Fréttablaðið - 21.10.2017, Qupperneq 40
Bjarki Þór Pálsson er atvinnu-maður í blönduðum bar-dagalistum og nýkrýndur
Evrópumeistari hjá breska bar-
dagasambandinu FightStar. Bjarki
tryggði sér titilinn í London 7. októ-
ber síðastliðinn með sigri gegn
Quamer Hussain og er ósigraður
eftir fjóra bardaga sem atvinnu-
maður. Bjarki vonast til að vinna sig
hratt upp í íþróttinni og keppa við
þá allra bestu sem allra fyrst.
Ást við fyrstu sýn
Bjarki fann blandaðar bardagalistir
fyrir tilviljun. „Ég var tiltölulega
nýorðinn edrú og var mjög opinn
fyrir því að finna eitthvert áhugamál
til að halda mér uppteknum,“ segir
hann. „Félagi minn var búinn að
kaupa hóptíma í Mjölni og bauð
mér með. Þetta var algjör tilviljun
en ég fattaði eiginlega bara um leið
og ég steig þarna inn að þetta væri
það sem ég þurfti. Við getum kallað
þetta ást við fyrstu sýn.“
„Fljótlega eftir að ég byrjaði að
æfa flutti ég til Noregs,“ segir Bjarki.
„Þar æfði ég af krafti. Ég lagði mest
stund á frjálsa glímu og náði ansi
góðum tökum á henni. Grunnurinn
þaðan veitti mér smá sérstöðu
þegar ég flutti aftur heim og byrjaði
aftur í Mjölni.“
Fljótlega vatt áhuginn upp á
sig og Bjarki fór að huga að því að
keppa. „Þegar maður æfir svona eins
og ég geri þá myndast bara hungur
í að keppa,“ segir Bjarki. „Fyrr en
varir er maður bara búinn að festa
dagsetningu og farinn að gera sig
kláran til að fara í búrið.“
Atvinnumennskan náttúru-
legt framhald
Skrefið yfir í atvinnumennskuna var
svo mjög náttúrulegt framhald. „Ég
háði tólf áhugamannabardaga og
vann ellefu en tapaði einum,“ segir
hann. „Ég tók líka þátt í Evrópu-
meistaramóti áhugamanna og vann
það og fannst ég bara vera tilbúinn,
bæði andlega og líkamlega.“
Bjarki er menntaður húsasmiður
og segir að ef hann hefði ekki
kynnst blönduðum bardagalistum
ynni hann líklega sem smiður. „Ég
væri samt sennilega að æfa eitthvað
skemmtilegt,“ segir hann. „Ég hef
keppt í brasilísku jiu-jitsu, hnefa-
leikum og kraftlyftingum, en þar
varð ég Íslandsmeistari og setti
Íslandsmet í réttstöðulyftu sem ég
held að standi enn. Ég gæti alveg
hugsað mér að keppa í einhverju
öðru, en blandaðar bardagalistir eru
íþróttin mín. Þar slær hjarta mitt og
ég veit að þar get ég náð langt.“
Æfingar ekki það eina sem
skiptir máli
Bjarki æfir af miklum dugnaði.
„Það er ekki óvanalegt að ég æfi
í þrjár til fjórar klukkustundir á
dag samanlagt,“ segir hann. „Svo
eru aðrir angar af því að vera
íþróttamaður sem ég hlúi líka að.
Mataræði er mjög mikilvægt og ég
ver talsverðum tíma í það. Ég hitti
íþróttasálfræðing líka reglulega og
er duglegur að líta inn á við og reyna
að laga það sem þarf að laga þar. Svo
ver ég miklum tíma í að fræðast og
tileinka mér nýjar aðferðir. Ég hef til
dæmis unnið mikið með öndun til
að styrkja lungun og ná betri tökum
á súrefnisinntöku. Þegar menn eru
komnir í atvinnumennskuna þá eru
allir andstæðingar góðir og þá byrja
smáatriðin að skipta máli.“
Vill berjast meðal þeirra
bestu
„Enn sem komið er fæ ég afar lítið
borgað fyrir að berjast, en ég finn á
mér að það breytist fyrr en síðar,“
segir Bjarki. Hann vinnur því sem
þjálfari og er með kostunaraðila
sem auðvelda honum lífið með fjár-
hagslegum stuðningi og vörum sem
hann þyrfti annars að leggja út fyrir.
„Ég er ánægður með árangurinn
til þessa, en mig hungrar í miklu
meira og tel mig hafa allt sem þarf
til að fara á toppinn,“ segir hann.
