Morgunblaðið - 01.02.2017, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2017
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt landÁratuga
reynsla
Langstærstir í viðgerðum og sölu á
Alternatorum og Störturum
Einnig getum við úvegað startara og alternatora
í allskonar smávélar frá Ameríku
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vertu ekki niðurdreginn þótt ekki
gangi allir hlutir upp hjá þér. Hugsaðu um
hvað barninu er fyrir bestu. Reyndu að skipu-
leggja þig þannig að þú getir nýtt tíma þinn
sem best.
20. apríl - 20. maí
Naut Nú er komið að því að þú hljótir umbun
alls þíns erfiðis. Náin kynni við valdamikla
manneskju endurræsa vélina þína. Athugaðu
vel þinn gang.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft að koma skipulagi á hlut-
ina, bæði heima fyrir og á vinnustað. Ef þú
færð tækifæri til þess að leggja land undir fót
á næstunni er um að gera að grípa það.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Forðastu að lenda í þeirri aðstöðu að
þurfa að taka afstöðu með einum eða öðrum.
En núna finnst þér óþægilegt að láta kylfu
ráða kasti, enda nægur tími til undibúnings.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft að stinga við fótum og standa
fast á þínu máli þótt að þér sé sótt úr öllum
áttum. En gætið þess að ganga ekki of langt
því hver er sinnar gæfu smiður.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Einhver er tilbúinn til að lána þér pen-
inga eða hjálpa þér með öðrum hætti. Leyfðu
vinunum því að njóta sigurlaunanna með þér
og gerðu þeim glaðan dag.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ástin getur komið til manns á ólíkleg-
ustu stöðum – í kjörbúðinni eða bankanum.
Aðrir laðast jafnframt að þér. Heildarmyndin
blessast síðan af sjálfu sér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert þekktur fyrir líflegt
ímyndunarafl sem þú notar bæði til að leysa
og skapa vandamál. Breytingarnar bíða
handan hornsins og það skiptir öllu máli að
standa sig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þig grunar að þú sért að verða
eftir á á einhvern hátt. Kannaðu fjárhaginn
því ekkert liggur á og það eru margir fiskar í
sjónum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Einhver gæti gefið þér eða lánað
þér eitthvað sem verður þér heilsubætandi.
Leitaðu þér aðstoðar og komdu lagi á tilfinn-
ingalíf þitt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er mikið um að vera í stjörnu-
merkinu þínu þessa dagana og því tekur fólk
vel eftir þér. Mundu að það er ekkert óeðlilegt
við það að standa með sjálfum sér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú verður að freista þess að ná stjórn
á hlutunum og til þess verður þú að leggja
þig fram og eyða miklum tíma.
ÍVísnahorni í gær sagði ég frá þvíað reistur hefði verið minnisvarði
um Látra-Björgu á Stærri-Árskógi.
Hún átti til góðra að telja, – „Ætt-
stór kona velur sér vergang“ er heiti
örlagaþáttar Tómasar Guðmunds-
sonar um hana.
Fárra ára fór Björg að Látrum
með föður sínum, en varð eftir þegar
faðir hennar flutti þaðan. Á Látrum
tók Björg skjótum þroska andlegum
og líkamlegum, segir Tómas. „Þótti
hún sýna mikla víkingslund í sæferð-
um, og eins var hún lítt komin af
barnsaldri, er orð lék á, að hin unga
mær vissi jafnlangt nefi sínu. Hafði
hún strax í þessum efnum stærra
svipmót en flestar kynsystur henn-
ar, og vísur þær ýmsar, sem hún
kastaði fram, eru magnaðar forn-
eskjulegri dul og sverja sig í ætt við
brimgný Látrastrandar. Sem hún
hefur lýst á þessa leið:
Grundir, elfur, salt og sandur
sjós með dunum,
undir skelfur allt af fjandans
ólátunum.“
Eitt sinn kom Björg á flakki sínu í
hríðarbyl að glugga í Kaupangi og
kvað vísu:
Æðir fjúk á Ýmis búk,
ekki er sjúkra veður.
Klæðir hnjúka hríð ómjúk
hvítum dúki meður.
Nágrannakona Bjargar átti óspak-
ar ær í kvíum og fékk eigi hamið þær.
Bað hún Björgu að spekja þær. Björg
kom á stöðul og kvað:
Vísnahorn
Enn af Látra-Björgu
Krefst ég allra krafta lið
kvæðið sé eflandi,
að aldrei, fálur fjalla, þið
farið úr heimalandi.
