Fréttablaðið - 18.11.2017, Síða 35

Fréttablaðið - 18.11.2017, Síða 35
honum afarkosti. En það var aldrei gert. Þarna misstum við báðar von um að einhver gæti hjálpað okkur. Systir mín missti hana alveg. Ég nærri því. Það fylgdist enginn með okkur. Það fylgdist enginn með honum eftir þetta. Málinu okkar var lokað held ég. Þetta var slæmur tími. Ég átti þó góðar vinkonur og það hjálpaði mér mikið. Einhverra hluta vegna á ég auðvelt með að tengjast fólki. Ég held líka að ég hafi náð að varðveita góða eigin- leika í mér. Að einhverju leyti er það systur minni að þakka,“ segir Alena og það dimmir yfir henni. Hinir fullorðnu rétthærri „Systir mín reyndi að halda verndar hendi yfir mér. Stundum hélt hún fyrir eyrun á mér svo ég gæti sofnað þegar það var fyll- erí. Hún var líka í vondri stöðu. Mamma hafnaði henni. Mér líka. En henni meira. Hún þurfti að vera mér eins konar móðir. Á sama tíma er hún bara barn og þurfti athygli. Ég fékk stundum þessa athygli sem hún þráði, sem yngsta barnið nýtur stundum. Ég veit að það hefur verið sárt. Barnavernd Reykjavíkur greip of seint inn í. Tíminn líður óskap- lega hægt hjá barni í vondum aðstæðum,“ segir Alena sem segir að á sama tíma virðist hann renna hratt hjá í kerfinu sem tekst ekki að ráðast inn í aðstæður barna. „Það er vegna þess að þeir fullorðnu eru rétthærri. Við eigum minni rétt á góðu lífi en foreldrar okkar. Þann- ig er það bara, sama hverju aðrir reyna að halda fram.“ Varnarviðbragð Alenu var að draga sig í hlé. „Ég gat leikið mér tímunum saman einhvers staðar úti í horni. Það var mitt varnarvið- bragð. Ég geri það enn í dag og er að vinna með þetta með sálfræðingi. Ég tek mér frí frá heiminum, fjar- lægist hann, fylgist samt með. Ég sá allt. Ég heyrði allt. Ég held að vegna þessa þá hafi pabbi orðið hissa þegar ég fékk loksins nóg,“ segir Alena. Hún var orðin tólf ára þegar hún fékk nóg. Þremur árum eftir að hún flutti aftur heim frá öruggu skjóli Hildu. „Ég var komin með nóg. Ég vildi ekki lifa lífinu svona lengur. Ég var lítið heima hjá mér. Ég var hjá vinkonum mínum og á flakki. Systir mín líka en á þessum tíma var hún komin með kærasta. Ég var svolítið ein. Ég borðaði eiginlega ekkert. Var með alvarlegan næringarskort svo það sá á mér. Ég var marin um allan líkamann. Skólinn hafði miklar áhyggjur af mér. Félagsráð- gjafi reyndi ítrekað að ná til mín. En ég þagði lengi vel. Sagði ekki orð. Ég bara trúði ekki að nokkur gæti hjálpað okkur systrum. Ekkert hafði gerst. Ekkert borið árangur. En svo bara gerðist það. Ég sagði frá. Systir mín varð reið við mig. Nú myndu allir krakkar vita að við hefðum orðið fyrir ofbeldi. Ég vildi ekki bera þessa ábyrgð lengur. Hún er foreldra minna. Ég hringdi svo í Hildu og spurði hana hvort einhver hefði haft samband við hana. Hún neitaði. Ég sagði henni að ég hefði beðið um að koma til hennar. Búa hjá henni.