Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 17
Helgarblað 15. september 2017 fréttir 17 sé einfaldlega sú að ekkert sem ég hef gert var í tísku á meðan ég gerði það. Ég geri þá kröfu til minnar tónlistarinnar að í henni finnist ákveðin orka. Ef hún er ekki til staðar þá verð ég strax áhugalaus. Ég er með afar góðan mælikvarða á tónlist, sem er mjaðmirnar á mér, ef þær fara í gang og ég fer líkam- lega að telja taktinn með laginu, þá erum við á réttri leið. Þegar meló- dían er komin og ég farinn að blístra með laginu, þá get ég treyst öðru fólki til að gera það líka. Þetta eru mælikvarðarnir sem ég hef alltaf notað á lögin, mjaðmirnar á mér og blístrið.“ Hvaða lag er í uppáhaldi? Þegar Páll Óskar er beðinn um að velja á milli „barnanna“ sinna og velja sitt uppáhaldslag verður hann hugsi um stund. „Það er lag sem var á plötunni Allt fyrir ástina sem kom út árið 2007 og heitir Betra líf. Ég elska þetta lag, ég næ alltaf sömu fínu jarðtengingunni – fallegur boðskapur sem ég þarf að minna sjálfan mig á. Gríðarlega vel heppnuð melódía– skotheld popp melódía. Ég þreytist aldrei á að syngja þetta lag,“ segir Páll Óskar um lagið sem kom til hans frá Örlygi Smára og Niclas Kings, Páll Óskar gerði síðan íslenskan texta og lagið smellpassaði við hann. „Þetta var bara röð tilviljana. Ég finn það strax ef lög eru að kalla nafn mitt. Að sama skapi, ef ég fæ prufuupptökur og demó af ein- hverjum lögum sem ég tengi ekk- ert við, er ég mjög snöggur að gefa þau lög áfram til söngvara sem ég veit að geta gert þeim betri skil en ég. Ég mæli ekki með að söngvarar troði sér í lög sem þeir valda ekki, það er eins og að troða sér í spari- skó sem eru of litlir. Söngvari þarf að finna sjálfur hvort hann hefur burði til að syngja lagið eða ekki.“ Jólatónleikar og Rocky Horror taka við Páll Óskar hefur lítinn tíma fyrir annað en tónlistina og að koma fram. „Eftir tónleikana hef ég tíma til að slaka aðeins á, svo byrjar undirbúningur fyrir jólatónleika, ég verð gestur á jólatónleikum Björgvins, ég og Monika ætlum að halda jólatónleika í Háteigskirkju, það höfum við gert síðan árið 2002. Síðan hefst undirbúningur fyrir Rocky Horror í Borgarleikhúsinu, æfingar fara á fullt um áramótin og við frumsýnum 16. mars 2018.“ Þar bregður Páll Óskar sér aftur í búning Frank-N-Furter, 27 árum eftir að hann lék hann í uppfærslu Menntaskólans í Hamrahlíð árið 1991. „Oft var þörf en nú er nauðsyn,“ segir Páll Óskar að- spurður hvernig það sé að taka aft- ur þátt í Rocky Horror. „Við verðum að skoða þetta verk núna í okkar samtíma,“ segir hann með áherslu. Við, sem stöndum að þessu, ætlum inn í kjarnann á Rocky Horror- verkinu, skoða hann í krók og kring og sýna áhorfendum hann, við vilj- um gera bragðmikla Rocky Horror- sýningu. Styrkur söngleiksins felst í því að lögin eru svo brjálæðislega vel samin að þú gætir sungið þau í gallabuxum og bol og þau myndu samt svínvirka. Ég hlakka til að fara í þetta ferðalag í Borgarleikhúsinu og að fara í nýtt, kærkomið vinnu- umhverfi.“ Spurður klassísku spurningar- innar, hvenær hann muni taka aftur þátt í Eurovision, svarar Páll Óskar að hann geti ekki svarað því. „Ég veit ekki hvað Rocky Horror gengur lengi, eitt eða tvö ár. Ef ég ætla að taka þátt í Eurovision verð- ur lagið að koma fyrst, svo tekur við yfirlega ef maður ætlar að gera það vel. Fyrst og fremst þarf lagið að hafa kjöt á beinunum og sigra mig fyrst. Ef það gerist þá mun ég leggja af stað í Eurovision-ferðina.