Fréttablaðið - 21.10.2017, Side 82

Fréttablaðið - 21.10.2017, Side 82
Darabuka er bikar­tromma og langþekkt­ust hljóðfæra af þeirri tegund,“ svarar Áskell Másson, tónskáld og slagverksmaður, aðspurður. „Bikartrommur eru ætt­ aðar frá Tyrklandi og Austurlöndum nær og þær hafa gífurlega mikla mögu­ leika. Ég er búinn að æfa mig og þróa ákveðna tækni á þær alveg frá barn­ æsku og á nokkrar, ólíkar að gerð.“ Þótt Áskell hafi einbeitt sér að tón­ smíðum undanfarna áratugi ætlar hann að spila einleik á darabuka í eigin verki sem Sinfóníuhljómsveit Norðurlands frumflytur á morgun í Hofi. Það er konsertinn Capriccio. Petri Sakari stjórnar. Áskell kveðst hafa samið konsertinn til að kynna hljóðfærið og möguleika þess. „Frekar en útbúa kennslubók um darabuka ákvað ég að skrifa konsertinn og festa hann eins vel og hægt væri bæði á hljóðrás og myndrás.“ Áskell er þekktur hér á landi og á alþjóðavísu á sviði tónsmíða og slag­ verkstónlistar. Hann hlakkar til stund­ arinnar í Hofi á morgun. „Petri Sakari hefur stjórnað mörgum af mínum verkum með sinfóníuhljómsveitum víða um heim og þekkir mig og mína músík vel en ég hef aldrei spilað undir hans stjórn,“ segir hann og nefnir að auk bikartrommunnar verði leikið á önnur einstök hljóðfæri í konsertinum hans. Til dæmis trommu sem nefnist tam og kemur líka frá Mið­Austurlönd­ um. „Hún er eins og stór tambúrína en ekki með neinar bjöllur sem hristast heldur heil og stór. Svo er alveg nýtt hljóðfæri sem heitir aluphone, því nóturnar eru úr áli og líta út eins og lítil kramarhús. Hljómsveitin þurfti að leigja það frá Danmörku og úr því kemur alveg nýr hljómur til Íslands. Það er spennandi,“ segir Áskell. Tónleikarnir í Hofi bera yfirskriftina Finlandia og Frón. Þeir eru haldnir í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá því Finnar fengu sjálfstæði og 60 ár eru frá andláti tónskáldsins Sibeli­ usar. Auk Capriccio verður flutt annað verk eftir Áskel fyrir hlé, Frón, það er byggt á íslenskum þjóðlögum. Eftir hlé verða tvö verk eftir Sibelius, Sin­ fónía nr. 7 og Finlandia. Tónleikarnir verða hápunktur finnsku menningar­ veislunnar í Hofi sem staðið hefur frá 16. október og áður en þeir hefjast ávarpar finnski sendiherrann, Valtteri Hirvonen, gesti. Ekki kveðst Áskell tengjast Finn­ landi að öðru leyti en því að verkin hans hafi verið flutt þar og hann hafi unnið með mörgum af þekktustu hljómsveitarstjórum Finna, þeirra á meðal Esa Pekka Salonen, Leif Seger­ stam, Osmo Vänskä, Petri Sakari og Susanna Mekki. Hann kveðst oft hafa verið viðstaddur flutning verka sinna erlendis áður fyrr, en sjaldnar í seinni tíð nema um sinfónískt verk eða frum­ flutning sé að ræða. gun@frettabladid.is Leikur á einstakt hljóðfæri í eigin verki Fyrsti darabuka-konsert sögunnar, Capriccio, verður heimsfrumfluttur í Hofi á Akureyri undir yfirskriftinni Finlandia og Frón á morgun af Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, undir stjórn Petri Sakari. Höfundurinn, Áskell Másson, sér sjálfur um einleikinn. Áskell með darabuka bikartrommu. Hann er búinn að þróa ákveðna tækni á slík hljóð- færi alveg frá barnæsku. Fréttablaðið/Eyþór Árnason Ástkær eiginmaður, sonur, faðir, tengdafaðir, bróðir og afi, Gunnar Benediktsson Stórakrika 2b, Mosfellsbæ, lést aðfaranótt miðvikudagsins 11. október á hjartadeild Landspítalans. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 26. október kl. 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Umhyggju, félag langveikra barna. Unnur Pétursdóttir Halldóra Ármannsdóttir Atli Örn Gunnarsson Lilja Oddsdóttir Gunnar Snær Gunnarsson Helga Finnsdóttir Eyþór Ingi Gunnarsson Svanlaug Birna Sverrisdóttir Örvar Gunnarsson Helga Jóna Gylfadóttir Hansen systkini og barnabörn. Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, Páll Ólason húsgagnabólstrari frá Siglufirði, Lækjasmára 6, Kópavogi, lést þriðjudaginn 10. október á hjartadeild Landspítalans. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 23. október kl. 15. Þuríður Pálsdóttir Knútur Kristinsson Súsanna Kristín Knútsdóttir Auðunn Jónsson Hólmfríður Knútsdóttir Ingólfur Finnbogason Páll Óli Knútsson Knútur Þór, Agnes Lind, Friðrik Óli, Soffía og Finnbogi. Ástkær dóttir okkar, systir, mágkona og frænka, Magnea Guðmundsdóttir Hólmgarði 2a, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 24. október kl. 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Guðmundur Ingi Hildisson Bjarnhildur Helga Lárusdóttir Ragnheiður M. Guðmundsdóttir Ragnar Á. Eðvaldsson Bjarnhildur H. Ragnarsdóttir Magnús I. Finnbogason Þórunn M. Ragnarsdóttir Eðvald Á. Ragnarsson Jóhanna D. Magnúsdóttir og Magnús I. Magnússon Okkar elskaða Guðlaug Jóhannsdóttir frá Bakkakoti í Meðallandi, til heimilis að Mánatúni 2, Reykjavík, er látin. Hún verður kvödd frá Háteigskirkju mánudaginn 23. október kl. 13.00. Sigrún B. Björnsdóttir Þuríður Pálsdóttir Páll Bjarni Kjartansson Már Grétar Pálsson Sólveig Katrín Sveinsdóttir Tinna, Orri Páll, Elvar Már, Sunna Dís, Ellen Ragna, Máni Steinn, Einar Sveinn, Jóhann Páll, Bessi Huginn, Úlfur Flóki og Hrafnhildur Elva. Útfararstofa kirkjugarðanna Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfarar- og lögfræðiþjónusta Við önnumst alla þætti undir- búnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Ellert Ingason, umsjón sálmaskrár 2 1 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r38 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð tímamót Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. 2 1 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 0 7 -5 5 E 4 1 E 0 7 -5 4 A 8 1 E 0 7 -5 3 6 C 1 E 0 7 -5 2 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 1 2 s _ 2 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.