Fréttablaðið - 21.10.2017, Síða 36

Fréttablaðið - 21.10.2017, Síða 36
Það er áríðandi að breyt-ingar verði í innflytjenda-málum, sérstaklega varðandi íslenskukennslu. Ég trúi því að í landi eins og Íslandi séu breytingar mögulegar,“ segir Aneta M. Matus- zewska, skólastjóri Retor fræðslu, en Retor stendur fyrir vitundar- vakningu um notkun íslensku sem leiðandi tungumáls á vinnu- stöðum í stað ensku. Þau benda á að síðustu ár hafi innflytjendum fjölgað hratt og séu í dag 10 prósent af þjóðinni. Spár bendi til þess að eftir tíu ár geti þessi tala nálgast 20%prósent og án verulegrar stefnubreytingar í íslenskukennslu fyrir fullorðna innflytjendur muni það hafa gífurleg áhrif á málið. Íslensku- mælandi séu þegar farnir að velja ensku sem skilvirkan samskipta- máta fram yfir íslensku. Þróunin sé augljós og hröð og aðgerða sé þörf til að viðhalda íslenskunni. „Það að kunna málið er lykillinn að því að geta tekið þátt í sam- félaginu,“ segir Aneta. „Íslensku- kunnátta opnar ótal dyr, ekki bara þær að geta spjallað við íslenska vini sína yfir kaffi, heldur fær fólk tækifæri til þess að nota menntun sína, miðla af þeirri reynslu sem það býr yfir og hugmyndum sínum og á betri möguleika á því að láta drauma sína rætast.“ Aneta flutti hingað til lands frá Póllandi fyrir sautján árum og var au-pair hjá íslenskri fjölskyldu. Þegar þeim samningi lauk hóf hún störf á leikskóla. Hún segir leik- skólastarfið hafa verið afar gefandi og hún náði góðum tökum á íslensku. Í framhaldinu fór hún að kenna samlöndum sínum málið. „Ég varð reynslunni ríkari eftir nokkurra ára starf við leikskóla og þegar mér bauðst að kenna Pólverjum íslensku skellti ég mér á það enda fannst mér vanta pólsku- mælandi kennara. Þetta var mjög áhugavert en þó fannst mér vanta betri lausnir fyrir samlanda mína. Af því að ég er sjálf innflytjandi taldi ég mig vita betur hvernig Pól- verjar læra og vildi koma ákveðn- um hugmyndum á framfæri. Ég stofnaði því skólann árið 2008.“ Bjargarleysið reyndist hvatning Paulina Wiszniewska, verkefna- stjóri dagnámskeiða og kennari við skólann, segir líkt og Aneta tungumálið lykilinn að virkri þátttöku í samfélaginu. Sjálfri hafi henni verið hent út í djúpu laugina á sínum tíma. En það virkaði. „Ég kom frá Póllandi með for- eldrum mínum ellefu ára gömul og byrjaði strax í 6. bekk. Þar talaði enginn mitt mál og ég sá strax að ég yrði að læra íslenskuna sem fyrst til þess að geta tekið þátt í skólasamfélaginu. Ég var mjög metnaðarfull, ég vildi verða hluti af öllu undir eins, kynnast krökkunum og eignast vini. Ég lagði mig því mikið fram og lærði íslenskuna reiprennandi á einu ári. Ég var farin að hjálpa öðrum útlenskum krökkum í skólanum með íslenskuna svo þau gætu líka staðið á eigin fótum. Ég lærði líka ensku og dönsku á sama tíma og það má segja að mér hafi verið hent út í djúpu laugina. En ég komst heil út úr því. Ég hef alltaf verið ákveðin og var ekkert feimin við að tala þó ég beygði allt vitlaust,“ segir hún. Paulina lauk sveinsprófi í hár- greiðslu og fyrir þremur árum fór hún að kenna hjá Retor. „Ég vildi deila því sem ég kann með þeim sem þurfa. Með kennslunni hjá Retor get ég gefið fólki tól sem það getur notað til að blómstra sjálft. Ég segi alltaf það sama við nemendur mína: Í gegnum tungumálið tekur fólk þátt í samfélaginu, veit hvað er í gangi og kynnist fólki og landinu. Ekki standa fyrir utan dyrnar! Fólk verður einangrað og líður ekkert vel þegar því finnst það vera utan- garðs. Hluti af því að vera hér er að taka þátt í öllu og tungumálið er lykillinn að því.