Morgunblaðið - 18.02.2017, Side 41
MINNINGAR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2017
✝ Sigurpáll Ósk-arsson frá
Klömbur, Aðaldal,
S-Þingeyjarsýslu
fæddist 19. febrúar
1931. Hann lést að
Árskógum 6 í
Reykjavík 9. febr-
úar 2017.
Foreldrar Sigur-
páls voru Óskar
Jónsson bóndi,
Klömbur, f. 21.11.
1883, og Hildur Baldvinsdóttir
húsfreyja, f. 21.6. 1892.
Systkini Sigurpáls voru
Hulda, f. 1915, Dagur, f. 1917,
Dagbjört, f. 1919, Baldvin, f.
1921, Málfríður, f. 1923, Jón, f.
1924, Hreinn, f. 1927, Haukur,
f. 1928. Öll eru þau látin.
Sigurpáll kvæntist 31.10.
1959 Guðrúnu Vilhjálmsdóttur
húsmóður, f. 5.3. 1932, d. 9.2.
1981. Foreldrar hennar voru
Vilhjálmur Hjartarson, f. 17.10.
1900, d. 20.11. 1982, og Auður
Sigurgeirsdóttir, f. 22.3. 1900,
d. 13.3. 1994.
Synir Sigurpáls og Guðrúnar
eru: 1) Vilhjálmur Jón, f. 14.6.
1960, maki Guðrún Sigríður
börn: a) Vilhjálmur Símon, f.
1986. Hans barn Hafsteinn Lilj-
ar, f. 2012. b) Guðmundur Al-
freð, f. 1990, maki Rannveig
Smáradóttir, f. 1992. Núverandi
maki Sólveig Sigurgeirsdóttir,
f. 8.3. 1975. Þeirra börn: Hjör-
dís Margrét, f. 1998. Kristján
Dagur, f. 2001 og Stefán Máni,
f. 2005.
Sigurpáll lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum á Akur-
eyri 1955 og guðfræðiprófi frá
Háskóla Íslands 1961. Vígðist
til Bíldudalsprestakalls 1961 og
var prestur þar til 1966. Þá
fluttist hann ásamt fjölskyldu
til Hofsóss í Skagafirði og var
þar sóknarprestur þar til hann
lét af störfum sem prestur árið
1998 og fluttist til Reykjavíkur
þar sem hann bjó til dauðadags.
Sigurpáll þjónaði á tímabili
fjórum sóknum auk Hofsóss,
gegndi trúnaðarstörfum innan
kirkjunnar, kenndi við grunn-
skólann, var á tímabili formað-
ur og virkur félagi í Lionsfélag-
inu á staðnum, stundaði brids-
spilamennsku, var formaður
barnaverndarnefndar Hofsóss
og átti mikinn þátt í endurreisn
leikfélagsins á staðnum.
Minningarathöfn um Sigur-
pál fór fram frá Fossvogskirkju
í gær, 17. febrúar 2017. Útförin
verður gerð frá Hofsóskirkju í
dag, 18. febrúar 2017, klukkan
14.
Þorsteinsdóttir, f.
25.5. 1962. Þeirra
börn: a) Þorsteinn
Páll, f. 1980, maki
Ramona M. Lind-
ros, f. 1981. Þeirra
börn: Embla Sa-
hara, f. 2013, og
Eldey Saga, f.
2015. b) Sigurpáll
Óskar, f. 1984,
maki Helga A. Ein-
arsdóttir, f. 1993.
Hans barn: Aníta Rós, f. 2006,
og þeirra barn Vilhjálmur Jón,
f. 2016. c) Einar Trausti, f.
1990, maki Laufey Steinsdóttir,
f. 1992. 2) Baldvin, f. 23.9. 1963,
fyrrverandi maki Ásdís
Lúðvíksdóttir, f. 29.11. 1963.
Þeirra börn: a) Guðrún Greta,
f. 1986, maki Óskar Bjarnason,
f. 1985. Þeirra börn: Emilía Ír-
is, f. 2006 og Sara Sóldís, f.
