Morgunblaðið - 18.02.2017, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.02.2017, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2017 Balaton&Búdapest sp ör eh f. Sumar 6 Balaton vatn í Ungverjalandi er margrómað fyrir fallegar strendur, líflega bæi og ólýsanlega fegurð og ekki að undra að vatnið og umhverfi þess sé einn vinsælasti ferðamannastaður landsins. Góður tími gefst til að slaka á og eiga notalegar stundir á þessum fagra stað, kynnast menningu og mannlífi Ungverja ásamt því að taka þátt í ungversku sveitabrúðkaupi. 15. - 25. júní Fararstjóri: Pavel Manásek Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Verð: 214.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Raforkuverð hækkaði um 12,6- 22,63%, mismunandi mikið eftir hin- um ýmsu seljendum raforku, frá því í janúar 2013 til janúar 2017. Þetta er samkvæmt upplýsingum sem stjórn Samtaka sveitarfélaga á köld- um svæðum (SSKS) fékk frá Orku- setrinu. Stjórn SSKS lýsti yfir miklum vonbrigðum með hækkanirnar og sendi atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytinu erindi vegna þeirra. Þar var bent á að þessi hækkun raforku væri langt umfram hækkun á neysluverðsvísitölu sem hækkaði um 8,85% á sama tímabili. „Svo virðist sem sölufyrirtækin hafi nýtt sér þá staðreynd að hækk- un hefur orðið á niðurgreiðslum til íbúa á köldum svæðum og hækkað gjaldskrár sínar óhóflega sem kem- ur harkalega niður á íbúum sem búa á þeim svæðum,“ segir m.a. í bréfi stjórnar SSKS til ráðuneytisins. Stjórn SSKS segir að svo miklar hækkanir á raforkuverði hafi veru- leg áhrif á byggðaþróun á köldum svæðum. Einnig vinni þessar hækk- anir gegn því markmiði SSKS að jafna húshitunarkostnað á landinu. Stjórn SSKS hefur farið þess á leit við stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga að hún beiti sér í mál- inu. Hún var minnt á þá stefnu sam- bandsins að það „skuli beita sér fyrir því að jafna raforkukostnað bæði hjá fyrirtækjum og íbúum, m.a. með jöfnun flutningskostnaðar á raforku og hærri greiðslum til jöfnunar á húshitunarkostnaði.“ Málið var tekið fyrir á stjórnar- fundi sambandsins 27. janúar. Af- greiðslu var frestað til næsta fundar og var framkvæmdastjóra falið að taka saman minnisblað um málið. Þróun verðs í samkeppni „Hér er um að ræða verðþróun á samkeppnismarkaði sem endur- speglast af verðmæti rafmagnsins á hverjum tíma m.a. út frá framboði og eftirspurn,“ sagði Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku, sam- taka orku- og veitufyrirtækja á Ís- landi. „Svör vegna verðþróunar á því tímabili sem hér um ræðir er best að fá beint frá hverju fyrirtæki fyrir sig, enda starfa þau á samkeppnis- markaði. Samorka harmar hinsvegar þær aðdróttanir sem fram koma í bókun stjórnar SSKS um hvort sölufyrir- tækin hafi nýtt sér hækkun sem orð- ið hefur á niðurgreiðslu til íbúa á köldum svæðum til að hækka gjald- skrár sínar. Þannig vinna þessi ábyrgu sölufyrirtæki ekki. Rétt er að benda á að aðeins um 10% heimila í landinu nota raforku til húshitunar og því ólíklegt að þau séu á einhvern hátt ráðandi þáttur í verðlagningu raforku á markaði.