Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Síða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Síða 51
KYNNING Hof er lítil en blómleg fasteignasala þar sem lítill hópur starfar náið saman og myndar þétt og gott teymi. Hof er með aðsetur að Hlíðarsmára 6 í Kópavogi. Á stofunni starfa tveir reynslu­ boltar, þeir Guðmundur Stein­ þórsson og Jón Guðmunds­ son, sem hvor um sig hefur um 30 ára reynslu í faginu. Við hlið þeirra eru síðan tveir ungir og upprennandi fasteigna­ salar, Evert Guðmundsson og Elsa Alexanders dóttir. Tekið var hús á Hofi og spjallað við unga starfsfólkið, þau Elsu og Evert. Elsa Alexandersdóttir: Tók U-beygju í lífinu Elsa Alexandersdóttir breytti um stefnu í lífinu fyrir rúmum þremur árum og hófst þá ferli sem leiddi til þess að hún gerðist fasteignasali. Elsa er með sveinspróf í kjólasaumi og starfaði við það merka fag fram til ársins 2014 þegar hún ákvað að breyta til. „Ég starfaði við kjólasaum frá 2010 til 2014 þegar ég ákvað að taka U­beygju í lífinu og innritaði mig í viðskipta­ og hagfræði­ deild Keilis. Ári síðar fór ég að starfa sem ritari á fast­ eignasölu og hóf í kjölfarið nám til löggildingar í fast­ eignasölu, sem ég lauk í vor. Ég fór síðan úr ritaranum yfir í skjalagerð en núna er ég komin yfir í fasteignasölu og sinni skjalagerðinni samhliða henni,“ segir Elsa. Að sögn Elsu var markað­ urinn á mikilli uppleið er hún kom inn í fagið en síðan kom sprenging í söluna í vetur sem varði fram á vor: „Þetta róaðist í sumar en ég hef á tilfinningunni að markaðurinn sé að taka aftur við sér núna í haust, en ekki með sömu látum og var í fyrravetur. Ég held að markaðurinn verði líflegri í vetur en það verður líklega ekki eins mikil hreyfing og í fyrravetur.“ Elsa segir að mannleg samskipti séu einn mikil­ vægasti þátturinn í starfi fasteignasalans: „Þetta er afskaplega skemmtilegt og lifandi starf. Oft er verið að eiga við aleigu fólks og hvílir mikil ábyrgð á því að sýna fagmennsku og tryggja að allt fari rétt fram. Það er heillandi að fylgja fólki í gegnum þessi tímamót þegar það er að skipta um heimili.“ Elsa býr í Reykjavík og á tvær dætur, fjögurra og fjórtán ára. Nýtt áhugamál hefur nú fangað huga Elsu en hún eignaðist mótorhjól fyrir stuttu. Hún er að læra á hjólið og hlakkar til að ljúka prófinu svo hún geti farið að þeysa um á fáknum sér til ánægju. Hvað önnur áhugamál snertir segist Elsa einfald­ lega njóta þess að vera með dætrum sínum tveimur auk þess sem hún hefur gaman af útivist og hreyfingu. Evert Guðmundsson: Kornungur fasteignasali og faðir Evert Guðmundsson er fæddur árið 1993 og lauk hann námi til löggildingar í fasteignasölu frá Endur­ menntun Háskóla Íslands í fyrravor. Evert hefur lengi verið viðloðandi fasteigna­ bransann því eigandi Hofs fasteignasölu, Guðmundur Steinþórsson, er faðir hans, og samstarfsmaður hans, Jón Guðmundsson, er Evert líka að góður kunnur. „Pabbi og Jón hafa unnið lengi saman og þar sem þeir vörðu líka ávallt miklum tíma saman utan vinnu ólst ég upp við Jón í umhverfi mínu líka,“ segir Evert. Það er því ekki að undra að þessi litli, fjögurra manna hópur á Hofi fasteignasölu sé þéttur og samheldinn, auk þess að vera svo skemmtilega samsettur að þarna séu tveir reynsluboltar og tvær ungar og ferskar manneskjur. Evert hóf störf við fast­ eignasölu í desember 2015 og segir hann markaðinn hafa breyst mikið á þessum stutta tíma: „Þegar ég byrj­ aði var markaðurinn dálítið erfiður og það tók nokkuð langan tíma að selja eignir. Ég man til dæmis að það var töluverður barningur að koma fyrstu eigninni sem ég seldi í gegnum sölu. En síðan fór salan að aukast og eignir stöldruðu styttra við á borðinu hjá manni. Þetta endaði í miklu spennuástandi á seljendamarkaði – frá áramótum og framundir vor, þar sem aðalvandinn tók að snúast um að fá eignir í sölu, því allt seldist strax, og verðið hækkaði og hækkaði. Síðan kom nánast stopp í sumar en ég hef á tilfinningunni að markaðurinn sé að taka við sér aftur núna.“ Eins og aðrir fasteigna­ salar segir Evert að starfið snúist fyrst og fremst um mannleg samskipti: „Það er mikilvægt að vera traustvekj­ andi og hress, laða fram alla góða kosti sem maður kann að hafa. Alls konar fólk kemur hingað og það er gaman að kynnast ólíku fólki.“ Þrátt fyrir ungan aldur á Evert sína eigin íbúð. Hann er jafnframt faðir þriggja ára drengs sem hann ver að sjálfsögðu miklum tíma með. En hvað um áhugamálin? „Ég er með létta bíladellu og líka mótorhjóladellu,“ segir Evert og deilir þar áhugamáli með kollega sínum, Elsu. „Ég er að gera upp gamalt mótorhjól,“ segir Evert en hann spilar auk þess fótbolta einu sinni í viku og æfir crossfit. Fasteignasala snýst um mannleg samskipti Evert og Elsa. Mynd Brynja

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.