Fréttablaðið - 21.10.2017, Qupperneq 32
Eftir að fyrstu fréttirnar birtust um tugi brota Harvey Wein-stein í gegnum árin hafa konur um allan heim stigið fram. Konur á öllum aldri hafa sagt frá kynferðislegri áreitni og
kynferðisofbeldi sem þær hafa orðið fyrir.
Myllumerkið Me Too hefur tekið yfir sam-
félagsmiðla og hugrakkar stúlkur og konur
hjálpast nú að við að sýna hvað kynferðis-
ofbeldi er stórt samfélagsvandamál.
Hildur Erla Gísladóttir var aðeins 16 ára
gömul þegar sundþjálfarinn hennar áreitti
hana fyrst. Þau voru tvö ein í bíl þar sem
hann hafði boðist til þess að keyra hana
og þrjá aðra sundmenn heim eftir æfingu.
Hann var þá 52 ára svo aldursmunurinn
á þeim var 36 ár. Þjálfaranum tókst að
brjóta Hildi Erlu gjörsamlega niður með
áreitni og kynferðislegu ofbeldi á tæpu ári,
þangað til hún loksins þorði að segja frá.
„Það eru núna tíu ár síðan þetta byrjaði,
en þetta stóð yfir í tæpt ár.“
Mun alltaf fylgja mér
Ástæðan fyrir því að Hildur Erla fann
kjarkinn, var að hún var fullviss um að
annars myndi þetta enda með nauðgun.
Ástæða þess að maðurinn er ekki nafn-
greindur hér er að hann var ekki dæmdur
fyrir sín brot. Aldrei náðist að taka skýrslu
af honum þar sem hann fór úr landi eftir
að málið kom upp.
„Ég fékk mikla og góða hjálp frá sál-
fræðingi sem aðstoðaði mig við að vinna
úr þessu, bæði strax og svo aftur, nokkrum
árum seinna. Eftir að ég eignaðist dóttur
mína, byrjaði smátt og smátt að koma yfir
mig kvíði, ekki á nokkurn hátt tengdur
henni samt. Hún er það besta sem hefur
komið fyrir mig en ég byrjaði að óttast
það sem gæti mögulega komið fyrir hana,
ótti sem eflaust væri ekki til staðar nema
vegna þess sem ég lenti í.“
Móðurhlutverkið hefur breytt Hildi
Erlu á margan hátt og ætlar hún núna að
loka þessum kafla í lífi sínu endanlega.
„Þetta mun alltaf fylgja mér, eftir öll
þessi ár er ég búin að sætta mig við það og
hef lært að lifa með því.“
Elskaði sundið
DV sagði frá uppsögn þjálfarans þegar
málið komst upp á sínum tíma en
Hildur Erla og foreldrar hennar veittu
aldrei viðtal. Hildur Erla æfði sund frá
sex ára aldri og elskaði þessa íþrótt, sér-
staklega alla vinina sem hún eignaðist
en þau voru eins og ein stór fjölskylda.
Sundþjálfarinn náði að eyðileggja ungl-
ingsár Hildar Erlu og hún lifði með sjálfs-
ásakanir, þunglyndi og kvíða í mörg
ár. Þegar hún var komin í afrekshóp í
sundinu fékk hún þar þennan nýjan
þjálfara. Hann átti eftir að hafa áhrif á
allt hennar líf og fyrstu hættumerkin
komu fram nánast frá fyrstu kynnum
þeirra. Foreldrar Hildar Erlu kvörtuðu
yfir harðneskjulegri framkomu hans
en hegðun hans var á sínum tíma alltaf
afsökuð með því að hann væri frá öðrum
menningarheimi en hann er frá Serbíu.
Voru ein í bíl saman
„Strax á þessum tíma var ég orðin mjög
hrædd við hann. Sálfræðingurinn minn
Misnotuð af sundþjálfaranum
„Hann gerði allt nema að nauðga mér,“ segir Hildur Erla Gísladóttir. Hún var sextán ára gömul þegar sundþjálfarinn
áreitti hana fyrst. Misnotkunin stóð yfir í tæpt ár og Hildur Erla, sem var komin í afrekshóp í íþróttinni, hætti að
æfa sund. Hún var niðurbrotin eftir áreitni og kynferðislegt ofbeldi þjálfarans.
