins betra
án þess að það kosti handlegg,“
segir María.
Of mikið drasl og dót
skapar áreiti fyrir börnin
Spurð að því hvað skipti mestu máli
þegar kemur að barnaherbergjum
segir hún mikilvægt að karakter
barnsins fái að njóta sín. „Svo finnst
mér mikilvægt að hafa herbergin
einföld. Ekki drasl og myndir úti
um allt. Það getur orðið svo mikið
áreiti fyrir börnin. Þau hafa dótið
sitt í hirslum, vita hvar það er og
hvar á að ganga frá því. Allt á sínum
stað. Börnin hafa heldur ekki gott af
því heldur að það sé allt í drasli hjá
þeim,“ segir María sem skikkar krílin
sín til að taka til eftir hvern leik. „Þau
þekkja þetta hvort sem er af leik-
skólanum. Þar verða þau að ganga
frá kubbunum sínum áður en næsti
leikur fer í gang. Það er fínt að sömu
reglur gildi heima og á leikskólanum.
Það verður bara minni ruglingur.
Með þessu næ ég líka oftast að halda
herbergjunum mjög snyrtilegum.
En auðvitað verða þau að fá að njóta
sín líka í herbergjunum sínum. Svo
þurfa þau að vita að hver og einn á
sitt herbergi. Mikael, elsti strákurinn
minn, vill til dæmis bara fá að vera
í friði í herberginu sínu. Hann þolir
ekki þegar litla systir kemur inn
og rústar öllu. Núna er þetta mál
einmitt efst á blaði, að kenna þeim
að virða pláss hvort annars. Þetta er
auðvitað alltaf stöðug barátta á milli
þessara þriggja,“ segir hún og hlær.
Fylgið blogginu hennar
Maríu á www.paz.is
Að eignast þrjú börn
á tveimur árum og sjö
mánuðum er ákveðið
þrekvirki. Að búa þeim
svo falleg sérherbergi
og fá þau til að taka
reglulega til í þeim er
ekki síður magnað.
Sérherbergi Viktoríu Ölbu, tVeggja ára
Gólfmottan og loftljósið koma úr versluninni Laura
Ashley en hillurnar á veggnum eru úr Rúmfatalagern-
um. Stelpubíllinn kemur úr versluninni Petit sem er í
miklu uppáhaldi hjá Maríu.
Þrjú börn á Þremur árum og
sérherbergi fyrir hvert og eitt
heimaSaumað bangSatjald
Tjaldið saumaði María sjálf með tals-
verðum herkjum. „Þetta var alls ekki
eins auðvelt og margir myndu halda.
Ég fann þessar bambusstangir í
blómabúð og fór svo að baksa við
að setja þetta saman. Það mistókst
mörgum sinnum áður en ég fékk
tjaldið til að standa. Krökkunum
finnst gaman að leika sér við að láta
bangsa í tjaldið og svoleiðis, þetta
er kannski aðallega til skrauts,“ segir
María kankvís.
innlit