Fréttablaðið - 10.11.2017, Side 4

Fréttablaðið - 10.11.2017, Side 4
 LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–15 Fjórtán ára strákur leggur upp í lífshættulegt ferðalag Áhrifamikil saga byggð á raunverulegum aðstæðum Fjölskyldubók í hæsta gæðaflokki Á FLÓTTA Dómsmál Jóni Steinari Gunn­ laugssyni, fyrrverandi hæstaréttar­ dómara, hefur verið stefnt fyrir meiðyrði. Benedikt Bogason hæsta­ réttardómari krefst þess að fimm ummæli í nýrri bók Jóns Steinars, Með lognið í fangið, verði dæmd dauð og ómerk. Ríkisútvarpið greindi frá málinu í gær. Í bók Jóns Steinars er meðal ann­ ars umfjöllun um mál Baldurs Guð­ laugssonar, fyrrverandi ráðuneytis­ stjóra. Segir Jón Steinar Hæstarétt hafa framið dómsmorð á Baldri. Benedikt var einn dómara í málinu. Hæstiréttur staðfesti tveggja ára fangelsisdóm yfir Baldri fyrir inn­ herjasvik og brot í opinberu starfi. Einn dómara, Ólafur Börkur Þor­ valdsson, vildi vísa málinu frá. – þea Dómari stefnir Jóni Steinari fyrir meiðyrði sKATTAR Kristjáni Vilhelmssyni, framkvæmdastjóra og einum stærsta eiganda útgerðarfélagsins Samherja, og eiginkonu hans hefur verið gert að greiða sex milljónir í sekt vegna skattalagabrota. Hjónin hafa ekki skilað skattframtali frá árinu 2005 og að auki hafa þau van­ talið tekjur sínar og eignir. „Ég hef svo sem ekkert um það að segja nema það að við borgum þá sekt,“ segir Kristján. Úrskurður yfirskattanefndar tekur til áranna 2012 og 2013. Rannsókn Ríkisskattstjóra leiddi í ljós að launagreiðslur Kristjáns námu 38 milljónum króna en að auki hafi hann fengið rúmar fimm milljónir í dagpeninga og bifreiða­ hlunnindi. Vaxtatekjur hans af inni­ stæðum námu 25 milljónum og þá fékk hann rúmlega 1,2 milljarða króna greiddan í arð af hlutabréfum sínum. Eiginkona Kristjáns fékk á sama tímabili alls 38 milljónir króna í arð af hlutabréfum sínum. Fast­ eignir þeirra hjóna voru metnar á 109 milljónir árið 2012 en höfðu hækkað í tæpar 134 milljónir ári síðar. Þá hafði skattinum ekki verið gert viðvart um rúmlega 485 millj­ ónir á bankareikningi í Lúxemborg og hann ekki látinn vita af eignum sem voru geymdar í aflandsfélagi. Fyrir bæði árin var þeim áætl­ aður skattstofn og reyndist hann undir rauneignum þeirra. Ekki þótti ástæða til þess af Ríkisskattstjóra að endurákveða álagningu þeirra. Að teknu tilliti til þess, og að þau hafa ekki skilað skattframtölum í um áratug, þótti yfirskattanefnd hæfi­ leg sekt vera fimm milljónir handa Kristjáni en milljón króna handa konu hans. Á tímabilinu var Kristján einn þeirra sem greiddu hæstu opinberu gjöldin hér á landi. Árið 2012 voru opinber gjöld hans 152 milljónir króna þrátt fyrir að skattstofnar hans hafi verið vantaldir og var hann annar á lista yfir skattakónga landsins.  Opinber gjöld hans ári síðar voru tæpar 190 milljónir króna. – jóe Sex milljóna króna sekt fyrir að vantelja milljarða króna til skatts Hjónin geymdu um hálfan milljarð króna á bankareikningi sem þau eiga í Lúxemborg. NORDIC PHOTOS/GETTY Dómsmál Hæstiréttur hafnaði í gær að ógilda synjun Samskipta­ miðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra um endurgjalds­ lausa túlkaþjónustu Áslaugar Ýrar Hjartardóttur, 21 árs gamallar dauf­ dumbrar konu. Hún vildi þjónust­ una vegna þátttöku í sumarbúðum fyrir daufdumb ungmenni í Svíþjóð. „Hæstiréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms. Ég