Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Page 35

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Page 35
Veitingastaðir 3Helgarblað 15. september 2017 KYNNINGARBLAÐ VON Mathús: Ljúfar stundir í hjarta Hafnarfjarðar Laxavafflan Úrvals fiskur Einar og Kristjana Veitingahúsið VON Mathús var opnað af þeim Einari Hjaltasyni og Kristjönu Þuru í Hafnarfirði árið 2015 og hefur reksturinn gengið vonum framar. Einar er sannkallaður reynslubolti og margrómaður matreiðslu- maður sem útskrifaðist af Grillinu á Hótel Sögu og kom að opnun háklassa veitinga- staðar í London sem hlaut Michelin-stjörnu. Kristjana hefur einnig verið viðloðandi veitinga- og hótelgeirann í um tíu ár og svo er hún Hafn- firðingur í húð og hár. „Við verðum tveggja ára í des- ember og þetta heldur bara áfram að dafna hjá okkur,“ segir Kristjana. Allt það ferskasta Matseðill VON Mathúss á kvöldin og í hádeginu er alla jafna stuttur og árstíða- bundinn og tekur ávallt mið af því sem er ferskast hverju sinni, hvort sem um fisk eða grænmeti er að ræða. Matseðlinum er svo breytt á 2–3 mánaða fresti og allt hráefni er í mestu mögu- legu gæðum. Fiskinn kaupir VON Mathús frá Hafinu og kjötið frá SS og því er hvort tveggja ætíð íslenskt hrá- efni. „Við leggjum upp úr því að nota ferskt íslenskt hráefni og er allt unnið frá grunni. Enn fremur bökum við okkar eigið brauð alla morgna, sem hefur vakið mikla lukku,“ segir Kristjana. Ásamt sérstökum barnaréttum á matseðlinum er hægt að fá alla rétti í skammtastærðum fyrir börn. Einnig er hægt að fá græn- metis- eða veganrétti bæði í aðalrétt eða í samsettum seðlum. Ekta bröns, magnaðar vöfflur og fiskur dagsins Um helgar fæst ekta bröns í hádeginu hvort sem um er að ræða hádegisverðarplatta eða fjölskylduhlaðborð. Að auki er boðið upp á vöfflur með ýmsu spennandi meðlæti og er laxavafflan langvinsælust á bröns- seðlinum, að sögn Kristjönu. Vöffludeigið er vegan og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Einnig er hægt að fá fisk dags- ins. Helgarbröns væri varla fullkomnaður ef ekki væri boðið upp á mímósur eða dásamlega súrsætt límonaði. Helgarbröns er hægt að fá á laugardögum og sunnudög- um frá 11.30–14 og mælt er með borðapöntun. Alla þriðjudaga–föstu- daga, milli kl. 11.30–14.00, er boðið upp á súpu, salat, ferskan fisk og kjötrétt, sem auglýst er daglega á Facebook- síðunni. „Við erum mjög virk á samfélags- miðlunum okkar og þar er hægt að fylgjast með okkar daglegu verkum,“ segir Kristjana. Þá er boðið upp á það ferskasta sem fæst hverju sinni og tekur matseðillinn mið af því. Hafnarfjörður hefur lifnað við Sumir telja að Hafnarfjörður sé mjög langt frá miðborginni og því ekki besti staðurinn til þess að opna veitingastað á, en Kristjana og Einar eru því algerlega ósammála. „Það er ekki nema tíu mínútna akstur, korter í versta falli, frá Vestur- bænum og inn í Hafnarfjörð. Hér eru líka ætíð næg bíla- stæði og Hafnarfjörðurinn er að auki svo fallegur og nota- legur staður. Á VON Mathúsi er fallegt útsýni yfir smábáta- höfnina, sanngjarnt verð og mikil gæði,“ segir Kristjana. „Það er dásamlegt að sjá mannlífið blómstra hér í mið- bænum í Hafnarfirði, eins og það hefur gert hér undanfar- in ár. Ný kaffihús og veitinga- hús, Bæjarbíó og fleira skemmtilegt glæða bæinn miklu lífi og hér er gaman að starfa,“ segir Kristjana Þura að lokum. VON Mathús er til húsa að Strandgötu 75, 220 Hafnar firði. Opnunartími: Frá 11.30–14.00 og 17.30–21.00 alla daga nema mánudaga en þá er lokað; auk þess er lokað á sunnudagskvöld- um. Sími: 583-6000. Email: info@vonmathus.is. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu VON Mathúss, von- mathus.is, og á Facebook- síðunni. Einnig eru þau með Instagram-síðuna VON Mathús&Bar. Brauð bakað á staðnum á hverjum morgni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.