Morgunblaðið - 18.02.2017, Qupperneq 27
FRÉTTIR 27Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2017
Framkvæmdastjóri fastaskrifstofu
Norðurskautsráðsins
Norðurskautsráðið leitar að umsækjanda í stöðu framkvæmdastjóra
fastaskrifstofu Norðurskautsráðsins. Fastaskrifstofan er staðsett í
Tromsø, Noregi.
Norðurskautsráðið er fjölþjóðlegur samstarfsvettvangur ríkja til að efla
samvinnu, samhæfingu og samskipti norðurskautsríkja með þátttöku
frumbyggjasamtaka á norðurslóðum og annarra íbúa þar.
Framkvæmdastjóri fastaskrifstofunnar
Undir stjórn formanns embættisnefndar Norðurskautsráðsins sam-
ræmir framkvæmdastjóri vinnu fastaskrifstofunnar. Framkvæmdastjóri
heyrir undir embættisnefndina og ber ábyrgð á heildar stjórn og rekstri
starfsemi Norðurskautsráðsins, þ.m.t. fjármálum, stjórnun og sam-
skiptum. Framkvæmdastjóri mun þurfa að ferðast reglulega.
Kröfur um menntun, hæfi og lykil starfsreynslu
Umsækjandi um þessa stöðu verður að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
• Vera ríkisborgari norðurskautsríkis.
• Hafa lokið framhaldsmenntun á háskólastigi eða hafa yfir að ráða
bæði færni, sem sýnt hefur verið fram á, og reynslu, sem við-
kemur starfi fastaskrifstofu Norðurskautsráðsins.
• Hafa yfir að ráða verulegri sannreyndri starfsreynslu á sviði
mannauðsstjórnar sem nýtast myndi í stöðu framkvæmdastjóra
fastaskrifstofu Norðurskautsráðsins.
• Reynslu af fjármálastjórn og fjárhagsáætlanagerð, þ.m.t. undir-
búningur fjárhagsáætlanagerðar og stjórnun útgjalda.
• Geta ferðast og hafa gilt vegabréf sem gildir út ráðningartímabilið.
Starfskjör
Samkeppnishæf laun og aukagreiðslur eru í boði sem ráðast af
starfsreynslu, menntun og hæfi umsækjandans.
Lengd ráðningar
Um er að ræða tímabundna ráðningu til fjögurra ára. Embættisnefndin
getur framlengt ráðninguna um eitt fjögurra ára tímabil til viðbótar.
Umsóknarferli
Umsóknir þurfa að berast fyrir 31. mars 2017. Ef þú telur að þú hafir
viðeigandi bakgrunn, vinsamlegast sendið ferilskrá ásamt umsóknar-
bréfi þar sem fjallað er um hvernig þú uppfyllir þær hæfniskröfur sem
koma fram í þessari auglýsingu, til bandarísku formennsku Norður-
skautsráðsins (ac_chair@arctic-council.org). Magnús Jóhannesson,
núverandi framkvæmdastjóri fastaskrifstofu Norðurskautsráðsins, er
tengiliður vegna umsóknarinnar. Farið verður með allar veittar upplýs-
ingar sem trúnaðarmál. Völdum umsækjendum verður boðið til viðtals
í Helsinki, Finnlandi, í júní 2017. Reiknað er með að Norðurskautsráðið
velji endanlega umsækjanda í júní 2017.
Áætlað er að nýr framkvæmdastjóri hefji störf 1. október 2017. Æski-
legt er að sá umsækjandi sem ráðinn verður geti varið 1-2 vikum með
núverandi framkvæmdastjóra áður en hann hefur störf.
