Morgunblaðið - 01.02.2017, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 01.02.2017, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2017 Hindberjajógúrt Lífrænar mjólkurvörur • Engin aukaefni • Meira af Omega-3 fitusýrum • Meira er af CLA fitusýrum sem byggja upp vöðva og bein • Ekkert undanrennuduft • Án manngerðra transfitusýra www.biobu.is NÝ AFURÐ FRÁ BIOBÚ! Kæli- og frystibúnaður í allar gerðir sendi- og flutningabíla Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðu- sambands Íslands, segir það „ekkert annað en hálfkák og rosalega dap- urlegt ef Alþingi ætlar að mæta þeirri gagnrýni sem fram kom í kjöl- far úrskurðar kjararáðs, með því að taka bara á kostnaðargreiðslum þingmanna“. „Það er fagnaðarefni að alþing- ismenn séu okkur loksins sammála í því að kostnaðargreiðslur séu hluti launa og skattfrelsi þessara greiðslna sé ígildi launa,“ sagði Gylfi í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann segir það rangt hjá forsætis- nefnd Alþingis að almennt hafi verið miðað við launaþróun frá 2006. Í þeirri launastefnu sem ríki og sveit- arfélög hafi fallist á við gerð síðustu kjarasamninga, sem koma til endur- skoðunar í þessum mánuði, á gildis- tíma rammasamkomulagsins, sé við- mið launaþróunar frá nóvember 2013 til ársloka 2018. Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, lagði til á fundi forsætis- nefndar í gærmorgun, að greiðslur til þingmanna fyrir ferðakostnaði í kjördæmi og starfskostnaði væru lækkaðar um samtals 104 þúsund krónur á mánuði. Tillaga hennar var samþykkt. Unnur Brá var í gær spurð hvort hún teldi að nóg væri að gert með þessari ákvörðun: „Það verða aðrir að dæma um það. Þetta er það sem forsætisnefnd hefur tök á að gera, því forseti Alþingis og forsætisnefnd eftir atvikum ákveða þessar greiðslur. Að öðru leyti þyrftu að koma til lagabreytingar, ef ákveða ætti breytt kjör þingmanna,“ sagði Unnur Brá. Þingfararkaup endurskoðað Í fréttatilkynningu frá forseta Al- þingis segir m.a.: „Ferðakostnaður lækkar um 54 þús. kr. sem jafna má til um 100 þús. kr. í launagreiðslu, og starfskostnaður lækkar um 50 þús. kr. Samanlagt má jafna þessari lækkun við 150 þús. kr. fyrir skatt. Samkvæmt þessum breytingum eiga því greiðslur til þingmannna, þ.e. þingfararkaup og fastar mán- aðarlegar greiðslur, að vera innan þeirrar launaþróunar sem orðið hef- ur frá því að kjararáð hóf að úr- skurða um þingfararkaup árið 2006. Á fundi forsætisnefndarinnar var enn fremur samþykkt að taka núver- andi lög um þingfararkaup og þing- fararkostnað til endurskoðunar þar sem leiðarljósið verður einföldun og gagnsæi.“ Gylfi bendir á að húsnæðis- og dvalarkostnaður þeirra þingmanna sem reka tvö heimili sé skattfrjáls. Sömuleiðis fái þingmenn sem búa ut- an Reykjavíkur endurgreiddan ferðakostnað sem sé skattfrjáls, vegna aksturs á milli heimilis og Reykjavíkur, en allir aðrir launþeg- ar á landinu þurfi að greiða skatt af því ef vinnuveitandi greiðir ferða- kostnað milli heimilis og vinnu- staðar. „Nú ætlar Alþingi að lækka tvær greiðslur, fastan mánaðarlegan ferðakostnað, þar sem ekki er gerð krafa um reikninga og fastan starfs- kostnað þar sem ekki er gerð krafa um reikninga, en í báðum tilvikum verður áfram endurgreitt sam- kvæmt framlögðum reikningum,“ sagði Gylfi. Hækkunin 28-35% Gylfi segir að eftir úrskurð kjara- ráðs í haust hafi þingmenn verið að fá 340 til 500 þúsund króna hækkun, eftir því hvort um óbreytta þing- menn var að ræða, formenn, ráð- herra eða þingflokksformenn. „Nú gerir tillaga forsætisnefndar ráð fyr- ir því að hækkunin verði ekki nema 235 til 280 þúsund krónur. Launa- hækkunin verði ekki 40-45%, heldur 28-35%,“ sagði Gylfi. Hann gagn- rýnir jafnframt að einvörðungu sé tekið á kostnaðargreiðslum þing- manna, en ekki sé tekið á hinum miklu hækkunum til ráðherra, ráðu- neytisstjóra og skrifstofustjóra. „Krafan er að þingmenn og ráð- herrar njóti sambærilegrar launa- viðmiðunar og liggur í því sam- komulagi sem ríkið gerði við okkur um grundvallarlaunastefnu,“ sagði Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Ekkert annað en dapurlegt hálfkák  Lækkun kostnaðargreiðslna jafngildi 150 þúsund kr. Morgunblaðiðð/Styrmir Kári Alþingi Forseti ASÍ gefur Alþingi ekki háa einkunn vegna ákvörðunar for- sætisnefndar um lækkun kostnaðargreiðslna upp á 104 þúsund krónur. Innflutningur á alifuglakjöti og þó sérstaklega svínakjöti jókst mikið á síðasta ári, miðað við árið á undan. Aftur á móti minnkaði innflutningur á nautgripakjöti. Innflutningur á kjöti jókst í heild- ina um tæp 700 tonn á síðasta ári, að því er lesa má úr bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um innflutning til landsins. Aukningin nemur 27%. Eins og sést á meðfylgjandi töflu er mesta aukningin í innflutningi svínakjöts, sem jókst um 84%, en innflutningur á nautgripakjöti nán- ast helmingaðist. Þessar sveiflur ráðast nokkuð af innlendri fram- leiðslu. Nautakjötsframleiðslan jókst verulega en framleiðsla á svínakjöti minnkaði örlítið þannig að öll neysluaukningin var af innfluttu svínakjöti. Innflutta kjötið er mest vöðvar. Til að bera það saman við innlenda framleiðslu þarf að umreikna það í heila skrokka. Innflutningurinn er þannig reiknaður rúmlega 5 þúsund tonn, eða um 17% af heildarkjötsölu í landinu á árinu 2016. Árið áður var innflutningurinn 15% af heildarsöl- unni. helgi@mbl.is Innflutningur á svína- kjöti jókst um 84% Innflutt kjöt *Áætlað Einingar eru í tonnum Heimild: Hagstofa Íslands, bráðabirgðatölur, Matvælastofnun, Bændasamtök Íslands. 2014 2015 2016 Umreiknað í kjöt m/beini* Heildarsala 2015 Hlutfall innflutnings Alifuglakjöt 1.066 920 1.227 2.045 10.964 19% Svínakjöt 590 559 1.027 1.712 7.844 13% Nautakjöt 1.047 1.044 674 1.124 5.501 20% Aðrar kjötvörur af áðurtöldu 55 138 287 478 0 0% Kindakjöt 0 0 1 2 6.799 0% Hrossakjöt 0 0 0 0 505 0% Samtals 2.758 2.524 3.216 5.361 31.613 17%  Innflutt kjöt er 17% af heildarsölunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.