Fréttablaðið - 10.11.2017, Page 52
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Fatamerkin Child og CCTV opna pop-up verslun nú á laugardag-inn úti á Granda þar sem bæði merkin halda úti vinnustofu. Mennirnir
bak við merkið Child eru Benedikt
Andrason, en hann heldur utan um
vörumerkið, Sigurður Ýmir er graf-
ískur hönnuður svo eru það þeir
Jóhann Kristófer og Pétur Kiernan.
CCTV eru þeir Guðmundur Magn-
ússon og Aron Freyr.
Glöggir hafa mögulega spottað
flíkur frá merkjunum á tónleikum
eða myndböndum með hinum og
þessum íslensku röppurum – en á
laugardaginn verður hægt að fjár-
festa í flík frá merkjunum. Fötin
eru bæði saumuð og hönnuð hér á
landi.
„Í rauninni fannst mér þurfa að
fylla upp í ákveðið gat á íslenskum
markaði. Það vantaði eitthvert fata-
merki sem væri að sinna ákveðnum
hópi. Markaðurinn á Íslandi hefur
í flestum tilvikum krafist þess að
hlutlaus og einföld föt ráði ferðinni
en okkur finnst það vera að breytast.
Okkur finnst vanta eitthvað agress-
ívara til að keyra þetta í gang, eitt-
hvað skemmtilegt. Það þarf að taka
áhættu og við erum tilbúnir að gera
það,“ segir Benedikt Andrason hjá
Child um hvernig þetta hafi byrjað
hjá þeim.
Benedikt segir að þeir í Child vilji
breyta því hversu örugg tískan er
hér á landi, að hans sögn.
„Persónulega höfum við svolítið
verið að taka áhættu í eigin klæða-
burði og sjá fegurðina í því ljóta.
Svolítið svona „allt er leiðinlegt“
pælingin. Vonin er að hafa áhrif og
bæta úrval óhefðbundins fatnaðar á
Íslandi. Fatnaður er afstaða og þegar
allir lúkka eins þá er það merki um
stöðnun og að það þurfi að bjóða
upp á eitthvað annað og meira en
það sem er í boði. Verslanirnar sem
bjóða upp á „streetwear“ á Íslandi
eru frekar óspennandi, þetta er allt
svo keimlíkt. Það er lítil tilfinning
og ekkert ofbeldi, ef þessar verslanir
eru ekki í stöðu til að taka áhættu þá
þurfum við bara að gera það.“
Benedikt segir að þeir hjá Child
gefi ekki út sérstakar línur fyrir
hverja árstíð eins og venjan er hjá
mörgum tískumerkjum heldur
vinni þeir frekar í sérstökum
„droppum“.
„Við erum að gefa út jafnt og
þétt færri flíkur í einu, en oftar. Við
framleiðum í minna upplagi vegna
þess að maður býr á Íslandi og það
þekkja það allir að kaupa sér eitt-
hvað og sjá svo alla í því – þannig
að minni upplög henta bæði okkur
og viðskiptavinunum. Ef þú kaupir
eitthvað þá ertu að fjárfesta í því
„lúkki“ því þú einn, eða kannski
fimm aðrir, geta bara átt nákvæm-
lega svona flík. Við erum ekki að
fjöldaframleiða eitthvað eitt en það
verða kannski nokkrar mismun-
andi útgáfur af hverju, nokkrar lita-
pallettur og þannig.“
Hver er svo langtímapælingin
ykkar?
„Því duglegra sem fólk er að versla
við okkur – því meira fjármagn fáum
við til að gera stórkostlega hluti.
Því meiri tækni getum við notað í
flíkurnar okkar, þróað snið og gert
tæknilegri föt. Það er eitthvað sem
við ætlum að gera. Við ætlum að
gera „streetwear“ þar sem sniðin og
efnið eru á við hátísku.“
Pop-up markaðurinn fer fram á
laugardaginn í stúdíói merkjanna
úti á Granda, við Eyjarslóð 9. Opn-
unin stendur frá 15-22.
stefanthor@frettabladid.is
Tilbúnir til að
taka áhættu
Fatamerkin Child og CCTV deila stúdíói þar sem sköpunargleðin
ræður ríkjum. Þeir ætla að hræra upp í streetwear-markaðnum sem
þeir segja staðnaðan. Á morgun halda þeir pop-up markað.
Sigurður Ýmir, Jóhann Kristófer, Pétur Kiernan og Benedikt Andrason eru
mennirnir á bak við fatamerkið Child. FRÉTTABLAÐIÐ/VILhELM
Verslanirnar sem
bjóða upp á
„sTreeTwear“ á Íslandi eru
frekar óspennandi, þeTTa
er allT sVo keimlÍkT. það er
lÍTil Tilfinning og ekkerT
ofbeldi, ef þessar Verslanir
eru ekki Í sTöðu Til að Taka
áhæTTu þá þurfum Við bara
að gera það.
TÓNLISTARMAÐUR
Franz Gunnarsson
PLAY FOLLOW
Föstudagsplaylista Lífsins má einnig finna
á Spotify undir notandanafninu Vísir.
Less Than Nine Inch Nails
Domesticated Animals Queens of the Stone Age
Governed by Contagions At the Drive In
The Doomed A Perfect Circle
Dreams Beck
The Man Killers
Frostbite Legend
Reflections DíSA
Emotional Haircut LCD Soundsystem
Kids Kyle Dixon & Michael Stein
LAG FLYTJANDI
föstudags-
playlisti
Lífsins
Franz Gunnarsson gaf sér tíma til að henda í föstudagslaga-
lista Lífsins en Franz er þessa stundina að vinna í hljóðveri
og að taka upp nýja músík ásamt því að undirbúa næstu tón-
leikaröð. „Hún verður mjög öflug,“ segir hann.
0 kr. fyrsti mánuðurinn!
Verið vel tengd
MAGNOLIA
OFFICINALIS
Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Heilsuver,
Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.
Hrafnhildur Ólafsdóttir starfar við
sjálboðavinnu í Rauða Kross búðinni
„Ég vil alls ekki nota lyfseðilsskyld svefnlyf og
ákvað því að prófa Magnolia. Ég tek 2 hylki
á kvöldin um klukkustund fyrir svefn og hef
ekki sofið betur í mörg ár.“
SVEFNVANDI – KVÍÐI – DEPURÐ
balsam.is
Bætt heilsa og betri líðan með
Natural Health Labs
100% náttúruleg bætiefni
Hefur verið notað við
svefnvandamálum, kvíða og
depurð í yfir 2000 ár í Asíu
1 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U r32 l í F i ð ∙ F r É T T A b l A ð i ð
1
0
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
2
F
-D
A
5
8
1
E
2
F
-D
9
1
C
1
E
2
F
-D
7
E
0
1
E
2
F
-D
6
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K