Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Blaðsíða 51
KYNNING
Hof er lítil en blómleg fasteignasala þar sem lítill hópur starfar náið
saman og myndar þétt og
gott teymi. Hof er með aðsetur
að Hlíðarsmára 6 í Kópavogi.
Á stofunni starfa tveir reynslu
boltar, þeir Guðmundur Stein
þórsson og Jón Guðmunds
son, sem hvor um sig hefur um
30 ára reynslu í faginu. Við
hlið þeirra eru síðan tveir ungir
og upprennandi fasteigna
salar, Evert Guðmundsson og
Elsa Alexanders dóttir. Tekið
var hús á Hofi og spjallað við
unga starfsfólkið, þau Elsu og
Evert.
Elsa Alexandersdóttir:
Tók U-beygju í lífinu
Elsa Alexandersdóttir breytti
um stefnu í lífinu fyrir rúmum
þremur árum og hófst þá
ferli sem leiddi til þess að hún
gerðist fasteignasali. Elsa er
með sveinspróf í kjólasaumi
og starfaði við það merka fag
fram til ársins 2014 þegar
hún ákvað að breyta til.
„Ég starfaði við kjólasaum
frá 2010 til 2014 þegar ég
ákvað að taka Ubeygju
í lífinu og innritaði mig í
viðskipta og hagfræði
deild Keilis. Ári síðar fór ég
að starfa sem ritari á fast
eignasölu og hóf í kjölfarið
nám til löggildingar í fast
eignasölu, sem ég lauk í vor.
Ég fór síðan úr ritaranum yfir
í skjalagerð en núna er ég
komin yfir í fasteignasölu og
sinni skjalagerðinni samhliða
henni,“ segir Elsa.
Að sögn Elsu var markað
urinn á mikilli uppleið er hún
kom inn í fagið en síðan kom
sprenging í söluna í vetur
sem varði fram á vor: „Þetta
róaðist í sumar en ég hef á
tilfinningunni að markaðurinn
sé að taka aftur við sér núna
í haust, en ekki með sömu
látum og var í fyrravetur. Ég
held að markaðurinn verði
líflegri í vetur en það verður
líklega ekki eins mikil hreyfing
og í fyrravetur.“
Elsa segir að mannleg
samskipti séu einn mikil
vægasti þátturinn í starfi
fasteignasalans: „Þetta er
afskaplega skemmtilegt og
lifandi starf. Oft er verið
að eiga við aleigu fólks og
hvílir mikil ábyrgð á því að
sýna fagmennsku og tryggja
að allt fari rétt fram. Það
er heillandi að fylgja fólki
í gegnum þessi tímamót
þegar það er að skipta um
heimili.“
Elsa býr í Reykjavík og
á tvær dætur, fjögurra og
fjórtán ára. Nýtt áhugamál
hefur nú fangað huga Elsu
en hún eignaðist mótorhjól
fyrir stuttu. Hún er að læra
á hjólið og hlakkar til að ljúka
prófinu svo hún geti farið að
þeysa um á fáknum sér til
ánægju.
Hvað önnur áhugamál
snertir segist Elsa einfald
lega njóta þess að vera með
dætrum sínum tveimur auk
þess sem hún hefur gaman
af útivist og hreyfingu.
Evert Guðmundsson:
Kornungur fasteignasali og
faðir
Evert Guðmundsson er
fæddur árið 1993 og lauk
hann námi til löggildingar
í fasteignasölu frá Endur
menntun Háskóla Íslands í
fyrravor. Evert hefur lengi
verið viðloðandi fasteigna
bransann því eigandi Hofs
fasteignasölu, Guðmundur
Steinþórsson, er faðir hans,
og samstarfsmaður hans,
Jón Guðmundsson, er Evert
líka að góður kunnur.
„Pabbi og Jón hafa unnið
lengi saman og þar sem
þeir vörðu líka ávallt miklum
tíma saman utan vinnu ólst
ég upp við Jón í umhverfi
mínu líka,“ segir Evert. Það
er því ekki að undra að þessi
litli, fjögurra manna hópur á
Hofi fasteignasölu sé þéttur
og samheldinn, auk þess
að vera svo skemmtilega
samsettur að þarna séu tveir
reynsluboltar og tvær ungar
og ferskar manneskjur.
Evert hóf störf við fast
eignasölu í desember 2015
og segir hann markaðinn
hafa breyst mikið á þessum
stutta tíma: „Þegar ég byrj
aði var markaðurinn dálítið
erfiður og það tók nokkuð
langan tíma að selja eignir.
Ég man til dæmis að það
var töluverður barningur að
koma fyrstu eigninni sem
ég seldi í gegnum sölu. En
síðan fór salan að aukast og
eignir stöldruðu styttra við
á borðinu hjá manni. Þetta
endaði í miklu spennuástandi
á seljendamarkaði – frá
áramótum og framundir vor,
þar sem aðalvandinn tók að
snúast um að fá eignir í sölu,
því allt seldist strax, og verðið
hækkaði og hækkaði. Síðan
kom nánast stopp í sumar
en ég hef á tilfinningunni að
markaðurinn sé að taka við
sér aftur núna.“
Eins og aðrir fasteigna
salar segir Evert að starfið
snúist fyrst og fremst um
mannleg samskipti: „Það er
mikilvægt að vera traustvekj
andi og hress, laða fram alla
góða kosti sem maður kann
að hafa. Alls konar fólk kemur
hingað og það er gaman að
kynnast ólíku fólki.“
Þrátt fyrir ungan aldur á
Evert sína eigin íbúð. Hann
er jafnframt faðir þriggja
ára drengs sem hann ver að
sjálfsögðu miklum tíma með.
En hvað um áhugamálin? „Ég
er með létta bíladellu og líka
mótorhjóladellu,“ segir Evert
og deilir þar áhugamáli með
kollega sínum, Elsu. „Ég er að
gera upp gamalt mótorhjól,“
segir Evert en hann spilar
auk þess fótbolta einu sinni í
viku og æfir crossfit.
Fasteignasala snýst
um mannleg samskipti
Evert og Elsa.
Mynd Brynja