Fréttablaðið - 10.11.2017, Side 18

Fréttablaðið - 10.11.2017, Side 18
Ástkær faðir minn, stjúpfaðir og tengdafaðir, Hans Ragnar Berndsen Aflagranda 40, Reykjavík, lést á Landspítalanum Fossvogi laugardaginn 4. nóvember. Útförin fer fram frá Neskirkju við Hagatorg þriðjudaginn 14. nóvember kl. 15.00. Regína Berndsen Kristjana Albertsdóttir Ragnhildur Albertsdóttir Rúnar Benjamínsson Hrönn Albertsdóttir Lilja Albertsdóttir Ásgeir Albertsson Jarþrúður Jónsdóttir Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, Örn Ingólfsson fyrrverandi framkvæmdastjóri, Bogahlíð 8, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans þriðjudaginn 8. nóvember. Lóa Gerður Baldursdóttir Þórdís Arnardóttir Gunnlaugur Sigurjónsson Herdís B.A. Diederichs Jürgen Diederichs Örn Ingi Arnarson Sigríður Ákadóttir Baldur Arnarson Zoë Robert og barnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Haukur Hjaltason forstjóri og athafnamaður, lést miðvikudaginn 8. nóvember á gjörgæsludeild Landspítalans. Útförin fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 16. nóvember kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Þórdís Jónsdóttir Charlotta María Hauksdóttir Úlfar Erlingsson Guðjón Heiðar Hauksson Jóhanna Guðrún Gunnarsd. Jón Daði Ólafsson Ásdís Óskarsdóttir Kolbrún Ingimarsdóttir Svava Jóhannesdóttir María R. Hauksdóttir Waage afabörn og langafabörn. Ástkær eiginkona mín og systir, Sigríður Stefánsdóttir Smyrlaheiði 29, Hveragerði, lést að heimili sínu 23. október. Minningarathöfn fer fram í Fossvogskapellu miðvikudaginn 15. nóvember kl. 13.00. Útför fer fram frá Ásheimum, Efra-Ási í Hjaltadal laugardaginn 18. nóvember kl. 14.00. Jarðsett verður í Hofsóskirkjugarði. Sigurgeir Snorri Gunnarsson Guðmundur J. Stefánsson Björn Stefánsson Stefán Lárus Stefánsson Steingrímur Páll Stefánsson Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og stuðning vegna andláts elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, Steinunnar Kristínar Gísladóttur áður til heimilis á Njálsgötu 102. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu í Reykjavík fyrir einstaklega góða umönnun og hlýhug. Björgvin Sigurðsson Lilja Leifsdóttir Alda Sigurðardóttir Ómar Kaldal Ágústsson Sigríður Rúna Sigurðardóttir og barnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður, tengdaföður, afa og langafa, Alfreðs Kristjánssonar frá Hrísey. Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á hjúkrunarheimilinu Eir. Sigurveig Alfreðsdóttir Gunnar H. Hall Ásta Herdís Hall Einar Guðfinnsson Alfreð Hall Thi Dar Mwe Gunnsteinn Hall Yanan Chen og langafabörn. Elsku konan mín, móðir, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, Helga Jóhannsdóttir sjúkraliði, Hrafnabjörgum 1, Akureyri, lést 5. nóvember á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Útförin fer fram frá Hjallakirkju í Kópavogi fimmtudaginn 16. nóvember kl. 15.00. Viggó Benediktsson Karen Grétarsdóttir Unnar Eiríksson Guðný Fjóla Árnmarsdóttir Kolbrún Eiríksdóttir Gunnlaugur Bogason Jóhann Eiríksson Heiðrún Dúadóttir Jórunn Viggósdóttir María Viggósdóttir Ríkharður Oddsson Svava Viggósdóttir Sigurður Hafsteinsson Bryndís Viggósdóttir Guðmundur Sigurjónsson Benedikt Viggósson ömmu- og langömmubörn. 