Morgunblaðið - 01.02.2017, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2017
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Nokkuð er um liðið frá því aðupp úr kjaraviðræðum félaga
sjómanna og útgerðarmanna slitn-
aði vegna þess að annar aðilinn
þurfti að kæla sig niður. Síðan hef-
ur hvorki gengið
né rekið, sem er
ekki furða þar
sem deilendur
hafa ekki hist.
Og ekki er aðheyra að
tekist hafi að
kæla menn niður
því að í samtölum við forystu sjó-
manna í gær kom fram að ekkert
hefði breyst og að haldið væri fast
við kröfurnar. Svo heyrðist sú skoð-
un úr þessum herbúðum að svo rík-
ur vilji væri til að halda verkfallinu
áfram að sjómannafélög væru tilbú-
in að selja orlofsíbúðir sínar til að
styrkja verkfallssjóði.
Slík umræða bendir til að ein-hverjir séu að hella olíu á eld-
inn í stað þess að kæla.
Nú kann að vera að slíkt tal sésamningatækni en ekki að al-
vara búi að baki, en það er áhyggju-
efni ef menn sem fara fyrir hags-
munum fjölda félagsmanna reyna
að viðhalda óróa og ófriði í stað
þess að lægja öldur og leita sátta.
Í húfi eru gríðarlegir hagsmunireins og oft hefur verið bent á,
nú síðast í greiningu Sjávarklasans
á efnahagslegum áhrifum sjó-
mannaverkfalls. Þar er til dæmis
bent á það gífurlega tekjutap sem
tengdar greinar sjávarútvegsins
hafa orðið fyrir.
Staðreyndin er sú að áhrifannagætir um allt þjóðfélagið og
þess vegna er nauðsynlegt að allir
sýni ábyrgð þegar þeir setjast að
samningaborði ríkissáttasemjara á
föstudag.
Olía er ekki góð
til að kæla elda
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 31.1., kl. 18.00
Reykjavík 5 skýjað
Bolungarvík 4 rigning
Akureyri 5 skýjað
Nuuk -5 léttskýjað
Þórshöfn 8 alskýjað
Ósló -2 alskýjað
Kaupmannahöfn 2 þoka
Stokkhólmur 1 skýjað
Helsinki 0 skýjað
Lúxemborg 2 skýjað
Brussel 2 skýjað
Dublin 10 skýjað
Glasgow 8 skýjað
London 7 þoka
París 11 þoka
Amsterdam 3 alskýjað
Hamborg 1 þoka
Berlín 0 þoka
Vín -4 snjókoma
Moskva -8 snjókoma
Algarve 15 skýjað
Madríd 13 léttskýjað
Barcelona 14 skýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 12 þoka
Aþena 7 skýjað
Winnipeg -3 snjókoma
Montreal -13 léttskýjað
New York -2 snjókoma
Chicago 3 alskýjað
Orlando 14 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
1. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:07 17:16
ÍSAFJÖRÐUR 10:29 17:05
SIGLUFJÖRÐUR 10:12 16:47
DJÚPIVOGUR 9:41 16:42
Sáttafundur í
kjaradeilu sjó-
manna og út-
gerðar hefur ver-
ið boðaður hjá
ríkissáttasemjara
á föstudaginn.
Heiðrún Lind
Marteinsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Samtaka
fyrirtækja í sjáv-
arútvegi, segir fundinn boðaðan
innan þeirra tveggja vikna sem lög-
in ráðgeri en telur ekki miklar lík-
ur á því að lausn á kjaradeilunni sé
innan seilingar. „Auðvitað vonum
við það besta og að við séum ein-
hverju nær en ef ég á að vera
raunsæ þá tel ég litlar líkur á því
að við séum að þokast í átt að
samningi.“
Verkfall sjómanna hófst klukkan
átta þann 14. desember síðastliðinn
og hefur verkfallið því staðið í einn
og hálfan mánuð. Hefur það haft
áhrif bæði á útgerðir um allt land
og fyrirtæki sem þjónusta þær,
hvort sem það eru flutningsfyr-
irtæki eða heildsalar.
Litlar líkur
á sátt í sjó-
mannadeilu
Sáttafundur á
föstudaginn kemur
Heiðrún Lind
Marteinsdóttir
Hægagangur hefur verið að undan-
förnu í gangagrefti í Vaðlaheiði og
óljóst hvenær bormenn „slá í gegn“
nú þegar 93,1% hefur verið sprengt
og mokað út. Í síðustu viku komust
menn áfram 7 metra Eyjafjarðar-
megin og 6,5 metra úr Fnjóskadal.
Það er langt undir meðaltali, sem er
40 metrar á viku.
Að sögn Valgeirs Bergmann,
framkvæmdastjóra Vaðlaheiðar-
ganga hf., var í fyrrahaust miðað við
að gegnumslag yrði í febrúar. Nú er
ljóst að það verður ekki.
„Hægagangurinn að undanförnu
ræðst af því að Eyjafjarðarmegin
hefur gengið seint að komast í gegn-
um setlög og síðan þarf að fara í
bergstyrkingar með boltum, járna-
grindum, neti, bergboltum og
sprautusteypu sem er yfir 20 cm
þykk. Að austan er bergið ýmist
hart eða laust í sér þannig að illa
gengur fyrir verktakann að bora í
það til að koma fyrir bergboltum og
sprengiefni. Ef losnar um þessar
fyrirstöður ætti framvindan að
margfaldast því þegar best lætur
hafa menn hér komist um 80 metra á
viku á einum stafni,“ segir Valgeir.
Alls verða jarðgöngin 7.206
metrar. Á mánudag var búið að bora
5.043 m úr Eyjafirði en 1.664 m frá
Fnjóskadal. Þarna á milli eru 499
metrar og því mikið ógert enn, bæði
borun og frágangur allur. sbs@mbl.is
Hægagangur í Vaðlaheiðargöngum
93,1% hefur nú verið sprengt út Náðu aðeins 13,5 metrum í síðustu viku
Ljósmynd/Valgeir Bergmann
Vaðlaheiði Borað úr tveimur áttum.