Fréttablaðið - 21.10.2017, Page 39
Naprapatinn
leggur mikla
áherslu á að finna og
lagfæra orsök verkja, en
orsökin getur leynst
meðal annars í stoð- eða
taugakerfi.
Naprapat meðhöndlar og leiðréttir orsök verkja. Guttormur útskrifaðist sem naprapat árið 1996, hefur síðan rekið sína eigin naprapati-stöð á Spáni og hefur nú einnig opnað stofu hér á landi.
MYND/ERNIR
Naprapat meðhöndlar og leiðréttir orsök verkja. Bein þýðing á orðinu napra-
pati er ,,að leiðrétta orsökina“. Í
naprapati-meðferðinni er litið á
stoð- og taugakerfið sem eina heild
og naprapat leitast við ná fólki
sársaukalausu sem fyrst, ásamt því
að finna og rétta til ástæðuna fyrir
verkjunum,“ útskýrir Guttormur
Brynjólfsson, naprapat eða doctor
of naprapathy.
Hnykkir, nuddar og teygir
Starf naprapats snýst um grein-
ingu, meðhöndlun og endurhæf-
ingu stoðkerfisins, naprapatinn
leggur mikla áherslu á að finna og
lagfæra orsök verkja, en orsökin
getur leynst meðal annars í stoð-
eða taugakerfi. „Þegar vandinn
hefur verið greindur hefst með-
ferðin sem getur meðal annars
falist í hnykkingum, meðhöndlun
á band- og stoðvef með nuddi og
teygjum og sérsniðnum æfingum
fyrir stoðkerfið svo koma megi í
veg fyrir þjáningu og sársauka.“
Naprapatinn býr yfir þekkingu
og tækni til þess að meðhöndla
bandvef/vöðva og liði líkamans s.s.
axlir, olnboga,hendur, mjaðmir,
hné, fætur, háls og bak svo eitthvað
sé nefnt.
Naprapati varð löggild starfs-
grein í Svíþjóð árið 1994 og til-
heyrir sænska heilbrigðiskerfinu.
„Þriðji hver Svíi hefur leitað til
naprapats með stoðkerfisvanda-
mál sín sem gerir naprapati að
vinsælustu stoðkerfismeðhöndlun
landsins. Rannsóknir hafa verið
gerðar í samvinnu við meðal
annars Karolinska Institutet í
Stokkhólmi, og hafa bent til að
naprapati sé ein af áhrifaríkustu
meðhöndlunum á stoðkerfinu sem
völ er á.
Í því samhengi má benda á
rannsókn sem var birt í ,,Clinical
Journal of Pain“, einu af virtustu
læknaritum heims, ,,Naprapathic
manual therapy or evidence- based
care for back and neck pain“,“ segir
Guttormur, sem útskrifaðist sem
naprapat árið 1996 og hefur allt
frá útskrift átt og rekið sína eigin
naprapati-stöð í Madrid á Spáni,
Natt Center, og rekur enn.
Jafnvægi heilans mikilvægt
Ástæðu bak- og hálsverkja má oftar
en ekki rekja til starfsemi heilans
að sögn Guttorms, að meðhöndla
(hnykkja, nudda, teygja, æfa) stoð-
kerfið í samræmi við virkni mið-
taugakerfisins, eykur líkurnar mjög
á því að við getum hjálpað þér.
„Heili og mæna, einu nafni
miðtaugakerfi, stjórna allri starf-
semi líkamans. Ójafnvægi í virkni
heilahvelanna veldur mismunandi
spennu í vöðvum og leiðir til
endurtekinnar rangrar beitingar
sem getur leitt til meiðsla eða
eymsla í líkamanum.
Ýmsar ástæður geta leitt til þess
að heilinn vinni ekki eins og best
verður á kosið, til dæmis ef litli
heilinn fær mismunandi skilaboð
frá hægri eða vinstri hlið líkam-
ans. Ástæður fyrir því geta verið
læsingar og minnkuð hreyfigeta í
liðum eða jafnvel eitthvað í mið-
taugakerfinu, sem veldur mismun-
andi vöðvastyrk eða hreyfigetu í
hliðum líkamans og getur valdið
rangri líkamsstöðu,“ lýsir hann.
Stofur á Spáni og Íslandi
Guttormur hefur síðastliðin tutt-
ugu ár byggt upp gott orðspor á
Spáni og víðar, meðal annars hafa
komið til hans í meðhöndlun
fótboltamenn úr ensku úrvals-
deildinni og var Guttormur einnig
fenginn til Liverpool FC til þess
að meðhöndla leikmenn. Fyrir
honum eru þó allir sjúklingar
jafnir og er það honum kappsmál
að geta hjálpað sem flestum.
Naprapat-stofu Guttorms er að
finna í Orkuhúsinu á Suðurlands-
braut 34 þar sem hann meðhöndl-
ar alla þá sem eiga við meiðsli
eða verki að stríða, eða vilja bara
fyrir byggja stoðkerfisvandamál og
hámarka vellíðan sína. „Naprapat
býr yfir mikilli þekkingu og tækni
til að tryggja það að líkaminn virki
sem allra best.“
Stofa Guttorms er í Orkuhúsinu
Suðurlandsbraut 34, sími: 6250011.
Frekari upplýsingar má fá á www.
naprapat.is, á Facebook undir
Naprapat – Orkuhúsið eða senda
tölvupóst á info@naprapat.is.
Naprapati er árangursrík
meðhöndlun við verkjum
Guttormur Brynjólfsson er menntaður naprapat (Doctor of naprapathy) en naprapati-með-
höndlun felst meðal annars í hnykkingum, meðhöndlun á band- og stoðvef og sérsniðnum æf-
ingum fyrir hvers kyns stoðkerfisvandamál. Tækni sem tryggir að líkaminn virki sem allra best.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 2 1 . O k Tó B e r 2 0 1 7
2
1
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
7
-C
2
8
4
1
E
0
7
-C
1
4
8
1
E
0
7
-C
0
0
C
1
E
0
7
-B
E
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
2
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K