1 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U r18 T í m A m ó T ∙ F r É T T A b L A ð i ð tímamót Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Í dag verður morgunverðarstaður­inn Grái kötturinn 20 ára. Af því til­efni verður boðið í afmælispönnu­kökupartí þar sem hægt verður að fá stafla af pönnukökum á 20 ára gömlu verði eða 500 krónur. Ekki nóg með það að staðurinn sé 20 ára heldur er útidyrahurðin að staðnum 90 ára. Það er því sannarlega tilefni til að fagna í dag. Þegar staðurinn var opnaður árið 1997 var ekki vanalegt að bjóða upp á matseðil eins og þá var í boði, og hefur verið í boði nánast óbreyttur síðan þá. „Grái kötturinn var stofnaður af hjón­ unum Jóni Óskari og Huldu Hákon. Þau höfðu verið í listnámi í Brooklyn, New York en þegar þau komu heim fannst þeim vanta þennan ameríska morgunmat sem þau voru svo hrifin af í Bandaríkjunum. Þau fengu húsnæði og opnuðu þá þennan stað, meðal annars til að svala eigin þörf fyrir bandarískan morgunmat,“ segir Ásmundur Helgason hlæjandi um það hvernig þetta byrjaði allt saman og hvaðan hugmyndin um að afgreiða amerískar pönnukökur hafi komið, en hann ásamt Elínu Ragnars­ dóttur, konu sinni, er núverandi eigandi Gráa kattarins. „Friðrik Weisshappel hjálpaði þeim við að hanna staðinn að innan og það er mikið af listaverkum eftir þau á veggj­ unum. Staðurinn hefur svo bara gengið vel í þessi 20 ár og matseðilinn haldist nánast óbreyttur. Svo í sumar fannst þeim Jóni Óskari og Huldu vera komið nóg hjá þeim og við hjónin fréttum af því, þau eru vinafólk okkar, þannig að þetta endaði með að við keyptum staðinn í júlí. Það gengur bara afskap­ lega vel.“ Nafn staðarins er bæði dregið af kett­ inum Jósteini sem flatmagaði á ofni í vinnustofu Sigmars Ó. Maríussonar sem var áður með verslun í húsnæðinu sem Grái kötturinn er í og einnig orða­ tiltækinu, sem snýr að fastagestum – en fastagestir hafa einmitt einkennt staðinn í þessi 20 ár og er til að mynda pönnu­ kökuuppskriftin þróuð með hjálp frá einum slíkum; tónskáldinu Leifi Þórar­ inssyni. Hann mætti daglega snemma á morgnana og kom með athugasemdir um pönnukökurnar, uppáhaldsréttinn sinn, þangað til að þær urðu smátt og smátt eins og þær eru. Valdimar Tómasson ljóðskáld var líka fyrsti gestur staðarins, og sá eini fyrsta daginn. Hann sat í þann klukkutíma sem staðurinn var opinn þann daginn og drakk malt. „Við ætlum að halda upp á afmælið í dag. Það verður stafli af „pönnsum“ með sírópi og smjöri auðvitað á fimm­ hundruð kall. Þannig að þú getur fengið pönnukökur og kaffi fyrir þúsund kall. Það verður líka allur matseðillinn í boði og við ætlum að hafa opið á meðan fólk mætir,“ segir Ásmundur en Grái köttur­ inn er opnaður klukkan 7.30. stefanthor@frettabladid.is Amerískar pönnukökur í stöflum í heil 20 ár Grái kötturinn hefur verið morgunverðarstaður að amerískri fyrirmynd í 20 ár. Í dag verður haldið upp á þann áfanga með pönnukökupartíi þar sem staflinn fæst á 20 ára gömlu verði. Einnig er útidyrahurðin 90 ára. Sannarlega tímamót. Grái kötturinn er á besta aldri þó að útidyrahurðin sé orðin öldungur. þegar þau komu heim fannst þeim vanta þennan ameríska morgunmat sem þau voru svo hrifin af í Bandaríkjunum. Þau fengu húsnæði og opnuðu þá þennan stað, meðal annars til að svala eigin þörf fyrir bandarískan morgunmat 1 0 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 2 F -D 5 6 8 1 E 2 F -D 4 2 C 1 E 2 F -D 2 F 0 1 E 2 F -D 1 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 9 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.