Allar frekari upplýsingar um starfið má nálgast á heimasíðu Norður-
skautsráðsins http://arctic-council.org/images/available_positions/
EDOCS-3981-v2-Job-posting-director-2017.pdf
og á heimasíðu utanríkisráðuneytisins https://www.utanrikisradu-
neyti.is/upplysingar/laus-storf/althjodastofnanir/
Ath. að ef ósamræmi er milli enska frumtextans og íslensku
þýðingarinnar þá gildir enski textinn.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Tony Blair, fyrrverandi forsætisráð-
herra Bretlands, hvatti þá Breta sem
styðja veru landsins innan Evrópu-
sambandsins til þess að „rísa upp“ og
reyna að fá stuðningsmenn útgöng-
unnar til að skipta um skoðun.
„Nú er ekki stundin til að hörfa,
standa á sama eða örvænta, heldur til
að rísa upp og verja það sem við trúum
á,“ sagði Blair í ræðu sem hann flutti
fyrir Open Britain, samtök sem vilja
viðhalda nánum tengslum við Evrópu-
sambandið.
Sagði Blair að kynslóðir
framtíðarinnar myndu dæma evrópu-
sinnaða Breta samtímans hart ef þeir
reyndu að minnsta kosti ekki að standa
fyrir máli sínu. Blair nýtti tækifærið og
kynnti að hann myndi setja á fót stofn-
un sem myndi reyna að greiða fyrir
auknum samskiptum Breta við Evr-
ópusambandið.
Frumvarp ríkisstjórnar Theresu
May um að virkja 50. grein Lissabon-
sáttmálans verður rædd í lávarðadeild
breska þingsins á mánudaginn. May
hefur lýst því yfir að hún vilji virkja
greinina fyrir lok marsmánaðar næst-
komandi, en þá hefst tveggja ára við-
ræðuferli milli Breta og Evrópusam-
bandsins. Lögspekinga í Bretlandi
greinir á um það hvort ríkisstjórnin
hafi heimild til þess að skipta um skoð-
un varðandi útgöngu úr sambandinu
eftir að greinin hefur verið virkjuð.
„Maður gærdagsins“
Ræðu Blairs var ekki vel tekið, og
má segja að ráðist hafi verið á efni
hennar frá bæði hægri og vinstri.
Þannig sagði Nigel Farage, fyrrver-
andi formaður breska sjálfstæðis-
flokksins UKIP, á Twitter að Blair
væri „maður gærdagsins“. Boris John-
son, utanríkisráðherra Breta, sem
barðist fyrir útgöngunni, sagði ræðu
Blairs sýna breskum kjósendum lítils-
virðingu, þar sem meirihlutavilji þeirra
hefði komið skýrt fram í atkvæða-
greiðslunni í júní í fyrra. „Ég skora á
fólk að slökkva á sjónvarpinu næst
þegar Blair vill ræða við það á þennan
niðurlægjandi hátt,“ sagði Johnson við
Sky News.
Blair gagnrýndi einnig í ræðu
sinni Jeremy Corbyn, formann Verka-
mannaflokksins, og varaði við því að
Skotar hefðu nú fengið ærna ástæðu til
þess að yfirgefa sambandið við Eng-
land.
AFP
Brexit Tony Blair vill koma í veg
fyrir útgöngu Breta úr ESB.
Sótt að Tony Blair
úr báðum áttum
Vill að stuðningsmenn ESB berjist gegn Brexit
Minnihlutastjórnin á Írlandi stóð af
sér vantrauststillögu, sem borin var
fram á miðvikudaginn, vegna
hneykslismáls sem snertir írsku lög-
regluna og það hvernig ríkisstjórnin
hefur tekið á því. 57 þingmenn á
írska þinginu greiddu atkvæði á
móti vantrausti en 52 með. 44 þing-
menn sátu hins vegar hjá.
Hneykslið á rætur að rekja allt til
ársins 2006 þegar lögregluþjónninn
Maurice McCabe kvartaði undan því
að félagi sinn hjá lögreglunni hefði
verið að möndla með refsipunkta
vegna umferðarlagabrota. Sá svar-
aði með því að saka McCabe um að
hafa brotið kynferðislega á sex ára
gamalli dóttur sinni. Við rannsókn
málsins var McCabe hreinsaður af
öllum grun.