Og nú brá svo við, að ærnar komu
heim í hvert mál á haust fram, en
þetta gerðist litlu eftir fráfærur.
Þessi staka er skemmtileg:
Getið er ég sé grýlan barna,
af guði sköpt í mannsins líki,
á mig starir unginn þarna
eins og tröll á himnaríki.
Sjórinn var Látra-Björgu kært
yrkisefni:
Orgar brim á björgum,
bresta öldu hestar,
stapar standa tæpir,
steinar margir veina.
Þoka úr þessu rýkur,
þjóð ei spáir góðu.
Halda sumir höldar
hríð á eftir ríði.
Bið ég höddur blóðugar,
þó bregði upp faldi sínum,
Ránardætur reisugar,
rassi að vægja mínum.
Andófs þéttan eigum sprett,
það eykur setta pínu.
Við höfum rétt á Riflaklett
rakið slétta línu.
Grenjar hvala grundin blá
geðs af kala stórum.
Berg við gala og brotna þá
bylgjur Vala-kletti á.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar ástin
blossar upp á ólíkleg-
ustu stöðum.
ÉG GERI STUNDUM
MISTÖK
OJ! ÞETTA ER VERSTI
KVÖLDMATUR VIKUNNAR!
ÞETTA VAR VERSTA MARTRÖÐ
HVERS FORELDRIS – ÞEGAR BARNIÐ
FLYTUR AFTUR HEIM.
„OKKUR VANTAR DISKA!“
FYRIRGEFÐU!
ÞÚ HEFUR RÉTT
FYRIR ÞÉR…
VIKAN ER EKKI BÚIN!
ÞÚ GETUR EKKI
SAGT ÞETTA!
EINS OG AÐ
VERA MEÐ JÓNI! VERTU ÚTI!
SONUR SÆLL?! M Ö T U N E Y T I
Hollenski leikstjórinn Paul Ver-hoeven vakti athygli Víkverja
fyrst um miðjan níunda áratuginn
þegar hann sá myndina Fjórði mað-
urinn, þar sem drykkfelldur rithöf-
undur lendir í klækjavef konu sem
þegar hefur „misst“ þrjá eiginmenn
og leitar nú að þeim fjórða. Verhoe-
ven virðist líta svo á að mörk séu til
lítils annars gagnleg en að fara yfir
þau.
x x x
Myndir Verhoevens vöktu víða at-hygli og opnuðu dyrnar að
Hollywood. Fyrsta myndin sem hann
gerði í Bandaríkjunum var frumsýnd
1987 og sló í gegn. Robocop var vís-
indaskáldskapur, hasarmynd og
ádeila. Hermt er að Verhoeven hafi
ekki litist á blikuna en kona hans hafi
talið hann á að gera myndina. Robo-
cop malaði gull og það gerðu næstu
tvær myndir einnig. Í Total Recall
var hann aftur kominn í vísindaskáld-
skapinn, þar sem hann leikstýrði
Arnold Schwarzenegger. Svo kom
Ógnareðli (Basic Instinct) með Shar-
on Stone og Michael Douglas,
spennutryllir sem átti margt skylt
með Fjórða manninum og olli mikilli
hneykslan og írafári. Einhvers staðar
sá Víkverji hana kallaða umdeildustu
mynd tíunda áratugarins. Verhoeven
hélt áfram að leikstýra í Hollywood
þótt næstu myndir gengju ekki jafn
vel. Showgirls var rökkuð niður og
Starship Troopers fékk litla aðsókn,
þótt nú hafi hún öðlast hylli jað-
armyndadýrkenda.
x x x
Ástæðan fyrir því að Víkverji fór aðrifja upp feril Verhoevens er að
nýjasta mynd hans var sýnd við opn-
un Frönsku kvikmyndahátíðarinnar.
Leikstjórinn er nú snúinn aftur til
Evrópu og í myndinni Hún (Elle),
sem fékk fimm stjörnur í Morgun-
blaðinu í gær, sýnir hann að honum
er enn ekkert heilagt, þótt kominn sé
á níræðisaldur. Þar sýnir Isabelle
Huppert slíkan stórleik að vekur ugg
og unun og var Víkverji ekki hissa á
því að hún skyldi fá tilnefningu til
Óskarsverðlauna. Myndin er óhugn-
anleg og ófyrirleitin og fær mann til
að hlæja þegar síst skyldi. Víkverji
veit ekki hvort myndin er góð, en
mælir óhikað með henni.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er nálægur þeim sem hafa
sundurmarið hjarta, hann hjálpar
þeim sem hafa sundurkraminn anda.
(Sálm 34:19)