“ Vonbrigði með hækkun  Raforka hefur hækkað langt um- fram vísitölu Hækkun raforkuverðs frá janúar 2013 til janúar 2017 Heimild: SSKS Breytilegt gjald Jan. 2013 Jan. 2017 Hækkun HS Orka 5,08 5,72 12,6% Orkubú Vestfjarða 4,70 5,70 21,3% OR/Veitur/Orka náttúrunnar 4,97 6,09 22,5% Rafveita Reyðarfjarðar 4,74 5,78 21,9% Fallorka 4,86 5,67 16,7% Orkusalan 4,86 5,96 22,6% Vísitala neysluverðs 403,30 439 8,9% Það er ekki á hverjum degi sem ljósmyndarar komast í tæri við jafn gæfan dílaskarf og í stór- grýtinu við Langeyrarveginn í Siglufirði í gær. Auðvitað var þá hið kærkomna tækifæri notað hjá fréttaritara Morgunblaðsins. Um var að ræða ungan fugl. Íslenski dílaskarfurinn lifir mest á botnfiski, eins og t.d. marhnút, og á það til að sækja hann á mikið dýpi, en tekur líka aðra fiska, s.s. urriða. Hann er djúpsyndur og getur verið allt að mínútu í kafi í einu. Myndatökunni tók fyrirsætan með stóískri ró, horfandi dreymn- um augum yfir spegilsléttan hafflötinn. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Dílaskarfur horfði dreyminn út á hafflötinn Starfsmenn Vegagerðarinnar unnu í gær og fyrradag við að laga vegstik- ur á Suðurlandsvegi um Hellisheiði og Svínahraun. Eins og oft áður skemma plógar snjóruðningstækja vegstikurnar og þær lágu á köflum eins og hráviði utan vegar. Svanur G. Bjarnason, svæðisstjóri Vegagerðarinnar, segir algengt að vegstikur brotni þegar vegurinn er hreinsaður að vetrinum. Þótt vetur- inn hafi verið snjóléttur hafi stund- um myndast krapi og hálka og því hafi þurft að hreinsa veginn. Stikurnar eru öryggismál Aðstæður til aksturs eru stundum slæmar á Hellisheiði og í Svína- hrauni, þoka, snjókoma, skafrenn- ingur og dimmviðri, og þurfa öku- menn þá að reiða sig á ljósendurvarp stikanna. Þær eru því öryggismál. Þess vegna var ráðist í að koma þeim í samt lag. Vegagerðarmaður sem vann við verkið kvartaði undan því hvað öku- menn væru tillitslausir. Ekki væri slegið af hraðanum þegar ekið væri framhjá. Það skapaði stórhættu. helgi@mbl.is Vegstikur endurreistar  Stikur á Hellisheiði hafa legið eins og hráviði utan vegar  Ruðningstækin skemma  Vegagerðin fór í lagfæringar Morgunblaðið/Ómar Hellisheiði Vegstikur eru mikilvægt öryggistæki á þjóðvegunum. Aðalmeðferð í skotárásarmálinu í Fellahverfi lauk í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Í málinu er tekist á um atburði sem áttu sér stað fyrir utan Leifasjoppu í Breiðholti kvöldið 5. ágúst á síðasta ári. Tveir eru ákærðir í málinu, bræð- urnir Rafal og Marcin Nabakowski, en báðir hafa þeir játað að hafa hleypt skoti af afsagaðri haglabyssu fyrir utan söluturninn. Sögðu ákærðu fyrir dómi að þeim hefðu borist hótanir með SMS-skilaboðum úr óþekktu númeri en seinna sama dag hefði komið til átaka fyrir utan söluturninn. Hvorugur bræðranna segist þó hafa komið með byssuna á staðinn og segjast þeir ekki hafa vilj- að vinna nokkrum mein, ætlunin hafi aðeins verið að hræða fólk úr hinum hópnum. Saksóknari fer fram á 5-6 ára fangelsi yfir Marcin, sem skaut úr byssunni svo höglin hæfðu bifreið sem í voru kona og maður. Í ákæru málsins er hann sagður með þessu hafa stefnt lífi og heilsu fólksins í bif- reiðinni í „stórfelldan háska á ófyrir- leitinn hátt“. Þá er farið fram á 3-4 ára fangelsi yfir Rafal, sem skaut úr byssunni upp í loftið. Segist dómari gera ráð fyrir dómi í málinu fljótlega. Farið fram á 3-6 ára fangelsi  Dæmt fljótlega í máli byssubræðra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.