Fréttablaðið - 10.11.2017, Síða 28

Fréttablaðið - 10.11.2017, Síða 28
Brynhildur Björnsdóttir brynhildur@365.is Alibaba seldi varning fyrir um fjór- tán milljarða Bandaríkjadala á Singles’ Day í fyrra og stefnir í enn meira núna. Ellefti ellefti eða 11.11. er kallaður dagur hinna einhleypu en gengur í æ ríkari mæli út á að finna ástina. Hér sýna tvö kínversk ung- menni listaverk sem þau gerðu í tilefni dagsins í fyrra. Singles’ Day eða degi ein-hleypra er fagnað víða um heim á morgun, 11. nóvem- ber, einkum þó með vefverslun og velgjörningi við sig á þeim vettvangi. Hátíðin á upptök sín hjá háskólanemum í Nanjing í Kína á tíunda áratugnum þar sem ungir karlmenn hörmuðu það hlutskipti sitt að vera einhleypir en vegna einsbarnsstefnu yfirvalda þar í landi eru ungir karlmenn undir þrítugu tuttugu milljónum fleiri en konur. Þeir ákváðu að halda nokk- urs konar „and“-Valentínusar dag til að fagna einhleypi sínu og fyrir valinu varð dagsetning sem samanstendur af tölunni einn fjórum sinnum eða ellefti dagur ellefta mánaðar, 11.11. Þegar þessir nemendur útskrifuðust út háskóla héldu þeir venjunni áfram og smám saman breiddist hún út um Kína. Dagurinn var fyrst nefndur piparsveinadagurinn þar sem upphafsmennirnir eru karlkyns en er nú fagnað af báðum kynjum um heim allan. Dagur einhleypra er afsökun fyrir einhleypa vini til að taka sig saman, skvetta úr klaufunum Dagur einhleypra 11.11. 11. nóvember hefur tekið við af svarta föstudeginum sem stærsti útsöludagur ársins um víða ver- öld. Dagur einhleypra, sem svo er kallaður, er upprunninn í Kína en þá fagna einhleypir einlífi sínu. og fagna einlífi sínu. Það er líka vinsælt að fara á blint stefnumót á þessum degi, jafnvel eru haldnar svokallaðar blindstefnumóta- veislur þar sem einhleypir af öllum kynjum koma saman í von um að binda enda á einlífið. Því að þó til dagsins sé stofnað til að fagna einlífinu þá skín sú þrá að finna lífsförunaut sterkt í gegn. Þannig verður Singles’ Day dagur ástarinn- ar og sem slíkur fyrir ferðar mikill í kínverskum fjölmiðlum. Talan einn er einnig túlkuð í merking- unni sá eða sú eini/a rétta, og þann- ig kemur ástartengingin. Árið 2011 var einstaklega mikil- vægur stakdagur þar sem talan einn kom þá sex sinnum fyrir í dagsetningunni, 11.11.11. Tíðni trúlofana og hjúskaparsáttmála var meiri þennan dag en aðra daga og margir sem vildu fagna ástinni þó aðrir hafi eflaust viljað fagna einlífinu enda hefur hvort tveggja nokkra kosti. Risavefverslanir eins og Alibaba höfðu nýtt tækifærið sem þessi nýi hátíðisdagur bauð upp á frá 2009 og auglýst einstök tilboð á þessum einstaka degi. 11.11.11 voru tilboðin betri en nokkru sinni og í kjölfarið varð sprenging í vefverslun. Í fyrstu voru tilboðin helst á varningi sem tengdist hjúskaparstöðu og leitinni að ástinni en í dag er Singles’ Day einn allsherjartilboðsdagur í vef- verslun og hefur löngu skákað svarta föstudeginum í sölutölum en hann hefur löngum verið helsti jólaútsöludagurinn í verslunum í Bandaríkjunum og víðar. Daginn áður, eða 10. nóvember, heldur vefverslunarrisinn Alibaba gríðar- stóra galaveislu þar sem starfs- fólk og stjörnur fagna útsölunum saman og sölutölur eru birtar á risaskjá enda er dagurinn líka oft kallaður Alibaba-dagurinn í Kína og víðar. 6 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . N óv E m B E R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U RNEtSöLuDAGuRINN Dagur vefve rslunn ar 30% a f öllu í vefve rslun www. lindes ign.is 1 0 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 2 F -D 0 7 8 1 E 2 F -C F 3 C 1 E 2 F -C E 0 0 1 E 2 F -C C C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 9 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.