Fréttablaðið - 10.11.2017, Síða 42

Fréttablaðið - 10.11.2017, Síða 42
Alveg síðan ég man eftir mér kom aldrei annað til greina en að verða leikkona. Ekki kvikmyndaleikkona heldur sviðsleik- kona og ég vinn aðallega í leikhúsi. Kvikmyndirnar eru meira eins og létt hliðarspor frá því,“ segir Diana Cavallioti, aðalleikkona rúmensku kvikmyndarinnar Ana, Mon Amour í leikstjórn Cãlin Peter Netzer. Ana, Mon Amour hefur hlotið afar góðar viðtökur, hlaut m.a. Silfurbjörninn á kvikmyndahátíðinni í Berlín, og er hingað komin í tilefni af Rúmenskum kvikmyndadögum í Bíó Paradís sem hófust í gærkvöldi og standa fram til sunnudags. Erfið vinna Ana, Mon Amour segir ástarsögu þeirra Önu og Toma en hér er engin venjuleg ástarsaga á ferðinni. Ana glímir við alvarlega kvíðaröskun með tilheyrandi kvíðaköstum og margháttuðum vandamálum og hér er í senn tekist á við þessi veikindi sem og fylgifiska þeirra í sambandi unga parsins. Diana Cavallioti segir að velgengni Ana, Mon Amour hafi að mörgu leyti komið henni á óvart. „Þetta er mynd sem ég hafði samt mikla trú á vegna þess að hún dregur þig strax svo djúpt inn í söguna með þeim afleiðingum að þú annaðhvort elskar hana eða hatar. Það er ekk- ert þar á milli. Það er ekki hægt að labba út af þessari mynd og gleyma henni vegna þess að hún dvelur með þér og krefur þig um að taka afstöðu í ákveðnum málum. Hún snertir þig persónulega og það er hennar styrkur.“ Diana Cavallioti segir að það hafi líka tekið gríðarlega á að gera myndina. „Við æfðum í þrjá mánuði, sjö daga í viku í tíu tíma á dag og svo fórum við í þerapíu til þess að skilja betur um hvað það snýst og svo þurfti ég líka að stúdera sérstaklega kvíða- köstin og taugaveiklunina og þau veikindi sem mín persóna er að glíma við. Og ég neita því ekki að þetta var erfitt ferli.“ Ást og þörf Þrátt fyrir þennan þunga undirtón myndarinnar er Ana, Mon Amour ástarsaga og Diana Cavallioti segir að það sé mikilvægt að missa ekki sjónar á því. „Þetta byrjar eins og hver önnur ástarsaga en þegar tvær manneskjur taka saman þá kemur alltaf að því að þau koma með öll sín vandamál inn í sambandið. Það er svo algjört happ- drætti hvort viðkomandi tekst að láta þetta passa – að vandamálin verði bærileg og gagnkvæmur skilningur ríki í sambandinu. Ef ekki þá fer allt að liðast í sundur og það er það sem gerist í þessari sögu. Þessi saga er kannski öfgakennt dæmi vegna veikinda Önu og allra pill- anna sem hún er að taka en það breyt- ir því ekki að fólk þekkir sig í þessu. Þetta er nefnilega um samskiptin og samskiptaleysið og að ganga í hjóna- band sem átti aldrei að verða og þetta er mörgum kunnuglegt. Málið með veikindi á borð við þessi er að þau eru oft svo erfið fyrir aðstandendur. Önu tekst að takast á við sín veikindi með því að leita sér meðferðar en þá einmitt situr Toma eftir. Situr eftir án tilgangs vegna þess að veikindi hennar gefa honum mikil- vægi og þannig er þetta líka ákveðin valdabarátta. Þessi þörf fyrir að ein- hver þurfi á manni að halda getur verið svo sterk.