Fréttablaðið - 21.10.2017, Side 38
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Tónlistarmaðurinn Denique er ættaður frá Kanada en hefur dvalið á Íslandi síðustu
þrjú sumur við að fínpússa tónlist
sína og taka upp myndbönd af
íslenskri náttúru sem m.a. birtast
í nokkrum tónlistarmyndbanda
hans. Fyrsta plata hans, Shape
1, kom út fyrir skömmu og er
fáanleg á vefnum hans, www.
denique.ca en þar má einnig horfa
á tónlistarmyndbönd við lög
plötunnar. „Ég hitti fyrir tilviljun
framkvæmdastjóra íslensks fyrir
tækis á bókasafni í Kanada. Eftir
stutt spjall sagði ég við hann í gríni
að ég væri til í að búa á Íslandi. Sú
lína átti heldur betur eftir að hafa
afleiðingar því hjónin buðu mér
í heimsókn til Íslands sumarið
2015. Það sumar kynntist ég fullt
af skemmtilegu og skapandi fólki
sem hafði mikil áhrif á mig og verk
mín. Því má segja að á þeim tíma
hafi ég fundið út fyrir alvöru hver
ég var og hvað ég vildi segja með
sköpun minni.“
Hann lýsir tónlist sinni sem
„alternative“ popptónlist með
skandinavískum blæbrigðum.
„Sándið á plötunni minni er ekki
dæmigert poppsánd en tón
listin er samt þannig að ég held
að flestum eigi eftir að líka vel við
hana.“
Er tvær persónur
Denique vekur oft athygli fyrir
skrautlegan klæðaburð en hann
á sér þó aðra hlið. „Ég er í raun
tvær persónur þegar kemur að
klæðaburði. Annars vegar er ég
poppstjarnan Denique sem hefur
sterkan og áhugaverðan glamúr
stíl. Hins vegar er ég mikið letiblóð
sem klæðist eingöngu svörtu eða
allt of stórum litfögrum bolum.
Ég forðast að klæðast flíkum
með vörumerkjum og áberandi
munstri. Eina undantekningin
sem ég geri er blómamynstur, ég
elska blóm!“
Að sama skapi segist hann ekki
vera jafn félagslyndur og úthverf
týpa eins og margir halda. „Raunar
er ég frekar ómannblendinn og
eyði stórum hluta frítímans heima
þar sem ég skipulegg næstu stóru
skref í tengslum við tónlistarferil
minn. Einnig kemur það mörgum
á óvart að ég er mjög ástríðufullur
hjólreiðamaður.“
Hræódýrar perlur
Aðspurður hvenær tískuáhugi
hans hafi kviknað segist hann ekki
Það er nefnilega allt leyfilegt
Denique vekur reglulega athygli fyrir skrautlegan klæðaburð. Hann er ættaður frá Kanada en
hefur verið með annan fótinn hér síðustu þrjú sumur. Fyrsta plata hans kom nýlega út.
„Sumir karlmenn kæðast skotapilsi en mér finnst að fleiri karlar ættu að kæðast síðum pilsum. Þau eru þægileg og
skapa um leið fágaða heildarmynd sem er bæði flott en líka áhugaverð.“ MYNDIR/ERNIR
vera viss. „Þegar ég hugsa til baka
þá vaknaði ég ekki einn góðan
veðurdag og hugsaði: „Nú ætla ég
að hafa áhuga á tísku.“ Hins vegar
man ég eftir að hafa valið mér föt
á yngri árum sem gáfu mér ólíka
orku hverju sinni. Dagsdaglega
geng ég helst ekki í nýjum fötum
heldur kaupi föt í verslunum
sem selja notuð föt. Þar má finna
margar hræódýrar perlur sem
annars yrði jafnvel hent. Þegar
ég vil klæðast einhverju frum
legu finnst mér alltaf skemmtileg
áskorun að nota óhefðbundna
fylgihluti á borði við sterkt teip,
álpappír, plast, víra, pappír,
vefnaðarefni og fleira.“
Áttu uppáhaldshönnuð? Þótt
ég skrúfi aðeins upp glamúrinn í
tónlistarmyndböndum mínum
þá veit ég í raun ótrúlega
lítið um tískubransann
og fylgist ekki nógu vel
með honum. Ég fór þó
á tvær tískusýningar í
sumar og á annarri þeirra
sá ég t.d. nýjustu línu uppá
haldshönnuðar míns
sem heitir Gabriel
DroletMaGuire.
