Fréttablaðið - 10.11.2017, Síða 32

Fréttablaðið - 10.11.2017, Síða 32
Sífellt fleiri eldri borgarar hérlendis nýta sér vefversl­anir og mun þeim vafalaust fjölga jafnt og þétt næstu árin. Misjafnt er hvernig hver og einn nýtir sér þær en Gísli Jafetsson, framkvæmdastjóri Félags eldri borgara í Reykjavík (FEB), minnist þess þegar hann hóf að kynna sér netverslanir fyrir nokkrum árum. „Ætli þetta hafi ekki byrjað með kaupum á farmiðum, sennilega hjá Flugfélagi Íslands eins og það hét á þeim tíma. Svo kom Hópkaup og ég var duglegur þar á tímabili en hvað á maður að gera við tíu hamborgaratilboð eða svifbretti?“ Hann segir að í fyrstu hafi verið spennandi að fá ýmis nettilboð en svo hafi það breyst. „Fyrst var spennandi að fá tilboð og maður stökk á það og oft án þess að hugsa. Svo hefur það þróast smátt og smátt að maður verður ónæmari fyrir tilboðum og lætur þau fara fram hjá sér. Raunar verð ég ósköp feginn þegar tilboðið hefur fallið á tíma.“ Þjónustan oft góð Í dag vega kaup frá útlöndum þyngst þegar kemur að netverslun Gísla. „Þá ekki endilega í krónum talið því kaup á t.d. farmiðum og ferðum eru hærri upphæðir. Ég er allavega alveg hættur að kaupa fatnað á netinu, það hefur ekki reynst mér vel. Samræming í stærðum á fatnaði, t.d. medium, er ekki sú sama alls staðar. Það gildir þó ekki bara fyrir netverslanir en það er erfiðara að máta í netversl­ unum áður en keypt er!“ Oft er sagt að persónuleg þjónusta sé ekki fyrir hendi í net­ verslun en Gísli er ekki endilega sammála því. „Í flestum net­ verslunum í dag er boðið upp á net spjall, t.d. í Bandaríkjunum, þar sem það er alltaf einhver á vaktinni sem getur svarað þér. Þessi „netspjöll“ geta vel þjónað sem persónuleg þjónusta. Oft veit sá sem svarar, hvar sem hann er í heiminum, meira um viðkomandi vöru en starfsmaður í verslun. Alla­ vega sérðu viðkomandi ekki lesa sér til um vöruna eins og stundum gerist í verslunum þegar þú spyrð að einhverju.“ Námskeið opna augun Munurinn er helst sá að maður tekur sjálfur ákvörðun um kaup í netverslun án beins eða óbeins þrýstings frá starfsmanni, sem jú oft veitir þjónustuna, segir Gísli. „Í netverslun kemur kannski til annar þrýstingur eins og skyndi­ afsláttur sem „poppar upp“ á ákveðnum stað í ferlinu sem er þá gert til að hafa óbein áhrif á kaup­ hegðun þína.“ En hvaða tilfinningu skyldi Gísli hafa fyrir því hvernig eldra fólk nýtir sér netverslun og hvaða kosti hefur hún fyrir eldri borgara, umfram hefðbundnar verslanir? „FEB hefur staðið fyrir og stendur fyrir fjölda spjaldtölvunámskeiða þar sem farið er í fjölmargar athafnir á netinu, m.a. verslun. Þetta er ekki beint kennsla í vef­ verslun né yfirferð umsókna en þó er kennt hvernig hægt er að nálgast vefsíður og hvað þurfi að hafa í huga. Við höfum síðan heyrt að þessi námskeið opni augu fólks fyrir möguleikunum. Einn­ ig tek ég eftir því að auglýsing á síðum félagsins, www.feb.is, og á Facebook auka strax „sölu“ á öllum viðburðum og námskeiðum á vegum félagsins.“ Stífari markaðssetning Kosti netverslunar fyrir þennan aldurshóp má t.d. sjá á þungum vetrardögum þegar færðin er erfið. „Þá er auðveldara að sjá um dagleg neysluinnkaup og svo reyndar alla daga því ekki eiga allir eldri borgarar heimangengt. En að sjálfsögðu hvetjum við til hreyfingar þó ekki væri nema að rölta út í búð.” Aðspurður hvernig hann sjái fyrir sér þróunina þegar kemur að vefverslunum og notkun eldri borgara segist hann sjá fyrir sér meiri og þéttari markaðssetningu sem stýrt er af einhverjum „stóra bróður“ sem telur sig vita hver þörf þessa hóps sé, sem og annarra hópa. „En til viðbótar við þennan hóp þá bætist við að koma vörunni heim að dyrum, beint til neytand­ ans, og þar vona ég að Félag eldri borgara Í Reykjavík og nágrenni geti kynnt nýjung á næstunni okkar félagsmönnum til þæginda og vonandi hagsauka.“ Sparar mörgu eldra fólki sporin og óþarfa fyrirhöfn Fleiri eldri borgarar hér á landi nýta sér vefverslanir en áður. Áður þótti mörgum skorta á per- sónulega þjónustu en viðmót margra vefverslana hefur breyst. Félag eldri borgara í Reykjavík kynnir á næstunni nýjung til félagsmanna sem snýr að heimsendingu vara úr vefverslunum. Starri Freyr Jónsson starri@365.is „Þá er auðveldara að sjá um dagleg neysluinnkaup og svo reyndar alla daga því ekki eiga allir eldri borgarar heimangengt,” segir Gísli Jafetsson, framkvæmda- stjóri Félags eldri borgara í Reykjavík. MYND/EYÞÓR JÓLABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS Stóra jólablaðið frá Fréttablaðinu kemur út þriðjudaginn 28. nóvember. Áhugasamir auglýsendur hafið samband við auglýsingadeild sérblaða í síma 512 5402 Blaðið er stútfullt af allskonar skemmtilegu efni tengdu jólunum. 10 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . N Óv E M B E R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U RNEtSöLuDAGuRINN 1 0 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 2 F -E 9 2 8 1 E 2 F -E 7 E C 1 E 2 F -E 6 B 0 1 E 2 F -E 5 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 5 6 s _ 9 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.