„Ég sá ekki að ég gæti látið hann hætta, að ég gæti unnið hann.“ Hildur Erla Gísladóttir er flugfreyja og ljósmyndari en myndir hennar hafa meðal annars birst í Vogue. FrÉttablaðið/VilHElM
sagði mér eftir á að þetta hafi verið hans
leið til þess að byrja að brjóta mig niður
og ná mér svo á sitt vald. Svo leið tíminn
og ég var orðin algjört uppáhald hjá
honum, hann reyndi ekki einu sinni að
fela það. Hann var alltaf við mörkin hvað
varðar samskipti, hann knúsaði og kyssti
alla en fólki fannst þetta bara vera hans
persónuleiki. En svo byrjaði hann að
ganga lengra og lengra við mig.“
Þjálfarinn hafði náð að skapa aðstæð-
ur þar sem hann var einn í bíl með Hildi
Erlu á kvöldin.
„Hann stoppar bílinn og segir mér að
kyssa sig. Hann segist ekki ætla að keyra
aftur af stað fyrr en ég geri það. Ég sagði
honum að hætta og var hrædd. Ég vissi
ekkert hvað ég átti að gera. Það leið ein-
hver tími, mér fannst þetta vera svona
hálftími, og hann verður bara reiður og
pirraður. Á endanum kyssti ég hann en
þá sagði hann að ég hefði ekki gert það
nógu vel. Eftir þetta þá skutlaði hann
mér alltaf síðast heim eftir æfingar, þó
svo að það þýddi að hann þyrfti að fara
krókaleið til að skutla hinum. Hann
sagði alltaf bara við þær og aðra að hann
þyrfti að tala við mig, hjálpa mér því að
ég ætti svo rosalega erfitt og væri svo
stressuð. Hann bjó það til, hann bjó til
stressið í mér og í raunveruleikanum var
hann ástæðan fyrir því að ég var stress-
uð. Stressuð yfir hvað hann myndi gera
og hvort hann myndi ganga lengra. Líka
af því að ég var búin að reyna oft að biðja
hann um að hætta og láta hann vita að
ég vildi þetta ekki eða þá segja að ég væri
þreytt eða bara eitthvað. Hann varð bara
reiður ef ég gerði það sem hann sýndi
svo bara með því að verða ákafari. Hann
káfaði á mér allri, inn undir fötin, inn
á nærbuxurnar. Hann bannaði mér að
vera í blúndunærbuxum því honum
fannst betra að koma við hinar.“
Þjálfarinn hélt áfram að brjóta gegn
Hildi Erlu og versnaði áreitni hans með
tímanum.
„Þetta var alltaf í bílnum hans, hann
byrjar að láta mig setjast ofan á sig og
hallar sætinu aftur. Hann káfar á mér,
snertir mig alla og kyssir mig. Hann
stundi mikið og bað mig um að gera hitt
og þetta. Hann var rosalega ógeðslegur
með sítt grátt hár, mottu og hökutopp.
Ég varð alltaf eldrauð í kringum munn-
inn út af skegginu. Þetta gekk svona
áfram í einhvern tíma.“
Eftir eina æfinguna slær þjálfarinn á
afturenda Hildar Erlu fyrir utan sund-
laugina þegar fleiri úr hópnum, meðal
annars vinkona hennar og systir, voru
rétt á undan henni. Enginn tók samt
eftir neinu og Hildur Erla þorði ekki að
segja neitt.
lét hana ljúga
„Hann lét mig alltaf segja mömmu og
pabba einhverjar sögur um það af hverju
ég hafði komið svona seint heim eftir
æfingu. Hann var algjörlega kominn
með þau á sitt band með því að segja
þeim að ég væri svo stressuð og þyrfti
á meiri aðstoð að halda en hinir krakk-
arnir. Pabbi minn var meira að segja í
stjórninni í sundinu og ég man að eitt
skipti sem hann var með matarboð
heima þá var þjálfarinn heima hjá mér.
Hann labbaði fram hjá herberginu mínu,
horfði þangað inn og glotti.“
Hildur Erla segir að hann hafi alltaf
orðið ágengari og ágengari. Nokkur af
verstu brotunum áttu sér svo stað
Hann var
alltaf að
bíða þang-
að til ég
yrði 18 ára.
Hann Hefði
samt ef-
laust ekki
kallað það
nauðgun …
Hann sagði
við mig á
17 ára af-
mælinu
mínu í
ferðinni:
„Just one
more year.“
Sylvía Rut
Sigfúsdóttir
sylviarut@365.is
↣
2 1 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r32 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
1
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
7
-5
0
F
4
1
E
0
7
-4
F
B
8
1
E
0
7
-4
E
7
C
1
E
0
7
-4
D
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
1
2
s
_
2
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K