“ Löngu orðinn þjóðareign Páll Óskar er löngu orðinn þjóðar- eign og segir það ekkert mál. „Ég þarf auðvitað að taka ábyrgð á minni eigin athyglissýki og ef hún felst í því að krakkar vilji sjálfu eða áritun þá segi ég aldrei nei. Eina hættan, sem er nýtilkomin með snjallsímunum, er þegar fólk, sér- staklega á föstudags- eða laugar- dagskvöldum, búið að fá sér í glas, keyrir þétt upp að mér í umferðinni og tekur snapp eða sjálfu út um bíl- gluggann. Þetta er stórhættulegt og mér stendur ekki á sama. Ég hægi bara á mér og leyfi hinum að keyra áfram og fara.“ Listamaður og framleiðandi „Ég vissi alltaf frá því að ég var barn að ég yrði listamaður. Ég vissi ekki í hverju listsköpunin var fólgin og var svo sem slétt sama um það,“ segir Páll Óskar. „Núna held ég risatón- leika þar sem ég þarf að syngja og dansa á sama tíma, með leikræn- um tilburðum, þarf að hafa álit á búningahönnun, sitja yfir grafískri hönnun og myndböndum sem eru notuð eins og leikmynd, fara yfir útsetningar með hljómsveitar- stjóranum og liggja yfir Ísa í Senu og plotta markaðsmál. Þannig að starfið mitt núna gengur ekki út á að halda á míkrófón og syngja. Ég er algjörlega í essinu mínu að fá að hafa yfirumsjón með öllum þess- um þáttum. Þannig að rétta orðið yfir mig er að ég er framleiðandi, svokallaður „producer“, þar er mér rétt lýst. Þar líður mér best.“ Um leið og sýningin byrjar gleymir Páll Óskar sér gjörsam- lega. „Ég fæ alltaf auka orku, ein- hvern veginn í ósköpunum fyllist tankurinn alltaf og ég gef og gef af mér, tæmi tankinn eins og ég þurfi aldrei oftar að troða upp í lífinu. Ég get ekki hamið þessa orku og mig langar ekki til þess.“ Langbesta lífernið er reglusamt líferni Sjö til átta klukkustunda svefn á dag dugar Páli Óskari til að halda orkunni, hann lyftir líka tvisvar í viku og hugsar um mataræðið. „Ég nota giggin eins og brennslutíma. Langbesta lífernið er reglusamt líf- erni, alveg sama hver reglan er, þú finnur hana bara fyrir sjálfan þig. Ef ég finn að skrokkurinn er þreyttur þá kann ég upphitunar- aðferðir til að hita hann upp, sem og röddina. Ekkert ósvipað og box- arinn sem fer í hringinn og allur heimurinn er að horfa á, þótt bar- daginn taki bara þrjár mínútur, þá er hann allan daginn að undirbúa sig. Sama geri ég á tónleikadegi, um leið og ég vakna eru tónleik- arnir byrjaðir; þannig verð ég að nálgast þetta. Út af þessum ströngu umgengnisreglum við sjálfan mig þá tekst mér að vinna þetta starf og hefur tekist það í jafnmörg ár og raun ber vitni. Þetta hefst ekki öðruvísi, ég get ekki gert þetta í einhverju flippi,“ segir Páll Óskar kankvís. n Páll Óskar er löngu orðinn þjóðareign, afkastamikill og athafnasamur. Stífar dansæfingar „Við erum búin að dansa fimm tíma á dag eftir vinnu, þannig að maður er aðeins lúinn þegar maður kemur heim.“ Snemma beygist krókurinn Páll Óskar orð inn dj þriggja ára. Kórdrengur Tólf ára kórdrengur í Skálholtskirk ju. „ Fann á ný betra líf Af því ég fór loks að trúa því Að það væri eitthvað annað Eitthvað meir og miklu stærra – ÚR Laginu BetRa Líf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.