Ég var mjög hrifinn
af sýningunni en
þar fléttaði hann
snilldarlega
saman línuna
sína, tónlist, ljóð
list, fyrirsætur og
fleiri þætti. Það er
ekki að ástæðu
lausu sem hann
er langt á undan
sinni samtíð,
aðeins 22 ára gamall.
Hvernig fylgist þú
helst með tísku? Ég
fylgist í raun ekki
með tískuiðnaðinum
og nýjustu trendum.
Ég læt innsæi mitt
ráða þegar ég stíg
inn í verslanir sem
selja notuð föt. Það er
umhverfisvæn leið til að
versla og um leið hefur
hver flík einhverja sögu
að segja.
Áttu þér uppáhalds-
verslanir? Í Reykjavík
er helst hægt að nefna
gott úrval í Spúútnik en
verðið þar er aðeins of
hátt fyrir minn smekk.
Verð í sambæri
legum verslunum
í Kanada er miklu
lægra þar sem t.d.
er hægt að kaupa
notaða ullar
peysu á 500 kr. Ég
elska líka Hertex
í Garðastræti en
verðið þar er hins
vegar frábært.
Hver er uppáhalds-
flíkin þín?
Ég er með rúllu
kragapeysur á
heilanum og á a.m.k.
sjö eða átta slíkar í
ólíkum litum. Mér
finnst að allir eigi að
eiga a.m.k. fimm slíkar peysur.
Bestu og verstu kaup? Ég á virki
lega flottan vetrarjakka sem er eins
og risastórt jólaullarteppi. Jakkinn
kostaði einungis 2.000 kr. en ég
keypti hann í Kanada. Margir hafa
stoppað mig úti á götu og spurt út
í hann enda stórkostlegur jakki og
um leið bestu kaup mín. Varðandi
verstu kaup þá læt ég innsæi mitt
ráða eins og fyrr segir þegar ég
kaupi föt. Fyrir vikið kaupi ég varla
föt nema ég virkilega elski þau.
Hins vegar man ég eftir því þegar
ég var í framhaldsskóla og fannst
góð hugmynd að lita hárið á mér
dökkbrúnt. Þegar rótin fór að vaxa
leit út eins og ég væri að fá skalla
fimmtán ára gamall. Þetta voru
ekki mínar bestu stundir.
Notar þú fylgihluti? Mér finnst
gaman að nota fylgihluti sem eru í
raun ekki hefðbundnir fylgihlutir,
t.d. plast, víra, óvenjuleg höfuðföt,
málma, líkamsmálningu og fleira.
Hjá mér er nefnilega allt leyfilegt.
Hægt er að fylgjast með Denique,
og hlusta á tónlist hans, á Spotify,
www.denique.ca, facebook og
Instagram(@deniqueleblanc).
„Það er alltaf
gaman að spila
djarft í klæða-
burði. Þessar
buxur passa
frábærlega vel
með einhverju
hlutlausu að
ofan því þær eru
jú aðalatriðið
hér. Ég elska
þessar buxur.“
„Í hlutverki popp-
stjörnunnar er
útlit mitt yfirleitt
mjög kvenlegt en
stundum finnst mér
gaman að klæðast
karlmannlegri
fötum.”
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Peysur
Kr. 9.900.-
Str: S-XXL
Fleiri gerðir
MARAÞON
NOW OG 11GB
Á 3.990 KR.*
*á mánuði
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . o K tÓ B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
2
1
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
7
-C
2
8
4
1
E
0
7
-C
1
4
8
1
E
0
7
-C
0
0
C
1
E
0
7
-B
E
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
2
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K