Fréttablaðið - 10.11.2017, Page 8

Fréttablaðið - 10.11.2017, Page 8
Stjórnmál Skiptar skoðanir eru meðal þingmanna um óformlegar þreifingar milli Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Framsóknar- flokks um myndun ríkisstjórnar. Það yrðu vonbrigði beiti Katrín sér ekki fyrir því að öflugustu kven- skörungar þingsins verði í forystu enda hafi hún nefnt jafnréttismálin sérstaklega þegar henni var veitt umboð til stjórnarmyndunar í síð- ustu viku.; þetta er mat þingmanna sem hugnast best stjórn frá vinstri til miðju. Auk Katrínar sjálfrar nefna þessir þingmenn Lilju Alfreðsdótt- ur, Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Helgu Völu Helgadóttur. Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar hefur lýst því yfir að ekki sé enn fullreynt að mynda stjórn frá vinstri til miðju. Hann hefur rætt bæði við Katrínu og Sigurð Inga eftir að upp úr viðræðum slitnaði og ræðir við aðra forystumenn í dag. Þetta herma heimildir blaðs- ins. Ekkert talsam- band mun hins vegar vera milli formanna Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. S a m k v æ m t heimildum Frétta- blaðsins mun Katr- ín leiða formlegar viðræður Sjálfstæð- isflokks, Vinstri grænna og Fram- sóknarflokks ef af þeim verður, gegn því að þingstyrkur Sjálfstæðis- flokksins endurspeglist með öðrum hætti í stjórninni. Náist samkomu- lag milli forystumanna flokkana um þessi atriði, verða málin rædd í þingflokkum. Það ræðst í kjöl- far þeirra hvort Katrín getur farið á fund forseta með meirihluta til formlegra viðræðna. Þeir þingmenn VG sem náðist í í gær segjast bera fullt traust til Katr- ínar til að leiða viðræður. Í kosn- ingabaráttunni hafi flokkurinn ekki útilokað samstarf við neinn og samstarfið þurfi að ráðast af málefnum. Sjálfstæðismenn sem Fréttablað- ið hefur rætt við segja öll möguleg stjórnarmynstur erfið og í rauninni engan kost sérstaklega góðan. Það þurfi að koma í ljós hvort þessir flokkar sem nú ræðast óformlega við geti komið sér saman um mál- efnin og það geti orðið flókið. Hins vegar þurfi sú stjórn sem mynduð verður að endurspegla niðurstöðu kosninganna og þá staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn er langstærsti flokkurinn. Gefi flokkurinn frá sér forsætisráðuneytið þurfi stjórnin að endurspegla ólíka stærð flokkanna með öðrum hætti. Einn viðmælenda blaðsins hafði á orði að stjórn mynduð af þessum flokkum sem aldrei hafi starfað saman í ríkisstjórn áður, gæti þrátt fyrir allt orðið upphaf sögulegra sátta stjórnmálanna í landinu eftir áratug af ólgu og miklum átökum. adalheidur@frettabladid.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ www.skoda.is MINNI EYÐSLA, MEIRA PLÁSS, MEST GAMAN ŠKODA OCTAVIA G-Tec. FULLVAXINN FJÖLSKYLDUBÍLL SEM SPARAR ÞÉR KRÓNURNAR. ŠKODA OCTAVIA frá: 3.350.000 kr. Octavia G-Tec er einn mest seldi bíll á Íslandi, enda bæði sparneytinn og góður í endursölu. Hann er mjög rúmgóður og gengur bæði fyrir bensíni og metani sem lækkar eldsneytiskostnaðinn til muna. Komdu í reynsluakstur og kynnstu Octaviunni betur. DómSmál Hæstiréttur dæmdi í gær Magnús Skarphéðinsson, formann Sálarrannsóknarfélags Reykjavíkur og formann Félags áhugafólks um fljúgandi furðuhluti, í tveggja mán- aða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur sautján ára piltum. Brotið átti sér stað í heita pottin- um í Laugardalslauginni í desember 2014. Var Magnús jafnframt dæmd- ur til þess að greiða öðrum piltanna 300 þúsund krónur í miskabætur en hinum 200 þúsund krónur. Hæstiréttur staðfesti dóm héraðs- dóms frá því í desember á síðasta ári en meðal annars var litið til þess við ákvörðun refsingar að Magnús hafði ekki áður gerst sekur um refsivert brot. Brot Magnúsar fólst í því að hann viðhafði kynferðislegt tal við dreng- ina er þeir voru staddir í heitum potti í Laugardalslauginni að kvöld- lagi í desember 2014. Hann á meðal annars að hafa sagt við annan pilt- anna að hann ætlaði að „taka hann í rassinn“. Því næst togaði hann í buxnastreng á sundbuxunum hans en tókst ekki að draga buxurnar niður fyrir kynfæri hans. – nhþ Skilorð fyrir kynferðisbrot Magnús Skarphéðinsson braut á tveimur piltum. Fréttablaðið/GVa Vilja kvenskörungana í stjórn Skiptar skoðanir eru meðal þingmanna um óformlegar viðræður Sjálfstæðismanna, VG og Framsóknar. Katrín mun leiða viðræðurnar ef af þeim verður. Forystumenn á vinstri vængnum hafa ekki misst alla von. 1 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F Ö S t U D A G U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t A b l A ð i ð 1 0 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 2 F -F 3 0 8 1 E 2 F -F 1 C C 1 E 2 F -F 0 9 0 1 E 2 F -E F 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 9 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.