Fréttablaðið - 21.10.2017, Side 39

Fréttablaðið - 21.10.2017, Side 39
 Naprapatinn leggur mikla áherslu á að finna og lagfæra orsök verkja, en orsökin getur leynst meðal annars í stoð- eða taugakerfi. Naprapat meðhöndlar og leiðréttir orsök verkja. Guttormur útskrifaðist sem naprapat árið 1996, hefur síðan rekið sína eigin naprapati-stöð á Spáni og hefur nú einnig opnað stofu hér á landi. MYND/ERNIR Naprapat meðhöndlar og leiðréttir orsök verkja. Bein þýðing á orðinu napra- pati er ,,að leiðrétta orsökina“. Í naprapati-meðferðinni er litið á stoð- og taugakerfið sem eina heild og naprapat leitast við ná fólki sársaukalausu sem fyrst, ásamt því að finna og rétta til ástæðuna fyrir verkjunum,“ útskýrir Guttormur Brynjólfsson, naprapat eða doctor of naprapathy. Hnykkir, nuddar og teygir Starf naprapats snýst um grein- ingu, meðhöndlun og endurhæf- ingu stoðkerfisins, naprapatinn leggur mikla áherslu á að finna og lagfæra orsök verkja, en orsökin getur leynst meðal annars í stoð- eða taugakerfi. „Þegar vandinn hefur verið greindur hefst með- ferðin sem getur meðal annars falist í hnykkingum, meðhöndlun á band- og stoðvef með nuddi og teygjum og sérsniðnum æfingum fyrir stoðkerfið svo koma megi í veg fyrir þjáningu og sársauka.“ Naprapatinn býr yfir þekkingu og tækni til þess að meðhöndla bandvef/vöðva og liði líkamans s.s. axlir, olnboga,hendur, mjaðmir, hné, fætur, háls og bak svo eitthvað sé nefnt. Naprapati varð löggild starfs- grein í Svíþjóð árið 1994 og til- heyrir sænska heilbrigðiskerfinu. „Þriðji hver Svíi hefur leitað til naprapats með stoðkerfisvanda- mál sín sem gerir naprapati að vinsælustu stoðkerfismeðhöndlun landsins. Rannsóknir hafa verið gerðar í samvinnu við meðal annars Karolinska Institutet í Stokkhólmi, og hafa bent til að naprapati sé ein af áhrifaríkustu meðhöndlunum á stoðkerfinu sem völ er á. Í því samhengi má benda á rannsókn sem var birt í ,,Clinical Journal of Pain“, einu af virtustu læknaritum heims, ,,Naprapathic manual therapy or evidence- based care for back and neck pain“,“ segir Guttormur, sem útskrifaðist sem naprapat árið 1996 og hefur allt frá útskrift átt og rekið sína eigin naprapati-stöð í Madrid á Spáni, Natt Center, og rekur enn. Jafnvægi heilans mikilvægt Ástæðu bak- og hálsverkja má oftar en ekki rekja til starfsemi heilans að sögn Guttorms, að meðhöndla (hnykkja, nudda, teygja, æfa) stoð- kerfið í samræmi við virkni mið- taugakerfisins, eykur líkurnar mjög á því að við getum hjálpað þér. „Heili og mæna, einu nafni miðtaugakerfi, stjórna allri starf- semi líkamans. Ójafnvægi í virkni heilahvelanna veldur mismunandi spennu í vöðvum og leiðir til endurtekinnar rangrar beitingar sem getur leitt til meiðsla eða eymsla í líkamanum. Ýmsar ástæður geta leitt til þess að heilinn vinni ekki eins og best verður á kosið, til dæmis ef litli heilinn fær mismunandi skilaboð frá hægri eða vinstri hlið líkam- ans. Ástæður fyrir því geta verið læsingar og minnkuð hreyfigeta í liðum eða jafnvel eitthvað í mið- taugakerfinu, sem veldur mismun- andi vöðvastyrk eða hreyfigetu í hliðum líkamans og getur valdið rangri líkamsstöðu,“ lýsir hann. Stofur á Spáni og Íslandi Guttormur hefur síðastliðin tutt- ugu ár byggt upp gott orðspor á Spáni og víðar, meðal annars hafa komið til hans í meðhöndlun fótboltamenn úr ensku úrvals- deildinni og var Guttormur einnig fenginn til Liverpool FC til þess að meðhöndla leikmenn. Fyrir honum eru þó allir sjúklingar jafnir og er það honum kappsmál að geta hjálpað sem flestum. Naprapat-stofu Guttorms er að finna í Orkuhúsinu á Suðurlands- braut 34 þar sem hann meðhöndl- ar alla þá sem eiga við meiðsli eða verki að stríða, eða vilja bara fyrir byggja stoðkerfisvandamál og hámarka vellíðan sína. „Naprapat býr yfir mikilli þekkingu og tækni til að tryggja það að líkaminn virki sem allra best.“ Stofa Guttorms er í Orkuhúsinu Suðurlandsbraut 34, sími: 6250011. Frekari upplýsingar má fá á www. naprapat.is, á Facebook undir Naprapat – Orkuhúsið eða senda tölvupóst á info@naprapat.is. Naprapati er árangursrík meðhöndlun við verkjum Guttormur Brynjólfsson er menntaður naprapat (Doctor of naprapathy) en naprapati-með- höndlun felst meðal annars í hnykkingum, meðhöndlun á band- og stoðvef og sérsniðnum æf- ingum fyrir hvers kyns stoðkerfisvandamál. Tækni sem tryggir að líkaminn virki sem allra best. FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 2 1 . O k Tó B e r 2 0 1 7 2 1 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 0 7 -C 2 8 4 1 E 0 7 -C 1 4 8 1 E 0 7 -C 0 0 C 1 E 0 7 -B E D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 1 2 s _ 2 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.