Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 20
20 sport Helgarblað 15. september 2017
Þ
að voru margir hræddir um
að árangur íslenska karla-
landsliðsins í fótbolta yrði
ekki jafn góður og hann
hafði verið eftir að Evrópumótið í
Frakklandi var á enda. Liðið hafði
komist í nýjar hæðir og eftir slíkt
getur verið erfitt að halda sjó, þar
að auki hætti Lars Lagerbäck sem
þjálfari liðsins og óttuðust margir
að myndi hafa mikil áhrif. Sumir
efuðust um að Heimir Hallgríms-
son hefði það sem þurfti til að
stýra liðinu einn. Það virðist vera
deginum ljóst að slíkar áhyggjur
voru óþarfar enda hefur árangur
Íslands aldrei verið betri eftir að
Heimir tók einn við þjálfun liðsins.
Lagerbäck og Heimir voru
ráðnir til starfa árið 2011 og
þeirra fyrsta stóra verkefni var
undankeppni Heimsmeistara-
mótsins í Brasilíu árið 2014. Sú
keppni hófst haustið 2012 og var
árangurinn í þeirri keppni góður,
íslenska liðið var að koma upp
eftir erfið ár og þjóðin fór að styðja
liðið af miklum krafti.
Nálægt því að komast til Brasilíu
Íslenska liðið var mjög nálægt því
að komast á HM í Brasilíu en liðið
féll úr leik í umspili um laust sæti
gegn Króatíu. Liðin gerðu marka-
laust jafntefli á Laugardalsvelli
áður en haldið var til Zagreb,
þar var verkefnið of stórt fyrir ís-
lensku strákana sem voru margir
hverjir í sárum í fleiri vikur í kjöl-
farið. Leikmenn áttu margir í
vandræðum með félagsliðum
sínum eftir að hafa fallið úr leik
enda erfitt að kyngja niðurstöðu
umspilsins.
Draumurinn varð að veruleika
Fyrir undankeppni EM kom
Heimir inn sem aðalþjálfari ásamt
Lagerbäck og hlutirnir urðu enn
betri, liðið var komið lengra og
draumurinn um að komast á
fyrsta stórmótið varð að veruleika.
Í Frakklandi stóð liðið sig svo frá-
bærlega og komst í átta liða úrslit
en þar varð Frakkland of öflugur
andstæðingur. Margir óttuðust að
íslenska liðið missti nú flugið og
ætti enga möguleika á að komast á
HM í Rússlandi.
Heimir hefur sannað sig enn betur
Ef einhver hafði efast um Heimi
Hallgrímsson sem þjálfara fyrir
undankeppni Heimsmeistara-
mótsins í Rússlandi hefur sá þurft
að endurskoða mat sitt. Heimir
hefur sannað að hann hefur
heilmargt fram að færa og gott bet-
ur. Eftir að Lagerbäck lét að störfum
hefur Heimir tekið stórar ákvarð-
anir og þær hafa virkað. Heimir
hefur ekki verið fastur í því að spila
kerfið 4-4-2 sem var það eina sem
kom til greina undir stjórn Lager-
bäcks og það hefur skilað árangri.
Einnig hefur hann þorað að skipta
út eldri mönnum fyrir yngri. Heim-
ir hefur líka þurft að eiga við fleiri
meiðsli en voru í tíð hans og Lag-
erbäcks; Kolbeinn Sigþórsson hef-
ur til að mynda ekki verið leikfær
eftir að Heimir tók einn við liðinu.
Í fyrri tíð var Kolbeinn einn af allra
mikilvægustu leikmönnum liðsins.
Þessi vandræði hefur tannlækn-
irinn frá Vestmannaeyjum leyst vel.
Þegar sigurhlutfall síðustu ára er
skoðað hjá landsliðinu kemur í ljós
að því hefur aldrei vegnað betur
eftir að Heimir tók einn við liðinu,
sú staðreynd er reyndar mögnuð.
