Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 36
4 Veitingastaðir Helgarblað 15. september 2017KYNNINGARBLAÐ
Bryggjan brugghús með
sinn eigin Októberfest bjór
Októberfest haldið hátíðlega dagana 21.–30. september
Bryggjan brugghús heldur októberfest hátíðlega dagana
21.–30. september með
glæsilegum Októberfest
matseðli og Októberfest
bjór. bryggjan er brugghús
og einstaklega fallegur og
skemmtilegur veitingastað-
ur að grandagarði 8 við
reykjavíkurhöfn, staðurinn
var opnaður fyrir tveimur
árum og hefur heldur
betur getið sér gott orð
fyrir einstakt og gott úrval
gæða bjóra. bryggjan er
með allt að 12 bjórtegund-
um á dælu hjá sér og þar
af 5–7 tegundir sem þeir
brugga sjálfir, en þeir eru
þekktir fyrir að leggja mikinn
metnað í bjórana sína og
fjölbreytni þeirra.
Risaball með Stuðmönnum
bryggjan verður að sjálf-
sögðu með sinn eigin bjór
á Októberfest, sem verður
kominn á dælu þann 21.
september. Þorsteinn hjá
bryggjunni segir Október-
fest bjórinn vera amber-
bjór, svo hann er rauðari
en venjulegur pilsner.
„Októberfest bjórinn okkar
er af märzen-ætt, amber-
bjór sem er örlítið hærri í
alkóhólmagni eins og venjan
er með októberfest bjór.
af því arturo og andrew,
bruggararnir hérna á
bryggjunni brugghús, eru
svo skapandi gátum við ekki
neytt þá til að gera þetta
nákvæmlega eftir þýskum
stöðlum og notuðu þeir
amerískan humal í staðinn
fyrir þann þýska til þess að
gera bjórinn aðeins meira
spennandi.“
Októberfest matseðillinn
og bjórinn verða í boði alla
dagana og hátíðinni lýkur
síðan með risaballi laugar-
dagskvöldið 30. september
þar sem dj gullfoss og
stuðmenn gleðja gesti.
Þetta er kjörið tækifæri til
að lyfta sér upp og fagna
haustinu.