Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Qupperneq 44
Neysla svokallaðra orkudrykkja hefur færst mjög í auk-
ana á síðustu árum. En úr hverju eru þessir drykkir gerðir
og hvaða áhrif hafa þeir á líkamann?
Helsti munurinn á orku og íþróttadrykkjum er sá að íþróttadrykkir innihalda
ekki bara „orku“ heldur líka sölt
sem eiga að viðhalda vökvajafn-
vægi.
Innihaldsefni orkudrykkja
eru einföld (og flókin) kolvetni
(t.d. frúktósi og glúkósi), koffein,
guarana, gingseng, maté, ginkgó,
taurin og schisandra. Þessi efni
eru yfirleitt eitt þriggja:
Efni sem gefa orku
eins og til dæmis
glúkósa, örvandi
efni eins og til
dæmis koffein
og/eða amínó-
sýrur sem geta
haft ýmis áhrif,
til dæmis á
orkubú-
skap-
inn.
Örvandi,
þvagræsandi og
og eykur hjartslátt
Koffein verkar örvandi á
miðtaugakerfið. Það er sú verkun
sem flestir sækjast í við notkun
koffeins, hvort sem það er í kaffi
eða öðru formi. Aðrar verkan-
ir koffeins eru til dæmis þær
að það örvar hjartslátt, virkar
þvagræsandi á nýru og slakar á
sléttum vöðvum eins og til dæmis
berkjum. Koffeininnihald í ýms-
um drykkjum getur verið töluvert
en hér á eftir er tafla frá Hollustu-
vernd ríkisins um koffeininnihald
nokkurra drykkja:
Eins og sjá
má á þessari töflu er mjög mikið
magn af koffeini í kaffi en það er
vissulega mismikið eftir styrkleika
og kaffitegund. Koffein er flokkað
sem lyf og er leyfilegt hámarks-
magn þess í drykkjarvörum 135
mg/l. Þannig að ef kæmi kaffi
fram á sjónarsviðið í dag yrði það
ekki leyft.
Gætið þess að drekka ekki of
mikið kaffi
Koffein hefur áhrif á mið-
taugakerfið og dregur úr
þreytu og sleni. Einstak-
lingar eru mjög
misnæmir
fyrir koffeini
en mikil
neysla (um 1
g af koff-
eini) getur
hins vegar
valdið
vanlíðan,
óþægind-
um í maga,
svefnleysi,
krömpum, æs-
ingi,
hraðri
öndun, uppköstum, hraðtakti
hjarta og hjartsláttartruflunum
svo eitthvað sé nefnt.
Eitrunareinkenni af völdum
koffeins eru hins vegar mjög
fátíð og neysla á koffeini virðist
ekki stuðla að krabbameini eða
hjarta- og æðasjúkdómum. Talið
er að banvænir skammtar fyrir
fullorðna séu um 5–10 g. Faralds-
fræðilegar rannsóknir hafa sýnt
fram á að mikil kaffineysla á með-
göngu (meira en 6 bollar á dag)
geti stuðlað að fósturláti og minni
fæðingarþyngd nýbura. Hefur þar
m.a. verið sýnt fram á að niður-
brotstími koffeins er mun lengri
hjá ófrískum konum en öðrum
einstaklingum.
Önnur efni sem innihalda koffein
Guarana er þurrkað duft búið til
úr krömdum plöntufræjum og
inniheldur mikið koffein eða um
3–5% af þurrvikt. Til samanburðar
innihalda kaffibaunir um 1–2%
af þurrvikt og telauf um 1–4%
af þurrvikt. Guarana inniheldur
önnur efni eins og theophyllin,
theobrómín og tannín. Auka- og
eiturverkanir eru svipaðar og af
koffeini.
Maté hefur verið kallað
„náttúrulegt“ koffein en það er
unnið úr blöðum plöntunnar Ilex
paraguariensis. Koffeininnihald
þess er um 0,6% af þurrvikt. Önn-
ur innihaldsefni eru t.d. theophyll-
in, theobrómín og tannín auk
fleiri efna. Auka- og eiturverkanir
eru álíka og af koffeini en einnig
er aukin hætta á krabbameini í
vélinda (tannín?), lifrarsjúkdóm-
um og andkólínergum eituráhrif-
um vegna belladonna alkalóíða
mengunar.
Schisandra eru þurrkuð aldin
plöntunnar Schisandra chinensis.
Hefðbundin notkun þess er við
hósta og öndunarfærasjúkdómum.
Aukaverkanir eru ekki vel rann-
sakaðar og eru því lítið þekktar.
Vegna áhrifa á ensímvirkni í bæði
lifur og meltingarvegi er líklegt
að schisandra geti milliverkað við
ýmis lyf en það er ekki vitað enn.
Taurin (amínósýra) er sindurvari
og verndar hjartavöðvann, hefur
áhrif á jónagöng og flutning um
himnur.
Hafa ber í huga að fólk sem
er viðkvæmt fyrir koffeini ætti
ekki að neyta orkudrykkja og að
orkudrykkir eru alls ekki ætlaðir
börnum.
„Hafa ber í
huga að fólk
sem er viðkvæmt
fyrir koffeini ætti
ekki að neyta orku-
drykkja og að orku-
drykkir eru alls ekki
ætlaðir börnum.
Drykkur Magn koffeins í Dl
af tilbúnuM Drykk
Magn koffeins í einni
neyslueiningu
Kaffi 65 mg 100 mg (í bolla 1,5 dl)
Te 28 mg 70 mg (í könnu 2,5 dl)
Kakó 7 mg 18 mg (í könnu 2,5 dl)
Kólagosdrykkur 10 mg 50 mg (í 1/2 lítra)
Orkudrykkur 13-32 mg 32-80 mg (í dós 2,5 dl)
Um áhrif orkudrykkja á
líkamann og taugakerfið
koffein getur valDið æsingi Koffein hefur áhrif á miðtauga-
kerfið og dregur úr þreytu og sleni. Einstaklingar eru mjög misnæmir fyrir
koffeini en mikil neysla (um 1 g af koffeini) getur hins vegar valdið vanlíð-
an, óþægindum í maga, svefnleysi, krömpum, æsingi, hraðri öndun,
uppköstum, hraðtakti hjarta og hjartsláttartruflunum svo eitthvað sé nefnt.