Fréttablaðið - 21.10.2017, Blaðsíða 10
Átt þú sumarhús eða íbúð sem þú vilt leigja?
Orlofssjóður BHM óskar eftir að taka á leigu sumarhús eða íbúðir
um land allt og annars staðar í Evrópu til að framleigja til
sjóðfélaga sumarið 2018.
Húsnæðið þarf að vera í mjög góðu ástandi, fullbúið húsgögnum
og öðrum viðeigandi húsbúnaði. Þar þarf jafnframt að vera pláss
fyrir 6–8 manns í gistingu.
Áhugasamir húseigendur sendi tölvupóst með
myndum af eigninni á obhm@bhm.is. Fram
komi upplýsingar um staðsetningu, bygg-
ingarár, ástand, stærð, fjölda svefnplássa og
hugmyndir um leiguverð.
LLA-308
PRO álstigi 3x8 þrep
2,27-5,05 m
18.990
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Tröppur og stigar
LLA-211
PRO álstigi/trappa
2x11 þrep
16.990
Áltrappa 4 þrep 4.940
5 þrep 6.390
Áltrappa 3 þrep
3.990
Í ÖLLUM
STÆRÐUM
OG GERÐUM
A015-105
Áltrappa fyrir fagmaninn
m/vinnuborði. 5 þrep.
16.790
6 þrepa 19.750,-
7 þrepa 21.730,-
MARAÞON NOW OG
11GB Á 3.990 KR.*
*á mánuði
Stjórnun Stjórnunaraðferðir fyrir-
tækja nútímans hafa þróast frá byrj-
un síðustu aldar. Aðferðafræði sem
beitt var í hernaði var snúið upp á
stjórnun fyrirtækja. Á þetta bendir
Christian Ørsted, danskur stjórn-
unarráðgjafi, sem var staddur hér á
landi til að tala á ráðstefnu á vegum
Sensa um breytta stjórnunarhætti.
Christian er höfundur metsölu-
bókarinnar Livsfarlig ledelse, eða
Lífshættuleg stjórnun.
„Áherslan er að auka framleiðni
og það virðist alltaf vera svarið við
öllum vandamálum. Afleiðingin er
hins vegar meiri streita. Á vinnu-
staðnum, í fjölskyldunni og í sam-
félaginu öllu,“ segir Christian.
„Ég hef starfað við ráðgjöf til
stjórnenda í tuttugu ár. Ég gaf
stjórnendum net- og tæknifyrir-
tækja ráð. Mikið af ungu fólki fékk
aukna ábyrgð á þessum tíma. Ég
komst seinna að því að mörg þeirra
vandamála sem ég var kallaður
til að leysa voru vegna fyrirtækja-
menningar en ekki vegna tregðu
stjórnenda til að innleiða breyting-
ar,“ segir Christian frá. „Á þessum
tíma datt mér ekki í hug að stjórn-
endur sýndu tregðu við að innleiða
breytingar vegna þess að þær væru
hreinlega illa hugsaðar.“
Christian lærði af reynslunni.
„Þessi bók er játning stjórnenda-
ráðgjafa. Hún er byggð á mistökum
sem ég hef gert.“
En hver eru þá helstu mistökin?
„Ég skoða fjórar mýtur um stjórn-
un. Mýtu um hvatningu starfsfólks,
hvernig við metum hvert annað og
árangur í starfi, mýtu um teymis-
vinnu og mýtu um þróun í starfi. Ég
tek það fram að ég er ekki á móti því
að starfsfólk sé hvatt áfram, að það
sé metið að verðleikum eða teymis-
vinnu. Ég er að benda á mistök sem
við gerum þegar við framkvæmum
þessa þætti í stjórnun og verða til
þess að fólk brennur út.
Við tölum ekki um þessar auka-
verkanir nútímastjórnunar. Við
viljum að allir sinni starfi sínu af
ástríðu, líði vel, finnist þeir metnir
að verðleikum. En við erum ekki að
horfa til þeirra fórna sem fólk færir.
Þess álags sem fólk er undir og veld-
ur því skaða. Og stundum er vinnu-
semin bara of mikil. Fólk hleypur
hraðar og hraðar en kemst ekki í
mark. Það er að hlaupa í vitlausa átt.
Það missir sköpunargleðina.
Ég hef tekið þátt í því að hvetja
til þessarar fyrirtækjamenningar.
Það sem við erum til dæmis að
gera rangt er að hlusta ekki nægi-
lega á þá kyrrlátu í fyrirtækinu. Þá
sem skila góðu starfi, eru tryggir
og hæfir en hafa sig ekki í frammi.
Ef til vill hafa þeir efasemdir um
stefnu fyrirtækisins og verkefni. Það
skiptir miklu máli að hlusta á þetta
starfsfólk. Ég hef komist að því að
þeir sem eru afar hæfir í starfi sínu
hafa efasemdir og skynja betur en
aðrir áhrif breytinga í fyrirtækinu,“
segir Christian og segir mikilvægt
fyrir stjórnendur að hlúa þannig að
fyrirtækjamenningu að öllu starfs-
fólki líði vel með að ræða verkefni
sín, hugmyndir og efasemdir.
„En það gerum við ekki yfirleitt.
Við lofum sjálfsöryggi og hraða. Það
er eitruð fyrirtækjamenning. Það
má líka greina þetta í pólitíkinni,
þar treystum við á sjálfsörugga
stjórnmálamenn. Það þykir ekki
fínt fyrir stjórnmálamenn að efast.
En það er í raun og veru skelfilegt
til þess að hugsa að efasemdir og
gagnrýni á eigin stefnu þyki ekki
eðlilegur hlutur. Enda lifum við í
flóknu umhverfi.“
En hvað er það mikilvægasta sem
stjórnandi getur gert? „Ég hef verið
þráspurður að þessu. Besta ráðið sem
ég get gefið er að vera opinn fyrir fólki,
vanda sig við að skoða allar hliðar,
tala ekki alltaf við sama fólkið. Sýna
starfsfólki raunverulega umhyggju.
Vera forvitinn um lausnir. Líka þegar
illa gengur. Þegar starfsfólki er hrósað
dugar að vera einlægur og nákvæmur.
Hrósa framtaki fremur en niðurstöðu
eða eiginleikum. Að viðurkenna að
þótt teymisvinna sé verðmæt geti
hún leitt til einsleitrar hugsunar.“
kristjanabjorg@frettabladid.is
Að hlaupa hraðar
og hraðar í ranga átt
Christian Ørsted, danskur stjórnunarráðgjafi og höfundur metsölubókarinnar um
lífshættulega stjórnunarhætti, er staddur hér á landi og gefur íslenskum stjórnendum
hollráð. Hann brýnir fyrir þeim að vondir stjórnunarhættir minnki árangur. Mikil-
vægt sé að gæta að sköpunargleði og hugmyndaauðgi starfsmanna fyrirtækja.
Christian segist hafa lært af mistökum sínum. Fréttablaðið/Eyþór
2 1 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A u G A r D A G u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
2
1
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
7
-8
2
5
4
1
E
0
7
-8
1
1
8
1
E
0
7
-7
F
D
C
1
E
0
7
-7
E
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
1
2
s
_
2
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K