“ Árans raunveruleiki Rúmensk kvikmyndgerð er hægt vaxandi enda fjármögnunin erfið. Diana Cavallioti segir að í Rúmeníu sé þetta jafnvel enn erfiðara en hjá flestum öðrum þjóðum í Evrópu. „Jafnvel þótt mynd gangi vel utan Rúmeníu þá virðist öllum heima vera sama. Það er sérstaklega erfitt fyrir unga kvikmyndagerðarmenn að komast á kortið því það er ekkert fé að hafa nema fyrir þá sem eru með mikla reynslu. Það sem er sorglegast við þetta er að Rúmenar mæta illa á rúmenskar myndir. Þeir mæta kannski ef mynd fær Gullbjörninn en Silfurbjörninn er ekki nóg,“ segir Diana og getur ekki annað en brosað. „En fólk fer í bíó og það fer líka í leikhús sem er frábært. En fólk vill ekki sjá myndir um litlu eldhúsvandamálin sem bíða þegar heim er komið. Fólk vill sjá stærri myndir, drauma og ævintýri, eitthvað sem sópar þeim burt frá gráma hversdagsins. Vandinn er að það er dýrara að gera slíkar myndir og vonlaust að fá fjármagnið til þess að láta af þeim verða. Árans raun- veruleiki alltaf að skemma allt,“ segir Diana og skellihlær. Grasið grænna Rúmenía býr að langri og glæstri sögu í menningu og listum en auk þess býr þjóðin yfir ákveðinni sér- stöðu með tungumáli sínu þar sem það er einvörðungu talað í Rúmeníu. Diana Cavallioti segir að því miður virðist Rúmenar ekki hafa mikinn áhuga á því að varðveita menningu sína og tungumál. „Nei, í rauninni ekki. Rúmenar vilja ekki halda í neitt. Við erum galopið samfélag sem virð- ist þrá það eitt að allt og allir komi og leggi okkur undir sig. Rúmenar eru þjóð á stöðugum flótta undan sínum eigin persónuleika vegna þess að þeim líkar ekki við hann. Við vorum svo lengi lokuð af frá heiminum undir oki kúgunar og það hefur verið gríðarlega erfitt fyrir for- eldra okkar, ömmur og afa og þann- ig mætti lengi telja. Svo lengi að ég held að það sé í raun komið inn í okkar DNA að vilja flýja – að vilja komast í burtu frá Rúmeníu. Allir vilja komast til Evrópu en þá erum við svo hrædd við þennan austur- evrópska stimpil sem við berum utan á okkur eins og brennimerki. Þannig að ef það var einhvern tíma þjóðarstolt í Rúmenum yfir menn- ingu sinni, listum og tungumáli þá er það fyrir löngu farið, því miður. Við sem þjóð þráum það eitt að lifa eins og aðrar þjóðir en það virðist aldr- ei ætla að takast vegna þess að við höldum okkur ekki við það sem við þekkjum heldur erum alltaf í leit að einhverju sem við vitum ekki hvað er. Grasið er alltaf grænna hinum megin við hæðina.“ Ástin og hjónabandið sem átti aldrei að verða Diana Cavallioti er aðalleikkona kvikmyndarinnar Ana, Mon Amour sem er ein af mörgum mjög áhuga- verðum myndum sem sýndar eru á Rúmenskum kvikmyndadögum í Bíó Paradís fram á sunnudag. Diana Cavallioti segir Ana, Mon Amour sé í senn ástarsaga en líka saga veikinda og valda í samböndum. FréttAblAðið/Eyþór Úr myndinni Ana, Mon Amour sem er sýnd á rúmönskum kvikmyndadögum. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Bækur Aftur og aftur HHHHH Halldór Armand Ásgeirsson Mál og menning Kápuhönnun: Sigurður Oddsson Prentuð í Finnlandi 309 bls. Sagan hefst 11. september 2001 þegar tveir einstaklingar upplifa atburði sem eiga eftir að breyta lífi þeirra varanlega. Unglingsdrengur- inn Arnmundur fær fyrsta símann sinn í hendur og kynnist fyrstu ástinni og Stefán, trommari í sveita- ballahljómsveit, reynir að upplifa fantasíu með þeim afleiðingum að ung stúlka lætur lífið. Í baksýn má sjá tvíburaturnana í World Trade Center falla fyrir árás flugvéla og heiminn breytast