Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 44
Neysla svokallaðra orkudrykkja hefur færst mjög í auk- ana á síðustu árum. En úr hverju eru þessir drykkir gerðir og hvaða áhrif hafa þeir á líkamann? Helsti munurinn á orku og íþróttadrykkjum er sá að íþróttadrykkir innihalda ekki bara „orku“ heldur líka sölt sem eiga að viðhalda vökvajafn- vægi. Innihaldsefni orkudrykkja eru einföld (og flókin) kolvetni (t.d. frúktósi og glúkósi), koffein, guarana, gingseng, maté, ginkgó, taurin og schisandra. Þessi efni eru yfirleitt eitt þriggja: Efni sem gefa orku eins og til dæmis glúkósa, örvandi efni eins og til dæmis koffein og/eða amínó- sýrur sem geta haft ýmis áhrif, til dæmis á orkubú- skap- inn. Örvandi, þvagræsandi og og eykur hjartslátt Koffein verkar örvandi á miðtaugakerfið. Það er sú verkun sem flestir sækjast í við notkun koffeins, hvort sem það er í kaffi eða öðru formi. Aðrar verkan- ir koffeins eru til dæmis þær að það örvar hjartslátt, virkar þvagræsandi á nýru og slakar á sléttum vöðvum eins og til dæmis berkjum. Koffeininnihald í ýms- um drykkjum getur verið töluvert en hér á eftir er tafla frá Hollustu- vernd ríkisins um koffeininnihald nokkurra drykkja: Eins og sjá má á þessari töflu er mjög mikið magn af koffeini í kaffi en það er vissulega mismikið eftir styrkleika og kaffitegund. Koffein er flokkað sem lyf og er leyfilegt hámarks- magn þess í drykkjarvörum 135 mg/l. Þannig að ef kæmi kaffi fram á sjónarsviðið í dag yrði það ekki leyft. Gætið þess að drekka ekki of mikið kaffi Koffein hefur áhrif á mið- taugakerfið og dregur úr þreytu og sleni. Einstak- lingar eru mjög misnæmir fyrir koffeini en mikil neysla (um 1 g af koff- eini) getur hins vegar valdið vanlíðan, óþægind- um í maga, svefnleysi, krömpum, æs- ingi, hraðri öndun, uppköstum, hraðtakti hjarta og hjartsláttartruflunum svo eitthvað sé nefnt. Eitrunareinkenni af völdum koffeins eru hins vegar mjög fátíð og neysla á koffeini virðist ekki stuðla að krabbameini eða hjarta- og æðasjúkdómum. Talið er að banvænir skammtar fyrir fullorðna séu um 5–10 g. Faralds- fræðilegar rannsóknir hafa sýnt fram á að mikil kaffineysla á með- göngu (meira en 6 bollar á dag) geti stuðlað að fósturláti og minni fæðingarþyngd nýbura. Hefur þar m.a. verið sýnt fram á að niður- brotstími koffeins er mun lengri hjá ófrískum konum en öðrum einstaklingum. Önnur efni sem innihalda koffein Guarana er þurrkað duft búið til úr krömdum plöntufræjum og inniheldur mikið koffein eða um 3–5% af þurrvikt. Til samanburðar innihalda kaffibaunir um 1–2% af þurrvikt og telauf um 1–4% af þurrvikt. Guarana inniheldur önnur efni eins og theophyllin, theobrómín og tannín. Auka- og eiturverkanir eru svipaðar og af koffeini. Maté hefur verið kallað „náttúrulegt“ koffein en það er unnið úr blöðum plöntunnar Ilex paraguariensis. Koffeininnihald þess er um 0,6% af þurrvikt. Önn- ur innihaldsefni eru t.d. theophyll- in, theobrómín og tannín auk fleiri efna. Auka- og eiturverkanir eru álíka og af koffeini en einnig er aukin hætta á krabbameini í vélinda (tannín?), lifrarsjúkdóm- um og andkólínergum eituráhrif- um vegna belladonna alkalóíða mengunar. Schisandra eru þurrkuð aldin plöntunnar Schisandra chinensis. Hefðbundin notkun þess er við hósta og öndunarfærasjúkdómum. Aukaverkanir eru ekki vel rann- sakaðar og eru því lítið þekktar. Vegna áhrifa á ensímvirkni í bæði lifur og meltingarvegi er líklegt að schisandra geti milliverkað við ýmis lyf en það er ekki vitað enn. Taurin (amínósýra) er sindurvari og verndar hjartavöðvann, hefur áhrif á jónagöng og flutning um himnur. Hafa ber í huga að fólk sem er viðkvæmt fyrir koffeini ætti ekki að neyta orkudrykkja og að orkudrykkir eru alls ekki ætlaðir börnum. „Hafa ber í huga að fólk sem er viðkvæmt fyrir koffeini ætti ekki að neyta orku- drykkja og að orku- drykkir eru alls ekki ætlaðir börnum. Drykkur Magn koffeins í Dl af tilbúnuM Drykk Magn koffeins í einni neyslueiningu Kaffi 65 mg 100 mg (í bolla 1,5 dl) Te 28 mg 70 mg (í könnu 2,5 dl) Kakó 7 mg 18 mg (í könnu 2,5 dl) Kólagosdrykkur 10 mg 50 mg (í 1/2 lítra) Orkudrykkur 13-32 mg 32-80 mg (í dós 2,5 dl) Um áhrif orkudrykkja á líkamann og taugakerfið koffein getur valDið æsingi Koffein hefur áhrif á miðtauga- kerfið og dregur úr þreytu og sleni. Einstaklingar eru mjög misnæmir fyrir koffeini en mikil neysla (um 1 g af koffeini) getur hins vegar valdið vanlíð- an, óþægindum í maga, svefnleysi, krömpum, æsingi, hraðri öndun, uppköstum, hraðtakti hjarta og hjartsláttartruflunum svo eitthvað sé nefnt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.