Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 64
40 menning Helgarblað 15. september 2017 J óna Guðbjörg Torfadóttir og Ásgerður Jónasdóttir hafa stofnað vefinn skald.is. Vefur­ inn er tileinkaður konum og skáldskap þeirra. Þar birtast við­ burðir, fréttir, greinaskrif og fagur­ fræðilegir textar auk gagnabanka um íslenskar skáldkonur. „Fyrir margt löngu ræddum við Ásgerður þá hugmynd að búa til eins konar gagnabanka um skáld­ konur. Við vildum gera þeim hærra undir höfði,“ segir Jóna Guðbjörg. „Ég hafði tekið saman lista yfir gamlar íslenskar skáldkonur og fór að hugsa með mér hvað hefði orðið um þessar konur og hvar bækurnar þeirra væru,“ segir Ás­ gerður. „Jóna hafði einnig verið að velta þessu fyrir sér og svo ákváð­ um við að gera eitthvað í þessum málum. Okkur langaði til að smíða líflegan vef um íslenskar skáld­ konur og verk þeirra.“ Jóna og Ásgerður segjast fagna öllum ábendingum um íslenskar skáldkonur og skáldskap þeirra: „Í sveitum landsins leynist til dæmis ýmislegt sem ekki hefur ratað í neina bókmenntasögu og ekki fengið neitt rými. Það væri mikill fengur að því að fá slíkt efni á vef­ inn. Fólk er að hafa samband við okkur til að benda okkur á skáld­ konur. Um daginn fengum við til dæmis póst frá manni í Vest­ mannaeyjum sem benti okkur á skáldkonu, Unu Jónsdóttur. Hann sendi mynd af henni og upplýs­ ingar sem við settum á vefinn. Hann var afar þakklátur fyrir að vakin skyldi athygli á henni.“ Þær vinkonur hafa haft sam­ band við fólk sem mun veita þeim liðsinni. „Sigríður Albertsdóttir ætlar að birta gagnrýni sína á vefnum, Soffía Auður Birgisdóttir er að senda okkur efni og Helga Kress hefur gefið okkur leyfi til að birta efni eftir sig. Við birtum líka skáldskap eftir konur, bæði nýjan og gamlan. Við hugsum þennan vef sem vettvang fyrir kvennabók­ menntir og kvenskáld. Við sönkum að okkur efni og setjum í sarpinn. Þetta er mikil vinna en skemmti­ leg. Við erum rétt að byrja en höf­ um strax fengið frábærar móttök­ ur. Við ætlum að gera þennan vef að lifandi vettvangi fyrir kvenna­ bókmenntir,“ segja þær stöllur. n „Fólk er að hafa samband við okk- ur til að benda okkur á skáldkonur. Lifandi vettvangur kvennabókmennta n Jóna og Ásgerður hafa stofnað vefinn skald.is n Tileinkaður konum og skáldskap þeirra Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Bækur Saga af hjónabandi Höfundur: Geir Gulliksen Þýðandi: Halla Kjartansdóttir Útgefandi: Benedikt – Bókaklúbburinn Sólin 191 bls. Maðurinn er einkvænisvera Þ að verða alltaf skrifaðar sög­ ur um hjónabönd, framhjá­ hald og skilnaði, því allt er þetta svo ríkur þáttur í mann­ lífinu. Oft er þetta sama sagan upp á nýtt, hvort sem það er í skáldsagna­ formi, bíómynd, sjónvarpsþætti eða einfaldlega fréttum af fólki úti í bæ í kaffitímanum, og er það að meina­ lausu. En skáldsagan Saga af hjóna­ bandi eftir norska höfundinn Geir Gulliksen er af öðru tagi, líklega óvenjulegasta og frumlegasta saga sem ég hef lesið um þetta efni. Gulliksen, sem er fæddur árið 1963, er þekktur höfundur í Noregi en fyrir Sögu af hjónabandi var hann tilnefndur til Bókmenntaverð­ launa Norðurlandaráðs árið 2016. Í sögunni er því lýst hvernig molnar undan samband hjóna þegar eigin­ konan stofnar til kynna við annan mann. Eiginmaðurinn er fyrsta persóna í sögunni, en sér auk þess inn í hugskot eiginkonunnar og lýs­ ir atburðum frá hennar sjónarhóli, en í sinni frásögn. Þetta er ekki það eina óvenjulega í frásagnartækni sögunnar því sögumaður leggur ekkert upp úr því að takmarka vit­ neskju um það sem koma skal til að halda lesandanum spenntum, þess í stað veit maður allan tímann hvað á eftir að gerast, en sagan gengur þá meira út á að sýna lesandanum hvernig það gerðist og hvers vegna. Bókin fær þannig á sig yfirbragð rannsóknar fremur en sögu. Það er alþekkt úr hjónabands­ sögum lífsins, bókmenntanna og kvikmyndanna að ástareldurinn tekur að kulna eftir því sem lengra líður á hjónabandssögurnar. Það er hinn óhjákvæmilegi gangur lífsins. En á meðan ástríða hjónabands­ ins dofnar sitja einstaklingarnir eftir með sína meðfæddu ástríðu­ þrá sem getur beinst annað. Stund­ um verður grasið grænna hinum megin. Stundum skilja slíkar sögur eftir handa okkur boðskap um að rækta þurfi sambandið. Þetta er allt gott og vel. Kunnuglegt en satt. En Saga af hjónabandi er skemmtilegt frávik frá þessum kunnugleika. Hjónin í þessari sögu eiga sér óvenjulega ástríðufullt samband eftir nær 20 ára sambúð og barn­ eignir. Sambandið hófst á framhjá­ haldi en fólkið kynntist á meðan bæði voru gift öðrum. Sögumanni er mikið í mun að lifa ekki hefð­ bundnu lífi, komast út úr kassanum. Af þeim sökum hafa hjónin þróað með sér mikla hreinskilni um hugs­ anir sínar, langanir og hugaróra. Sameiginlegir órar þeirra, aðallega knúnir af manninum, snúast með­ al annars um að konan sé með öðr­ um manni. Þetta er ekki algengt efni í bókmenntum en þekkt „minni“ úr klámheiminum, ekki síst nú, á dög­ um blómstrandi heimilisiðnaðar í svokölluðu „amatöra­klámi“. Rétt er að taka það fram að þessi saga er ekki klámfengin þrátt fyrir þessa óra og mjög opinskáar kynlífslýsingar, markmiðið er ekki að örva lesand­ ann heldur skoða mannssálina, ástina og ástríðuna. Þegar eiginkonan kynnist öðrum manni og hefur með honum ein­ hvers konar kunningja­ eða vina­ samband, þá leynir hún eiginmann sinn engu. Hann hvetur hana til að ganga lengra, þykist viss um að hjónabandið þoli hliðarspor, telur sig lausan við smáborgaralega af­ brýðisemi, en þetta reynist feigðar­ flan. Hvað sem líður nútímalegri og frjálslyndislegri nálgun sögunnar á viðfangsefnið talar niðurstaðan af þessari hættulegu tilraun hjónanna máli gamla skólans: Maðurinn er einkvænisvera. Ástinni verður ekki deilt. Saga af hjónabandi er með eindæmum vel skrifuð, þraut­ hugsuð og meitluð saga. Hún ætti að höfða til allra sem hafa áhuga á hjónabandinu og ástinni, og eigin­ lega líka til þeirra sem einfaldlega hafa gaman af að lesa flottan og djúphugsaðan texta. n Ágúst Borgþór Sverrisson agustb@dv.is „Saga af hjónabandi er með eindæm- um vel skrifuð, þrauthugsuð og meitluð saga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.