2016. b) Helgi Fannar, f. 1991.
c) Lena Rós, f. 1993, maki Atli
M. Arnarson, f. 1993. Núver-
andi maki Guðbjörg Rósa
Ragnarsdóttir, f. 7.4. 1966. 3)
Hjörtur, f. 20.10. 1966, fyrrver-
andi maki Friðfinna Lilja Sím-
onardóttir, f. 27.3 1967. Þeirra
Elsku pabbi, þá ertu búinn að
fá hvíldina sem þú varst farinn
að þrá svo mikið þar sem líkami
þinn var að verða óstarfhæfur.
Nú ert þú kominn á mikið betri
stað hjá skapara þínum og vini,
sjálfu almættinu. Ekki á ég von
á öðru en vel fari á með ykkur.
Þarna er líka mamma og það
held ég að það hafi verið fagn-
aðarfundir eftir 36 ára aðskilnað
upp á dag þegar hún kom og
sótti þig. Það eru ansi margar
minningar sem leita á mann á
þessum tímamótum.
Það voru forréttindi að fá að
alast upp á svo góðu heimili eins
og hjá ykkur mömmu og á stað
eins og Hofsósi. Það hefur nú
tekið á að vera með þrjá ærsla-
fulla drengi. Ekki vorum við
neinir englar nema síður væri.
Uppátækjasamir vorum við með
endemum, en þegar farið var
yfir strikið vorum við flengdir
með styrkri hendi svo við gerð-
um ekki sömu vitleysuna aftur.
Ekki veit ég til þess að okkur
hafi orðið meint af slíkri ráð-
vendni á nokkurn hátt. Heim-
sóknir með þér í Klömbur,
Aðaldal, æskuheimili þitt, eru
ljóslifandi.
Mikið ósköp þótti þér vænt
um þennan stað enda Þingey-
ingur í húð og hár. Þau voru ófá
skiptin sem þú sast yfir manni
og hjálpaðir yfir erfiðustu skafl-
ana í lærdómnum, enda kunnir
þú þetta allt. Ekki var nú mikið
mál að fá þig til að skutla mér
upp á Krók til að læra á bíl og
taka bílpróf. Þú æfðir mig með
því að láta mig keyra þessa
rúmu 70 km fram og til baka í
hvert skipti enda þurfti ég ekki
marga ökutíma. Það er allt í
lagi að segja frá þessu núna. Ég
held að lögreglan fari ekki að
sekta þig úr þessu.
Alltaf var jafn notalegt að
koma til þín um jólin. Jólatréð,
sem varla stóð út úr hnefa, á
sínum stað. Jólamessan og
kjúklingarnir tveir á jólaborð-
inu, það var ekkert verið að
flækja hlutina enda annatími
hjá þér. Það var mjög sérstakt
að sækja þig norður í septem-
ber 1998 og flytja þig með
innbúi og öllu tilheyrandi suður
á mölina. Kominn suður, hættur
prestskap og sestur í helgan
stein, sóttir þú messur af mikl-
um krafti. Aldrei fór ég með þér
á skauta hérna fyrir sunnan
eins og fyrir norðan þar sem þú
sveifst um svellið en barnabörn-
in sögðu að þú hefðir verið ansi
flinkur á þeim þegar þú tókst
þau með þér á skautasvellið í
Egilshöll.
Þú áttir heil 15 góð ár hérna
fyrir sunnan með okkur og er-
um við afar þakklát fyrir þau.
Margar gæðastundir áttum við
saman í sumarbústaðnum okkar
í Reykholtsdal.
Þú að rækta kartöflur og að
binda upp tré á lóðinni en þegar
hríslurnar urðu að trjám fannst
mér þú fullöflugur stundum á
söginni. Þú fluttir úr Starenginu
í Árskógana fyrir um einu og
hálfu ári þegar þú máttir ekki
keyra lengur.
Þaðan gastu gengið yfir í
Breiðholtskirkju og fengið þinn
vikulega fund með almættinu.
En þetta ár var ansi bratt niður
á við þegar líkaminn fór að gefa
sig.