í kjölfar þess. Fimmtán árum síðar liggja leiðir þessara manna saman þar sem Arn- mundur er rótlaus og eirðarlaus menntamaður sem hefur eytt fjölda ára í símanum sínum í útlöndum, eins og hann orðar það sjálfur, hann er orðinn þræll, flýr allar til- finningar og átök inn í símann og bregður þar upp grímum þeirra sem hann heldur að hann eigi að vilja vera. Stefán er hættur að tromma, er eiturlyfjasmyglari og útrásar- víkingur sem rekur nú sprotafyrir- tæki þar sem fara fram rannsóknir sem hann er viss um að geti breytt heiminum. Einstaklingurinn er miðlægur í þessari bók, eða öllu heldur hópur- inn og sú staðreynd að með tilkomu samfélagsmiðla og alltumlykjandi alnetsins erum við smám saman að glata einstaklingseinkennum okkar og verða einn samhverfur múgur. Arnmundur er upptekinn af því að einstaklingurinn sé dauðvona á meðan Stefán rannsakar múginn sem hefur heillað hann frá því hann horfði yfir af sviðinu á sveitaböllunum. Lýsingarnar á heimi sem er stjórnað af símum og af upplifun fólks af því hvernig annað fólk virðist vera að upplifa það í gegnum samfélags- miðla, læk, deilingar og endurtíst eru oft á tíðum mjög fyndnar en líka dapurlegar. Ein- staklingurinn lifir í við- bragðsstöðu, passífur á eigin tilveru, aftengdur tilfinn- ingum sínum og þegar hann reynir að komast í tengsl við þær er eins og ný og ný vofa komi til dyra. Á baksviðinu eru síðan hrun og hryðjuverk sem verða vegna ein- staklinga og gjörða þeirra, eins og einhvers konar örvæntingarfull tilraun til að gera sig gildandi, skipta ein- hverju máli, vera til. Arnmundur rannsakar einmitt fagurfræði hryðjuverkasamtaka í meistararitgerð sinni sem vísar ekki neitt og skiptir engu máli, er til að sýnast eins og allt annað í lífi hans. Einhvers staðar innra með honum er síðan tilfinninga- vera sem reynir í örvinglan að vera til, einstaklingur sem á sér litla lífsvon í múgvæðingu eftir- turnaáranna. „Mér líður eins og ég sé að hverfa. Sem karakter, hugmynd, einstakl- ingur, eitthvað slíkt. Eins og ég sé bara að taka við einhverju, bregðast við einhverju, allan daginn, árum saman. Það er eitthvað að móta mig, breyta mér og þynna mig út, drepa mig,“ segir hann við Stefán á bls. 151. Aftur og aftur er mjög vel skrifuð og pæld bók, margt bitastætt fyrir hugann að velta fyrir sér en líka spennandi framvinda og flétta. Þó er ýmsum spurningum ósvarað og hefði til dæmis verið gaman að fá meiri tilfinningu fyrir Stefáni sem er sagt frá í þriðju persónu og er alltaf að vissu leyti umvafinn leyndar- hjúp. Þrátt fyrir áhersluna á yfir- borðsmennskuna er þetta svo líka saga um örlög eða heppni, trú, trú- leysi og mennsku. Áhugaverð sam- tímarýni sem skilur lesandann eftir með fjölbreytt veganesti og margt að pæla. brynhildur björnsdóttir NiðurstAðA: Áhugaverð og vel skrifuð samtímarýni þar sem múgurinn, einstaklingurinn og kerfið takast á um örlög, mennsku og heppni. Síðasti einstaklingurinn 1 0 . N ó v e M B e r 2 0 1 7 F Ö s t u D A G u r22 M e N N i N G ∙ F r É t t A B L A ð i ð menning 1 0 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 2 F -B C B 8 1 E 2 F -B B 7 C 1 E 2 F -B A 4 0 1 E 2 F -B 9 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 5 6 s _ 9 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.