Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Síða 36
4 Veitingastaðir Helgarblað 15. september 2017KYNNINGARBLAÐ Bryggjan brugghús með sinn eigin Októberfest bjór Októberfest haldið hátíðlega dagana 21.–30. september Bryggjan brugghús heldur októberfest hátíðlega dagana 21.–30. september með glæsilegum Októberfest matseðli og Októberfest bjór. bryggjan er brugghús og einstaklega fallegur og skemmtilegur veitingastað- ur að grandagarði 8 við reykjavíkurhöfn, staðurinn var opnaður fyrir tveimur árum og hefur heldur betur getið sér gott orð fyrir einstakt og gott úrval gæða bjóra. bryggjan er með allt að 12 bjórtegund- um á dælu hjá sér og þar af 5–7 tegundir sem þeir brugga sjálfir, en þeir eru þekktir fyrir að leggja mikinn metnað í bjórana sína og fjölbreytni þeirra. Risaball með Stuðmönnum bryggjan verður að sjálf- sögðu með sinn eigin bjór á Októberfest, sem verður kominn á dælu þann 21. september. Þorsteinn hjá bryggjunni segir Október- fest bjórinn vera amber- bjór, svo hann er rauðari en venjulegur pilsner. „Októberfest bjórinn okkar er af märzen-ætt, amber- bjór sem er örlítið hærri í alkóhólmagni eins og venjan er með októberfest bjór. af því arturo og andrew, bruggararnir hérna á bryggjunni brugghús, eru svo skapandi gátum við ekki neytt þá til að gera þetta nákvæmlega eftir þýskum stöðlum og notuðu þeir amerískan humal í staðinn fyrir þann þýska til þess að gera bjórinn aðeins meira spennandi.“ Októberfest matseðillinn og bjórinn verða í boði alla dagana og hátíðinni lýkur síðan með risaballi laugar- dagskvöldið 30. september þar sem dj gullfoss og stuðmenn gleðja gesti. Þetta er kjörið tækifæri til að lyfta sér upp og fagna haustinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.