“ Hvatninguna vantar „Pólverjar eru afar stór hópur á Íslandi og þar á meðal er fólk sem búið hefur í tíu ár á landinu en talar ekki stakt orð í íslensku því það hefur aldrei þurft að læra hana,“ segir Paulina. „Í opinberum stofnunum, bönkum og heilsu- gæslu fá þau þjónustu sem búið er að þýða, hvatningin er ekki sú sama og var þegar ég kom hingað. Þannig verður til samfélag inni í samfélaginu og fólk lifir eftir sínum reglum, gerir sín innkaup í pólsku búðinni og horfir á pólskar myndir í bíó. Auðvitað er gott að boðið sé upp á þann möguleika en þar af leiðandi er ekki eins mikill hvati fyrir fólk að bjarga sér,“ segir- Paulina Íslendingar grípa strax til ensku Beata Czajkowska, verkefnastjóri fyrirtækjalausna og kennari, segir fólk skipta yfir í ensku um leið og það heyri að hún talar með hreim. Hún er hins vegar með BA í íslensku. Þegar hún kom til Íslands talaði hún hvorki ensku né íslensku en enskan varð ofan á. „Ég kom til Íslands fyrst 1999 og var í þrjá mánuði. Ég kom aftur 2001, vann í fiski í þrjú ár og lærði ensku en enga íslensku. Árið 2004 ákvað ég að læra íslensku því það var ekki möguleiki fyrir mig að fá aðra vinnu en við ræstingar ef ég talaði ekki málið. Strákurinn minn var einnig að byrja í skóla og ég gat ekki hjálpað honum með námið. Ég ákvað því að fara í háskólann og er í dag með BA í íslensku,“ segir Beata. Hún segir Íslendinga allt of fljóta að skipta yfir í ensku þegar þeir tali við innflytjendur. Það tefji fyrir því að fólk nái tökum á málinu. „Íslendingar eru að sjálfsögðu betri í íslensku en ensku og því skrítið að þeir tali frekar ensku við innflytjendur því innflytjendur tala alls ekki allir ensku. Ég lendi sjálf enn þá í því að fólk skiptir yfir í ensku þegar það heyrir að ég tala með hreim. Við heyrum það frá nemendum okkar að það er alls staðar töluð við þá enska. Fólk fær ekki tækifæri til að æfa sig í að tala. Innflytjendum fjölgar hratt og ef fram fer sem horfir næstu áratugi munu alltaf færri og færri tala íslensku á Íslandi!“ Skýrari stefnu og fjármagn Beata segir að skýrari stefnumótun vanti þegar kemur að leikskóla- málum. Sonur hennar hafi verið með fjölda pólskra barna á deild og það hafi tafið hann við íslenskuna. „Um leið og hann byrjaði í grunn- skóla með íslenskum krökkum sýndi hann þvílíkar framfarir. Ég er ekki á móti því að innflytjendur séu saman í leikskóla en kerfið er ekki tilbúið til að taka á móti svo mörgum. Stjórnvöld verða að læra af reynslunni það eru ekki bara verkamenn sem koma hingað til að vinna og stoppa stutt, margir setjast hér að. Ef þeir læra ekki íslensku er miklu meiri hætta á að þeir lendi á atvinnuleysisbótum ef þeir missa vinnuna. Það vantar fjármagn númer eitt tvö og þrjú. Nú er lag, það er uppgangur og hagkerfið blómstrar. Þetta er ekki bara mál innflytjendanna sjálfra heldur allra Íslendinga.“ Yfir þúsund nemendur á ári Aneta segir að árlega sæki rúm- lega þúsund nemendur kennslu hjá Retor. „Við sérhæfum okkur í íslenskukennslu fyrir Pólverja en við tökum á móti öllum hópum innflytjenda og eru þá blönduðu hóparnir yfirleitt á vegum fyrirtækja sem við þjónustum. Við höfum einnig átt langt samstarf við Vinnumálastofnun þar sem við kennum sérsniðin námskeið til viðbótar við íslenskukennslu. Innflytjendur sjálfir vilja skýrari stefnu. Við erum komin, við viljum taka þátt í að byggja upp landið en ef það er engin stefna í íslensku- kennslu verður enskan einfaldlega ofan á. Ég skora því á komandi ríkisstjórn að marka skýra stefnu.“ Paulina, Aneta og Beata segja hætt við að innflytjendur lendi utangarðs ef þeir læra ekki málið. Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 Stjórnendur og kennarar Retor fræðslu vilja vitundarvakningu um notkun íslensku sem leiðandi tungumáls á vinnustöðum. Fjöldi innflytjenda vaxi hratt og án verulegrar stefnubreytingar í íslenskukennslu fyrir fullorðna innflytjendur muni það hafa gífurleg áhrif á málið. mYnd/REToR FRæðSlA Við heyrum það frá nemendum okkar að það er alls staðar töluð við þá enska. Fólk fær ekki tækifæri til að æfa sig í að tala. Beata Czajkowska Framhald af forsíðu ➛ 2 KYnnInGARBlAð FÓlK 2 1 . o K TÓ B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R 2 1 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 0 7 -A E C 4 1 E 0 7 -A D 8 8 1 E 0 7 -A C 4 C 1 E 0 7 -A B 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 1 2 s _ 2 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.