“ Erfitt að segja satt Og það fékk hún. „Hún bjargaði lífi mínu. Ég var oft svo illa farin af hræðslu og kvíða að ég svaf upp í hjá henni. Hélt í hana og vildi ekki sleppa. Það leyfði hún mér. En systir mín vildi ekki koma. Það var of seint og hún var komin með nóg af þessu hringli í kerfinu. Hún hefur beðið um hjálp síðan hún var lítið barn. Algjörlega búin að gefast upp á kerfinu. Hún sem er svo klár. Ég er reið yfir hennar hlut- skipti en ég veit að ég er að gera rétt með því að segja frá. Segja satt þótt það sé erfitt. Það gæti fært mínum nánustu kjark.“ Alena hefur ekki verið í góðu sambandi við móður sína í nokkur ár. „Hún lokaði alveg á okkur. Við áttum gott spjall samt þegar ég var þrettán ára. Þá kom hún til Hildu og við spjölluðum. Það var gott og ég geymi það. En svo lokaði hún aftur. Ég hef núna farið tvisvar til Portúgal og er forvitin um bakgrunn minn. Ég þarf að rækta úr því sem ég get.“ Pabbi hennar er á Spáni. „Hann veit að ég steig fram. Hann spurði mig og ég sagði honum að svona væri þetta. Ég hefði ákveðið að segja frá þessu. Mér þykir vænt um hann. Það má segja að mér þyki svo vænt um hann að ég geri þetta.“ Hringið í lögregluna! Hún biðlar til fólks að hætta með- virkni og skipta sér af aðstæðum þar sem ljóst er að börn séu í hættu,. „Pabbi tók mig með á pöbbarölt. Ef fólk sér börn í slíkum aðstæðum þá verður það að hafa samband við lögreglu eða bakvakt reykjavik.is/lodir Fimmtán íbúðir í Fossvogi Skila skal skriflegu kauptilboði á tilboðsblaði í lokuðu umslagi merkt „Fossvogsvegur 8“ til Þjónustuvers Reykjavíkurborgar Borgartúni 12-14, fyrir kl. 13:00 mánudaginn 4. desember. Tilboð verða opnuð sama dag kl. 13:15 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Tilboðsblöð og nánari upplýsingar eru á vef Reykjavíkurborgar – reykjavik.is/lodir Byggingarréttur til sölu Til sölu er byggingarréttur fyrir fimmtán íbúðir á Fossvogsvegi 8. Gert er ráð fyrir að 11 íbúðir, sem mega vera allt að 144 m2 að stærð, verði á tveimur hæðum og fylgja þeim 48 m2 þaksvalir. Þá verða fjórar íbúðir á einni hæð og mega þær vera allt að 192 m2. Þrjár þeirra verða með 144 m2 þaksvölum og ein íbúð með 48 m2 þaksvölum. Nánari upplýsingar eru í úthlutunarskilmálum. Alena með eldri systur sinni. Barnaverndar. Ekki hika.“ Framtíðin þykir henni björt. Hún er nýflutt í litla leiguíbúð og vinnur á sambýli og aðstoðar Hildu við að passa börn. „Ég á móður í henni og fjölskylda hennar er fjölskylda mín. Ég er þakklát fyrir það sem ég hef fengið í minn hlut. En nú vil ég láta gott af mér leiða. Ég tek þátt í stofnun samtaka fósturbarna. Við þurfum að eiga okkur sterka rödd og vinna í því að bæta rétt okkar. Það er kominn tími til. Svo langar mig að mennta mig og taka stúd- entspróf. Halda áfram með líf mitt. Það er margt sem ég hef farið á mis við en ég er nógu sterk til að sækja það. Ég er nógu vitur til að þiggja hjálp til þess.“ En systir mín vildi Ekki koma. Það var of sEint og hún var komin mEð nóg. h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 35l A U g A R D A g U R 1 8 . n ó v e m B e R 2 0 1 7 1 8 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 7 F B 1 2 0 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 4 0 -9 4 6 4 1 E 4 0 -9 3 2 8 1 E 4 0 -9 1 E C 1 E 4 0 -9 0 B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 2 0 s _ 1 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.