Fréttablaðið - 21.10.2017, Side 97

Fréttablaðið - 21.10.2017, Side 97
 TónlisT HHHHH Jóhann Kristinsson baritón og Amm iel Bushakevitz píanóleikari fluttu lög eftir schumann, Mahler, Rossini og fleiri. salurinn í Kópavogi fimmtudaginn 19. október Ég las einhvers staðar að það séu fjögur leiðarstef í kántrísöngvum. Þau eru: 1. „Ást og trygglyndi“, 2. „Hvernig á að lifa lífinu“, 3. „Það gengur ekki“ og 4. „Þetta er búið.“ Þegar litið var yfir söngtextana á tónleikum Jóhanns Kristinssonar baritóns og Ammiel Bushakevitz píanóleikara á tónleikum í Salnum á fimmtudagskvöldið þá sá maður eitthvað af þessum stefjum, sér­ staklega það síðastnefnda. En umfjöllunarefnið var miklu fjöl­ breyttara, þarna voru líka ævintýri og goðsagnir, náttúrustemningar og heimspekilegar vangaveltur. Jóhann söng fyrst Liederkreis (Söngvasveig) op. 39 eftir Schu­ mann. Hann gerði það fjarskalega vel. Röddin var björt og hljómmikil, afar tær á efstu tónunum. Túlkunin var full af blæbrigðum, í senn öguð og tilfinningarík. Píanóleikurinn var ekki síðri. Í þessum lögum, sem eru tólf, stendur píanórullan jafnfætis röddinni. Þetta er ekkert undir­ spil af þeirri gerðinni sem oft er að finna í íslenskum lögum. Nei, hér bætir píanóið við því sem vantar í sönginn og öfugt. Saman mynda söngvari og píanóleikari eina heild. Píanóið skapar stemninguna, umhverfið, rammann utan um sönginn. Umfjöllunarefni ljóðanna endurspeglast í píanóleiknum. Þar er að finna alls konar myndmál, og það undirstrikar það sem söngvar­ inn syngur um hverju sinni. Bush­ akevitz gerði þetta meistaralega. Leikur hans var margbrotinn, allt frá ofurviðkvæmum hljómum upp í magnaða hápunkta. Tónmynd­ unin var sérlega falleg, gegnsæ og fókuseruð, rétt eins og söngurinn. Eftir hlé var Mahler á dagskránni. Fyrst komu Söngvar förusveinsins, sem segja frá ástarsorg og eru í fjórum hlutum. Túlkunin var ákaf­ lega sannfærandi, þrungin tilfinn­ ingaofsa, sérstaklega þriðja ljóðið sem var einkar áhrifamikið. Í því fjórða, sem fjallar um ferðalag út í nóttina og er gætt ólýsanlegu, him­ nesku andrúmslofti, var stemningin slík að það er ógleymanlegt. Hvílík raddfegurð, hvílíkur töfrakenndur píanóleikur. Hvílík upplifun! Fjögur lög úr Des Knaben Wunder horn eftir Mahler fylgdu í kjölfarið. Það fyrsta, Revelge, er saga úr hernum. Það var svo yfir­ máta glæsilegt, bæði hjá söngvara og píanóleikara að nokkrir tón­ leikagestir stóðu upp þegar það var búið til að láta í ljós hrifningu sína, þótt tónleikunum væri ekki lokið. Stígandin í laginu var ótrúlega spennuþrungin; sívaxandi, ógnandi hergöngutakturinn í píanóinu og karlmannlegur, en örvæntingar­ fullur söngurinn framkallaði gæsa­ húð. Þeir félagar tóku nokkur aukalög, og þar vakti mesta lukku Largo al factotum út Rakaranum frá Sevilla eftir Rossini. Það var þvílík flug­ eldasýning að fólk æpti af hrifn­ ingu. Hinn ógnarhraði söngur þar sem orðunum var skotið út eins og úr vélbyssu var fullkomlega skýr, hvergi heyrðist feilnóta. Ljóst er að Jóhann er ekkert síðri á óperu­ sviðinu en í ljóðasöngnum og er nú þegar kominn í hóp fremstu tón­ listarmanna þjóðarinnar. Jónas Sen niðuRsTAðA: Magnaður söngur og Gæsahúð aftur og aftur Ammiel Bushakevitz píanóleikari og Jóhann Kristinsson baritón slógu ærlega í gegn í Salnum. Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–15 | www.forlagid.is LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Reykjavík á 9. áratugnum Unglingur fótar sig í tilverunni Meitluð og áleitin skáldsaga KALT STRÍÐ OG HEITAR TILFINNINGAR FYRIR AÐSTOÐ INNANLANDS gjofsemgefur.is 9O7 2OO2 M e n n i n g ∙ F R É T T A B l A ð i ð 53l A u g A R D A g u R 2 1 . o K T ó B e R 2 0 1 7 2 1 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 1 1 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 9 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 0 7 -4 7 1 4 1 E 0 7 -4 5 D 8 1 E 0 7 -4 4 9 C 1 E 0 7 -4 3 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 1 2 s _ 2 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.