Liðið er í erfiðasta riðli sem það
hefur verið í síðustu ár. Á með-
al andstæðinganna eru Tyrkland,
Úkraína og Króatía sem öll voru á
Evrópumótinu í Frakklandi í fyrra-
sumar og segir það sitt um styrk
riðilsins. Heimi hefur hins vegar
tekist að finna réttu blönduna til
að máta risana frá Austur-Evrópu,
hann þarf svo að setja upp hina
fullkomnu skák þegar liðið heim-
sækir Tyrkland í byrjun október. n
Lagerbäck
Undankeppni HM 2014 - 10 leikir
Fyrir þessa undankeppni var Lars
Lagerbäck einn aðalþjálfari liðsins og
Heimir Hallgrímsson var aðstoðar-
maður hans, leikur liðsins tók fram-
förum og komst það í umspil um laust
sæti á HM í Brasilíu árið 2014 en datt
út eftir leik gegn Króatíu.
Sigrar
Ísland 2 - 0 Noregur
Albanía 1 - 2 Ísland
Slóvenía 1 - 2 Ísland
Ísland 2 - 1 Albanía
Ísland 2 - 0 Kýpur
Jafntefli
Noregur 1 - 1 Ísland
Sviss 4 - 4 Ísland
Töp
Kýpur 1 - 0 Ísland
Ísland 0 - 2 Sviss
Ísland 2 - 4 Slóvenía
Umspil fyrir HM 2014 - 2 leikir
Jafntefli
Ísland 0 - 0 Króatía
Tap
Króatía 2 - 0 Ísland
Sigurhlutfall: 41,66%
Heimir
Undankeppni HM 2016 - 8 Leikir
Það var löngu ákveðið að Heimir
myndi taka einn við liðinu þegar Lars
Lagerbäck hyrfi á braut. Hann fékk
Helga Kolviðsson inn sem aðstoðar-
mann sinn og eftir það hefur árangur
liðsins orðið betri en áður. Sigurhlut-
fall Íslands hefur ekki verið jafn gott
síðan Heimir kom að þjálfun liðsins.
Riðill Íslands er afar erfiður og það
gerir afrekið enn meira.
Sigrar
Ísland 3 - 2 Finnland
Ísland 2 - 0 Tyrkland
Kósóvó 1 - 2 Ísland
Ísland 1 - 0 Króatía
Ísland 2 - 0 Úkraína
Jafntefli
Úkraína 1 - 1 Ísland
Töp
Króatía 2 - 0 Ísland
Finnland 1 - 0 Ísland
Sigurhlutfall: 62,5%
Sigurhlutfallið betra
eftir að lagerbäck fór
n Heimir hefur sannað sig sem frábær þjálfari n Óhræddur við breytingar
Lagerbäck og Heimir
Undankeppni EM 2016 - 10 leikir
Fyrir undankeppni Evrópumótsins í Frakk-
landi varð sú breyting að Lagerbäck og
Heimir urðu báðir aðalþjálfarar liðsins. Ár-
angurinn varð betri og á endanum komst
Ísland inn á sitt fyrsta stórmót í karlaflokki
þar sem liðið náði góðum árangri. Eftir
mótið hætti Lagerbäck störfum.
Sigrar
Ísland 3 - 0 Tyrkland
Lettland 0 - 3 Ísland
Ísland 2 - 0 Holland
Kasakstan 0 - 3 Ísland
Ísland 2 - 1 Tékkland
Holland 0 - 1 Ísland
Jafntefli
Ísland 0 - 0 Kasakstan
Ísland 2 - 2 Lettland
Töp
Tékkland 2 - 1 Ísland
Tyrkland 1 - 0 Ísland
Evrópumótið 2016 í Frakkland: - 5
leikir
Sigrar
Ísland 2 - 1 Austurríki
Ísland 2 - 1 England
Jafntefli
Portúgal 1 - 1 Ísland
Ungverjaland 1 - 1 Ísland
Tap
Frakkland 5 - 2 Ísland
Sigurhlutfall: 53,3%
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Frábær árangur
Árangur Íslands hefur
verið góður síðustu ár en
sigurhlutfallið hefur aldrei
verið betra eftir að Heimir
tók einn við liðinu. MyND Epa