Fréttablaðið - 21.10.2017, Page 97
TónlisT
HHHHH
Jóhann Kristinsson baritón og
Amm iel Bushakevitz píanóleikari
fluttu lög eftir schumann, Mahler,
Rossini og fleiri.
salurinn í Kópavogi
fimmtudaginn 19. október
Ég las einhvers staðar að það séu
fjögur leiðarstef í kántrísöngvum.
Þau eru: 1. „Ást og trygglyndi“, 2.
„Hvernig á að lifa lífinu“, 3. „Það
gengur ekki“ og 4. „Þetta er búið.“
Þegar litið var yfir söngtextana á
tónleikum Jóhanns Kristinssonar
baritóns og Ammiel Bushakevitz
píanóleikara á tónleikum í Salnum
á fimmtudagskvöldið þá sá maður
eitthvað af þessum stefjum, sér
staklega það síðastnefnda. En
umfjöllunarefnið var miklu fjöl
breyttara, þarna voru líka ævintýri
og goðsagnir, náttúrustemningar og
heimspekilegar vangaveltur.
Jóhann söng fyrst Liederkreis
(Söngvasveig) op. 39 eftir Schu
mann. Hann gerði það fjarskalega
vel. Röddin var björt og hljómmikil,
afar tær á efstu tónunum. Túlkunin
var full af blæbrigðum, í senn öguð
og tilfinningarík.
Píanóleikurinn var ekki síðri.
Í þessum lögum, sem eru tólf,
stendur píanórullan jafnfætis
röddinni. Þetta er ekkert undir
spil af þeirri gerðinni sem oft er að
finna í íslenskum lögum. Nei, hér
bætir píanóið við því sem vantar
í sönginn og öfugt. Saman mynda
söngvari og píanóleikari eina heild.
Píanóið skapar stemninguna,
umhverfið, rammann utan um
sönginn. Umfjöllunarefni ljóðanna
endurspeglast í píanóleiknum. Þar
er að finna alls konar myndmál, og
það undirstrikar það sem söngvar
inn syngur um hverju sinni. Bush
akevitz gerði þetta meistaralega.
Leikur hans var margbrotinn, allt
frá ofurviðkvæmum hljómum upp
í magnaða hápunkta. Tónmynd
unin var sérlega falleg, gegnsæ og
fókuseruð, rétt eins og söngurinn.
Eftir hlé var Mahler á dagskránni.
Fyrst komu Söngvar förusveinsins,
sem segja frá ástarsorg og eru í
fjórum hlutum. Túlkunin var ákaf
lega sannfærandi, þrungin tilfinn
ingaofsa, sérstaklega þriðja ljóðið
sem var einkar áhrifamikið. Í því
fjórða, sem fjallar um ferðalag út í
nóttina og er gætt ólýsanlegu, him
nesku andrúmslofti, var stemningin
slík að það er ógleymanlegt. Hvílík
raddfegurð, hvílíkur töfrakenndur
píanóleikur. Hvílík upplifun!
Fjögur lög úr Des Knaben
Wunder horn eftir Mahler fylgdu
í kjölfarið. Það fyrsta, Revelge, er
saga úr hernum. Það var svo yfir
máta glæsilegt, bæði hjá söngvara
og píanóleikara að nokkrir tón
leikagestir stóðu upp þegar það var
búið til að láta í ljós hrifningu sína,
þótt tónleikunum væri ekki lokið.
Stígandin í laginu var ótrúlega
spennuþrungin; sívaxandi, ógnandi
hergöngutakturinn í píanóinu og
karlmannlegur, en örvæntingar
fullur söngurinn framkallaði gæsa
húð.
Þeir félagar tóku nokkur aukalög,
og þar vakti mesta lukku Largo al
factotum út Rakaranum frá Sevilla
eftir Rossini. Það var þvílík flug
eldasýning að fólk æpti af hrifn
ingu. Hinn ógnarhraði söngur þar
sem orðunum var skotið út eins og
úr vélbyssu var fullkomlega skýr,
hvergi heyrðist feilnóta. Ljóst er
að Jóhann er ekkert síðri á óperu
sviðinu en í ljóðasöngnum og er nú
þegar kominn í hóp fremstu tón
listarmanna þjóðarinnar.
Jónas Sen
niðuRsTAðA: Magnaður söngur og
Gæsahúð aftur og aftur
Ammiel Bushakevitz píanóleikari og Jóhann Kristinsson baritón slógu ærlega í gegn í Salnum.
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–15 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Reykjavík á
9. áratugnum
Unglingur fótar sig
í tilverunni
Meitluð og áleitin
skáldsaga
KALT STRÍÐ
OG HEITAR
TILFINNINGAR
FYRIR
AÐSTOÐ
INNANLANDS
gjofsemgefur.is
9O7 2OO2
M e n n i n g ∙ F R É T T A B l A ð i ð 53l A u g A R D A g u R 2 1 . o K T ó B e R 2 0 1 7
2
1
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
7
-4
7
1
4
1
E
0
7
-4
5
D
8
1
E
0
7
-4
4
9
C
1
E
0
7
-4
3
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
1
2
s
_
2
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K