Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 12
12 Helgarblað 15. september 2017fréttir Á rið 1966 stóðu til miklar framkvæmdir í miðborg og austur bæ Reykjavíkur. Þétta átti byggð í mið- borginni og reisa háhýsi en lægri og eldri hús áttu að víkja. Hluti af deiliskipulaginu var að byggja við Landsímahúsið til suðurs að Kirkjustræti. En þá var óhjákvæmi- legt að byggja inn í hinn forna Víkurgarð sem kallast nú í dag- legu tali Fógetagarður. Sá garður er nú aftur kominn í deigluna vegna fyrir hugaðrar hótelbyggingar á reitnum. Ströng skilyrði Víkurgarður var grafreitur Reyk- víkinga í 800–900 ár, við Víkur- kirkju á horni Aðalstrætis og Kirkjustrætis. Hólavallagarðurinn við Suðurgötu tók að mestu leyti við árið 1838 en heimildir geta þess að ein manneskja hafi verið jörðuð við Víkurgarðinn árið 1882. Ári seinna, 1883, fékk Hans J.G. Schierbeck landlæknir garðinn að leigu eftir að hann lét reisa timb- urhús við Aðalstræti 11. Skilyrði fylgdu þó leigunni og Schierbeck mátti ekki raska garðinum á neinn hátt. Hann mátti einungis rækta þar tré og blóm en ekki matjurtir. Eftir allmörg ár var fallist á að garð- urinn væri erfðafestuland hússins. Póstur og Sími eignaðist Að- alstræti 11 árið 1940 og forsvars- mennirnir töldu stofnunina þá eiga garðinn og mega ráðstafa hon- um að vild. Borgaryfirvöld töldu þó að sömu skilyrði og Schierbeck gekk að hlytu að eiga enn við. Helgi Þorláksson, sagnfræðingur og prófessor emiritus, sem barist hefur fyrir verndun Víkurgarðs segir að mikil togstreita hafi stað- ið um garðinn á milli Reykjavíkur- borgar og Pósts og síma. Haustið 1966 gerðu borgin og Póstur og sími samkomulag um að garður- inn yrði í umsjá borgarsjóðs. Þá varð niðurstaðan að viðbygging risi við Landsímahúsið, og var það mun minni bygging en Póstur og sími hafði farið fram á. Minni viðbygging Ári áður en borgin fékk garðinn afhentan hóf Kristján Eldjárn, þjóðminjavörður og síðar for- seti, rannsóknir á garðinum og hversu langt í austur hann náði. Komst hann að því að jarðneskar leifar lágu undir því svæði þar sem fyrirhuguð viðbygging Land- símahússins átti að rísa. Kristján var þá í Skipulags- nefnd kirkjugarða ásamt Sigur- birni Einarssyni biskupi, Herði Bjarnasyni, húsameistara ríkis- ins, og tveimur öðrum. Nefndin setti sig upp á móti viðbyggingu Landsímahússins á þeim grunni að hún myndi raska Víkurgarðin- um og þeim beinum sem þar und- ir liggja. Forsvarsmenn Pósts og Síma beittu hins vegar skærum til að reyna að fá sínu framgengt. Þeir grófu í garðinum og settu þar und- ir símalínur og kapla. Loks var sest að samningaborðinu til þess að fá lausn sem allir gátu sætt sig við. Helgi segir: „Þetta endaði undir lok ársins 1966 með því að Pósti og síma var leyft að reisa mun minni byggingu, það er viðbyggingin eins og hún er núna, og raskið varð miklu minna en upphaflega leit út fyrir“. Skilyrðin sem skipulags- nefndin setti fyrir viðbyggingunni voru þau að hún næði ekki jafn langt suður og samþykkt hafði verið í deiliskipulaginu, að það yrði grafið mjög takmarkað fyrir sökkli byggingarinnar og ekki leyft að grafa fyrir kjallara. Kristján Eldjárn og Þjóðminjasafnið höfðu vökult auga með framkvæmdinni og tryggt var að tiltölulega lítið horn af garðin- um færi undir bygginguna. Forn- leifafræðingar sáu um að fjarlægja minjarnar þegar grafið var fyrir sökklinum. Í ljós komu 5-6 beina- grindur. „Undir viðbyggingunni eiga að vera grafir, það var ekki leyft að grafa þar fyrir kjallara“. Jarðsprengjusvæði Samkvæmt núverandi deiliskipulagi svæðisins á að reisa hótel á Landsímareitnum þar sem stærri viðbygging Pósts og Síma átti að rísa fyrir hálfri öld. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út 15. september og ef framkvæmdin verður ekki stöðv- uð eru áætluð verklok vorið 2018. Félagið Lindarvatn, sem er í eigu Iceland Air, sótti um leyfi til Minjastofnunar um að grafa bein- in upp. Það leyfi var veitt og Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur sá um uppgröftinn. Vala segir alla hafa gert sér grein fyrir því að þetta væri viðkvæmt mál. Hún segir: „Í upphafi var það gert algerlega skýrt, því að allir vissu við hverju mátti búast, að ef það yrði tilefni til að hætta eða minnka svæðið þá væri það ákvörðun Minjastofnun- ar.“ Vala telur eina af meginástæð- unum fyrir leyfisveitingunni vera slæmt ástand garðsins. „Í minni heimildarvinnu sá ég hvað var búið að fara illa með garðinn í gegnum tíðina.“ Grafir voru fjar- lægðar þegar styttunni af Skúla fógeta var komið fyrir, þarna voru settar jarðsprengjur og mikið rask þegar hús Schierbecks var reist. Reglurnar eru skýrar þegar kemur að uppgreftri jarðneskra minja. Eftir 70 ár má færa þær um set og ef það er gert eru beinin færð Þjóðminjasafninu. Vala segir að þetta sé ekkert einstakt mál. „Á sama tíma er verið að setja upp stórskipahöfn á Dysnesi í Eyjafirði þar sem er verið að fjarlægja kuml frá 9. öld og það er enginn sem reisir rönd við því. Ég sem forn- leifafræðingur á erfitt með að skilja af hverju þeir sem gagnrýna núna vilja ekki hafa jafnræði með okkar menningararfi.“ Víða um land hafi jarðneskar minjar verið fjarlægðar. Þar á meðal á Bakka þar sem heilt bæjarstæði var fjarlægt til að koma fyrir kísilverksmiðju. Skúla burt Sóknarnefnd Dómkirkjunnar hefur mótmælt fyrirhugaðri byggingu hótels á Landsímareitn- um og Marínó Þorsteinsson, for- maður nefndarinnar, hefur stað- fest að málsókn komi til greina ef ekki verður orðið við beiðninni. Grundvöllur mótmælanna er sá að Dómkirkjan sé arftaki hinnar gömlu Víkurkirkju og garðurinn tilheyri því Dómkirkjunni. Ein af þeim kröfum sem sóknarnefndin gerir er að styttan af Skúla Magnússyni fógeta, sem stendur nærri miðjum garðin- um verði færð. Helgi tekur undir þessa kröfu. „Það voru mistök að setja niður styttuna þarna því að hún lenti ofan í gömlu kirkjunni. Þetta var athugunarleysi“. Styttan var reist árið 1954 og hefur garðurinn síðan verið nefndur Fógetagarður en ekki Víkur garður. Reykjavíkurborg hefur gengist við þessum mistökum og árið 1992 var það samþykkt í borgarráði að færa styttuna um set. Það hefur hins vegar ekki enn þá verið gert. „Fólk heldur að þessi garð- ur tengist Skúla og veit ekki að þetta var kirkjugarður. Með því að færa Skúla á Ingólfstorg og breyta nafninu í Víkurgarður í stað Fógeta garður myndi fólk átta sig betur á þessu“. Það eru þó ýmis- legt í garðinum sem minnir á að þetta var kirkjugarður. Bæði eru það minningarmörk frá því um 1830 og minnismerki eftir Pál á Húsafelli sem var sett þarna árið 2000 í tilefni af 1000 ára afmæli kristnitökunnar. Sem dæmi nefnir Helgi Kvosar- skipulagið frá 1986. Þá hugsuðu engir embættismenn eða nefndir út í það að þarna hefði verið kirkju- garður. „Aðeins 20 árum eftir þessa miklu atburði árið 1966.“ n Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Helgi Þorláksson Sagnfræðingur og prófessor emiritus. Kristján Eldjárn barðist fyrir beinunum í Víkurgarði n Jarðsprengjur og símalínur í garðinum n Vilja styttuna af Skúla burt Kristján Eldjárn Þjóðminjavörður og síðar forseti lýðveldisins. Víkurgarður Styttan af Skúla fógeta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.