„Ég er nokkuð viss um að ég taki
eina titilvörn hjá FightStar, en það
eru þreifingar í gangi og vonandi
gerist eitthvað á næstu vikum sem
verður hægt að segja frá. Ég vil
berjast á meðal þeirra bestu.“
Bjarki vonast til að taka einn bar-
daga í viðbót fyrir lok ársins. „Það
er verið að hnýta síðustu hnútana
hvað það varðar,“ segir hann. „Það
er ansi sennilegt að ég sé að fara að
berjast einu sinni enn áður en árið
er liðið.“
Ólýsanleg endorfínsprengja
Bjarki segir að líf bardagamanns-
ins sé ólíkt því sem flestir búa við.
„Það er enginn níu til fimm taktur
með fastar mánaðarlegar tekjur,
skutbíll, tvö til fjögur börn og ferð
til Tenerife á hverju sumri,“ segir
hann. „Þetta krefst þess að ég búi við
algjört óöryggi og það er ekkert sem
tryggir að maður sé að vinna sér
eitthvað í haginn með þessu.
Stundum er ég svo þreyttur
og laskaður að ég hef mig varla
fram úr rúminu. En ég geri það
samt,“ segir Bjarki. „Stundum spyr
ég sjálfan mig af hverju ég er að
þessu og ég kemst alltaf að sömu
niðurstöðunni. Þetta er það sem ég
elska og ég er ansi góður í þessu. Ég
hugsa að þegar ég verð eldri og lít
yfir farinn veg, sama hvernig ferill
minn þróast, muni ég alltaf vera
þakklátur fyrir að hafa gefið allt í
þetta.“
En starfið hefur margar góðar
hliðar. „Í þessum bransa ferðast
maður mikið og kynnist frábæru
fólki. Maður eignast góða vini
og myndar einstök tengsl,“ segir
Bjarki. „Ég er mjög þakklátur fyrir
alla hjálpina og stuðninginn sem
ég fæ til að elta drauminn minn.
Fórnirnar sem fólkið í kringum mig
hefur verið tilbúið að færa til að
styðja mig í því sem ég geri er eitt-
hvað sem ég get seint þakkað þeim
að fullu.“
„En það allra skemmtilegasta er
að sjálfsögðu endorfínsprengjan
sem springur þegar hendinni á
manni er lyft upp,“ segir Bjarki.
„Þeirri tilfinningu er ekki hægt að
lýsa.“
Taugastríð fyrir hvern bar-
daga
„Það er mikið taugastríð sem á sér
stað síðasta klukkutímann áður en
ég fer inn í búrið,“ segir Bjarki. „En
ég er búinn að gera þetta ansi oft
og er búinn að ná góðum tökum á
undirbúningnum. Ég geri sérstakar
öndunaræfingar, ég hugleiði og
segi við sjálfan mig að ég ætli að
gera mitt besta. Það tekur press-
una af mér og ég veit að sama hver
útkoman er þá er ég alltaf ég og á
enn þá fjölskyldu og vini, sem er
það sem skiptir máli. Það hjálpar
til við að róa taugarnar og vera með
skýran fókus. Allir bardagamenn
eru með hnút í maganum alveg
þangað til þeir labba í átt að búrinu.
En þegar það er búið að kynna mig
og inngangslagið mitt er komið
í gang fyllist ég krafti og gleði og
þegar búrið lokast er ég 100 prósent
tilbúinn.“
Ekki níu
til fimm
taktur
Bjarki Þór Pálsson er einn af efni-
legustu bardagamönnum Íslands í
blönduðum bardagalistum og vann
nýlega sinn fyrsta titil. Bjarki Þór Pálsson er ein bjartasta von Íslendinga í blönduðum bardagalistum. MYND/BALDUR KRISTJÁNSSON
Bjarki hefur fengið ómetanlegan stuðning. MYND/MIKE RUANE
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@365.is
JÓLABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS
Stóra jólablaðið frá Fréttablaðinu kemur út
þriðjudaginn 28. nóvember.
Áhugasamir auglýsendur hafið samband við
auglýsingadeild sérblaða í síma 512 5402
Blaðið er stútfullt af allskonar skemmtilegu efni tengdu jólunum.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . O K TÓ B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
2
1
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
7
-B
D
9
4
1
E
0
7
-B
C
5
8
1
E
0
7
-B
B
1
C
1
E
0
7
-B
9
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
2
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K