er vonsvikin, enda taldi ég mig búa í réttarríki. Nú mun ég setjast niður og íhuga næstu skref, baráttunni er hvergi lokið,“ skrifaði Áslaug á Facebook. – nhþ Áslaug Ýr tapaði í Hæstarétti ÞungARoKK „Hátíðin fór á hliðina í sumar og við höfum verið að vinna í því að koma henni á réttan kjöl,“ segir Karl Óttar Pétursson, framkvæmdastjóri þungarokkshá­ tíðarinnar Eistnaflugs. Hátíðin er rómuð fyrir einstaka stemningu og andrúmsloft en í sumar kom færra fólk en vanalega og ákveðin atriði reyndust dýrari en gert var ráð fyrir. Alls nam tapið 20 milljónum og hafa eigendur róið lífróður til að bjarga hátíðinni. Hafa safnað 17 milljónum, meðal annars með hlutabréfasölu en hægt er að kaupa eitt prósent í hátíðinni á 200 þús­ und krónur. „Við höfum verið að selja hluta­ bréfin til að fjármagna tapið. Það eru sjö prósent eftir. En salan dugar ekki alveg því að enn er þriggja milljóna króna bil sem við þurfum að brúa,“ segir Karl Óttar. Að að sögn Karls Óttars vantar hátíðina einn stóran styrktaraðila en töluvert hefur verið fjallað um áhugaleysi bæjaryfirvalda fyrir aust­ an gagnvart hátíðinni. Tónlistarhá­ tíðin hefur verið haldin árlega, aðra helgina í júlí, í Neskaupstað síðan sumarið 2005. Þar spila bæði inn­ lendar og erlendar hljómsveitir yfir alls fjóra daga og hefur íbúafjöldi bæjarins tvöfaldast meðan hátíðin stendur yfir. Er miðasala á Eistna­ flug 2018 hafin. „Okkur vantar þrjár milljónir og við þurfum að finna einhvern til að styrkja okkur. Okkur vantar stór­ an styrktaraðila til að vinna með okkur. Einhvern sem sér sér hag í því að tengjast því sem við stöndum fyrir. Við erum að bóka bönd fyrir komandi hátíð og við trúum að við náum að fylla upp í þetta gat. Við ætlum að standa við okkar skuld­ bindingar. Við skiljum engan eftir enda bannað að vera fáviti,“ segir Karl Óttar en það eru einmitt ein­ kunnarorð hátíðarinnar. Í þau tólf skipti sem hátíðin hefur verið hald­ in hafa þessi orð fengið sífellt meiri hljómgrunn enda sönn og góð. „Við keyrum á þeirri sérstöðu að allir séu vinir og þarna komi fólk til að upplifa stemningu. Þetta er ekki fyllerí til að lemja og vera vondur við náungann. Þarna er menningin að vera góður og allir hjálpast að. Allir tala við alla og við viljum efla þá menningu. Við höfum  reynt að axla sam­ félagslega ábyrgð og leggjum áherslu á að við stöndum fyrir ábyrgð,“ segir Karl Óttar. benediktboas@365.is Safnað upp í tuttugu milljóna króna gat eftir Eistnaflug 2017 Tuttugu milljóna króna mínus varð á þungarokkshátíðinni Eistnaflugi í Neskaupstað. Hátíðin fór á hliðina í sumar að sögn framkvæmdastjórans sem kveður skipuleggjendur og eigendur hátíðarinnar róa lífróður til að bjarga fjármálunum, meðal annars með því að selja hlutabréf í hátíðinni á 200 þúsund krónur stykkið. Stefán Jakobsson úr Dimmu þenur leðurbarkann á Eistnaflugi þar sem gleðin hefur alltaf verið við völd. Nú er þó þungt yfir og blikur á lofti enda vantar þrjár milljónir til að koma út á núlli. MYND/FREYJa GYLFaDóTTIR Áslaug Ýr Hjartardóttir 1 0 . n ó v e m b e R 2 0 1 7 F Ö s T u D A g u R4 F R é T T i R ∙ F R é T T A b l A ð i ð 1 0 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 2 F -C B 8 8 1 E 2 F -C A 4 C 1 E 2 F -C 9 1 0 1 E 2 F -C 7 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 9 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.