Fréttablaðið - 10.11.2017, Page 2

Fréttablaðið - 10.11.2017, Page 2
Veður Í dag má búast við norðvestan hvassviðri og jafnvel stormi á austanverðu landinu en mun hægari vestan til. Él á Norður- og Austur- landi og einnig sunnan- og vestan- lands, en annars þurrt. Lægir heldur í kvöld, en fer að snjóa samfellt á Norðurlandi. sjá síðu 20 Frábært hár Það var mikið um dýrðir þegar hársnyrtideild Tækniskólans hélt útskriftarsýningu í gær. Mátti þar sjá brot af því besta sem nemendur höfðu upp á að bjóða. Sýningin var ein sú stærsta sem hársnyrtideildin hefur haldið enda eru nítján nemendur nú að útskrifast úr náminu. Fréttablaðið/anton brink LISSABON 16. nóvember í 3 nætur Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra . Frá kr. 64.995 m/morgunmat Borgarferð til samfélag Maðurinn sem Cherie Lockett leitaði að og sagt var frá í Fréttablaðinu í gær heitir Helgi Hannesson og býr í Reykjavík. Helgi flutti til Bandaríkjanna á fimmta aldursári og bjó fyrst í Michigan en síðan í New Jersey. Cherie átti mynd af Helga sem hún sendi blaðamanni í von um að finna hann. Helgi man ekki eftir Cherie en býður henni að senda sér skilaboð á Faeebook.  – jhh Man ekki eftir Cherie Lockett Atli Steinarsson látinn andlát Atli Steinarsson blaðamaður er látinn. Atli fæddist í Reykjavík 30. júní 1929 og stundaði nám við Verzlunar- skóla Íslands og Háskóla Íslands. Atli hóf störf á Morgunblaðinu árið 1950 og starfaði þar sem blaðamaður til ársins 1975. Þaðan fór hann á Dagblaðið þar sem hann starfaði til 1981 áður en hann fór á fréttastofu Ríkisútvarpsins. Þar var hann til 1986. Samhliða rak Atli og ritstýrði Mosfellspóstinum ásamt konu sinni, Önnu Bjarnason. Undanfarnar vikur var Atli félagi númer eitt í Blaðamannafélagi Íslands, eða frá því að Þorbjörn Guðmundsson lést. Atli var einn helsti hvatamaður að stofnun Sam- taka íþróttafréttamanna og gegndi þar formennsku í níu ár. – þea stangveiði Veiðigjöld í Elliðaám hækka á næsta ári en tillaga Stang- veiðifélags Reykjavíkur (SVFR) þess efnis var staðfest, með fyrirvara um samþykki Reykjavíkurborgar, á síðasta stjórnarfundi Orkuveitu Reykjavíkur. SVFR segir hækkunina nauðsynlega til að mæta kostnaðar- auka félagsins af rekstri ánna. Meðal þess sem bregðast þarf við er aukinn veiðiþjófnaður í ánum sem SVFR vill sporna við með aukinni veiði- vörslu. SVFR lagði í september síðast- liðnum fram tillögu um breytingar á verðskrá veiðigjalda sem samþykkt hefur verið af samráðsnefnd Elliða- áa, sem skipuð er fulltrúum SVFR og OR. Í erindinu kemur fram að beinn útlagður kostnaður SVFR við rekst- ur ársvæðisins hafi hækkað vegna rannsóknarsamninga og aukinnar veiðivörslu þar sem veiðiþjófnaður hafi aukist við árnar. Einnig standi til að bæta aðgengi veiðimanna að ánni. Ari Hermóður Jafetsson, fram- kvæmdastjóri SVFR, segir að hækk- unin fylgi verðlagsþróun en ekki sé gefið upp hverju hún nemur. SVFR beri allan rekstrarkostnað af ánum en til standi að bæta merkingar, aðgengi að veiðistöðum og vegslóða fyrir næsta sumar. „Rannsóknarkostnaðurinn felur í sér að við erum með miklar rann- sóknir á Elliðaánum af því að þær renna í gegnum borg og ef eitthvað gerist þurfum við að geta rakið það fljótt og auðveldlega. Svo er ekkert leyndarmál að það er mikið um veiðiþjófnað og við þurfum að bera kostnað af því öllu saman.“ Ari kveðst ekki hafa tölu á fjölda tilfella en að  þeir hafi orðið varir við fjölgun á atvikum sem til kasta félagsins hafa komið.  „Það eru bæði Íslendingar og útlendingar sem eru að stelast í árnar og við viljum efla gæslu. Við viljum koma í veg fyrir það sem mest er. Við höfum verið að merkja árnar betur, á mörgum tungumál- um, og viljum ganga lengra í því.“ mikael@frettabladid.is Veiðiþjófar hækka verð á leyfum í Elliðaánum Stangveiðifélag Reykjavíkur vill efla veiðivörslu við Elliðaár vegna aukins veiði- þjófnaðar jafnt Íslendinga sem útlendinga. Hækka á verð veiðileyfa til að kosta meiri veiðivörslu, rannsóknir, bættar merkingar og aðgengi að veiðistöðum. Verðskrá Elliðaáa hækkar vegna aukinna útgjalda. Meðal annars til að bregðast við veiðiþjófnaði. Fréttablaðið/GVa Það eru bæði Íslendingar og útlendingar sem eru að stelast í árnar. Ari Hermóður Jafetsson, framkvæmda- stjóri SVFR fólk „Við vorum bara ánægðar með það að hann stóð upp og tók ábyrgð og baðst afsökunar og tókum það bara gilt,“ segir Glódís Tara Fannars- dóttir. Hún og Anna Katrín Snorra- dóttir og Halla Ólöf Jónsdóttir þáðu í gær boð forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar á Bessastöðum. Konurnar þrjár urðu allar fyrir kynferðisofbeldi af hendi Roberts Downey sem fékk uppreist æru. Þær segja samtalið við Guðna hafa verið einlægt. Forsetinn hafi þakkað þeim fyrir baráttu sína og sagst vera stoltur af þeim. „Við metum það virkilega mikils og finnst það sýna hvað hann er góður og einlægur maður,“ segir Anna Katrín. – hh Baðst afsökunar Heimboð hjá forseta Íslands. 1 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 f Ö s t u d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 1 0 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 2 F -B 7 C 8 1 E 2 F -B 6 8 C 1 E 2 F -B 5 5 0 1 E 2 F -B 4 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 5 6 s _ 9 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.