Það voru þó ekki endalok málsins,
því að barnaverndaryfirvöld á Ír-
landi hófu aftur rannsókn sína á
McCabe árið 2013, en viðurkenndu
ári síðar að það hefði verið mistök.
McCabe var hins vegar ekki greint
frá rannsókninni fyrr en árið 2015.
Þar sem McCabe var þekktur fyr-
ir að hafa bent á spillingu innan lög-
reglunnar hefur sá grunur komið
upp að ásakanirnar um barnaníð
hafi verið samsæri háttsettra yfir-
manna í lögreglunni til þess að
þagga niður í honum eða draga úr
trúverðugleika hans. Hefur verið
sett á fót sérstök rannsóknarnefnd
til þess að kanna hver tildrög máls-
ins voru.
Í síðustu viku hófu írskir fjöl-
miðlar að fjalla um málið, og kom þá
í ljós að ráðherrar í ríkisstjórninni
höfðu gefið misvísandi upplýsingar
um það hvað þeir vissu og hvenær.
Enda Kenny forsætisráðherra
neyddist síðan til þess að viðurkenna
á þriðjudaginn að hann hefði gefið
„rangar upplýsingar“ um fund sinn
með einum ráðherra sínum þar sem
mál McCabes var rætt. Mun sam-
starfsflokkur Kennys hafa krafist
sjálfstæðrar rannsóknar á lögregl-
unni vegna málsins í skiptum fyrir
að verja stjórnina áfram falli.
Hékk á bláþræði
Hneykslismál skekur minnihlutastjórnina á Írlandi
Lögreglan bendluð við spillingu Vantrauststillaga felld
AFP
Í vanda Enda Kenny forsætisráð-
herra Írlands stóðst vantraust.
Mikið var um dýrðir í höfuðborginni Pristina þegar
þess var minnst í gær að níu ár voru liðin frá því að Kó-
sóvó varð að sjálfstæðu ríki. Kósóvó-búar eru að
meginstofni til albanskir að uppruna, en héraðið hefur
mikil og söguleg tengsl við Serbíu, sem neitar enn að
viðurkenna fullveldi Kósóvó-ríkis. Síðar í mánuðinum
verða nítján ár liðin frá upphafi Kósóvó-stríðsins, þar
sem um 13.500 manns féllu.
AFP
Níu ár frá stofnun Kósóvó-ríkis
Samkvæmt heimildum lögregl-
unnar í Malasíu virðist sem konan
frá Indónesíu, sem nú er í gæslu-
varðhaldi, hafi verið göbbuð til þess
að taka þátt í morðtilræðinu við
Kim Jong-Nam, hálfbróður Kim
Jong-Il.
Siti Aishah er ein af þremur
manneskjum sem lögreglan hefur í
haldi vegna málsins, en henni mun
hafa verið sagt að hún væri að taka
þátt í „falinni myndavél“ þegar hún
sat fyrir Kim.
Að sögn lögreglunnar í Indónesíu
mun Aishah áður hafa tekið þátt í
svipuðum „hrekkjum“ fyrir sjón-
varpsþætti þar sem læðst er upp að
fólki og einhverju úðað framan í
það.
Aishah er nú í
haldi ásamt kær-
asta sínum, 26
ára gömlum
karlmanni frá
Malasíu, og 28
ára gamalli
konu, sem bar á
sér víetnamskt
vegabréf. Fjöl-
skylda og vinir
Aishah hafa stigið fram í fjöl-
miðlum og sagt að þeir trúi því ekki
að hún hefði viljandi tekið þátt í
ódæði á borð við morðið á Kim
Jong-Nam. Enn er á huldu hver
dánarorsök hans var, önnur en að
eiturefni var úðað í andlit hans á al-
þjóðaflugvellinum í Kúala Lúmpúr.
Konan göbbuð til að taka þátt í tilræðinu
Kim Jong-Nam