Elsku pabbi minn, takk fyrir
allt, alla liðveisluna í gegnum
árin og alla hjálpina, þín verður
sárt saknað en þín fallega minn-
ing mun lifa með okkur, takk
takk þinn sonur,
Baldvin.
Mig langar að minnast Sig-
urpáls mágs míns og vinar nú
þegar leiðir skilja eftir 60 ára
vináttu. Hann lést 9. febrúar,
sama dag og eiginkona hans 36
árum áður.
Sigurpáll hafði alla tíð miklar
taugar til bernskuslóðanna og
hvergi fannst honum fegurra og
lét það óspart í ljós bæði í gríni
og alvöru, sérstaklega þegar ég
var að dásama Siglufjörð. Palli
var kvæntur systur minni, Guð-
rúnu, sem lést langt um aldur
fram.
Þau eignuðust þrjá hrausta
og dugmikla drengi, Vilhjálm
Jón, Baldvin og Hjört. Palli
þjónaði á Bíldudal og Hofsósi.
Þegar hann hætti prestskap
flutti hann til Reykjavíkur til að
vera nálægt fjölskyldu sinni.
Ég man að foreldrar mínir
voru mjög ánægð að fá Rúnu,
Palla og syni í nágrennið, en við
hinar þrjár systurnar bjuggum
allar í útlöndum á þessum tíma.
Þegar ég og maðurinn minn
fluttum heim var mikill sam-
gangur á milli okkar fjölskyldn-
anna, einkum á sumrin. Við
eyddum flestum sumrum á
Siglufirði hjá foreldrum mínum
og alltaf var gist hjá Rúnu og
Palla.
Palli hafði mjög gaman af að
ferðast og fórum við saman í
fjölmargar ferðir og útilegur.
Þegar við hjónaleysin komum til
Íslands var presturinn fenginn
til að fara með okkur í ferð í
Þingeyjarsýslu, þar sem við
gistum í tjaldi á bökkum Laxár
og presturinn svaf á milli okkar
skötuhjúanna. Við gerðum oft
grín að því að aðalhlutverk hans
hefði verið siðgæðisvarsla.
Þær voru ófáar ferðirnar sem
Palli bauð okkur á Klömbur í
veiði. Mér er í fersku minni úti-
lega á bökkum Laxár í túni
Klömbur. Þessi tiltekna ferð var
í byrjun ágúst. Við fjölskyldurn-
ar tjölduðum niðri við ána. Í
heila viku vorum við í Majorka-
veðri, mestan tímann í sundföt-
um. Við veiddum silung á dag-
inn, grilluðum hann á kvöldin og
fórum upp í hlíðarnar til að
sækja eftirréttinn, sem var
ósvikin Aðaldalsbláber. Þetta
var dýrlegur og ógleymanlegur
tími. Síðasta ferð okkar saman
var á Þingvelli í haust sem leið
til að sjá haustlitina
Veikindi og andlát Rúnu tóku
mikið á Palla og synina þrjá,
svo og á alla fjölskylduna. En
Palli ól upp sína drengi og fórst
vel úr hendi, sem sjá má á
þeirri umhyggju sem þeir báru
fyrir honum þegar á reyndi.
Palli gat verið mjög skemmti-
legur og fróður um marga hluti
og grunnt var á stríðnispúkan-
um. Hann hafði óskaplega gam-
an af að stríða mér og ég gerði
mitt besta til að veita honum þá
ánægju enda hafði ég lúmskt
gaman af. Okkur skorti aldrei
umræðuefni og höfðum gaman
af að takast á um allt milli him-
ins og jarðar, en allt í góðu.
Hann gifti okkur hjónakorn-
in, skírði drengina okkar og
barnabörn. Synir Palla og mak-
ar þeirra sýndu honum einstaka
umhyggju síðustu árin þegar
hann þurfi á þeim að halda. Til
marks um tillitsemi þeirra
færðu þau honum heita máltíð
daglega svo mánuðum skipti og
skiptust á um að sinna honum
allan sólarhringinn þar til yfir
lauk.
Við munum sakna grallarans
Palla en vitum að hann var
tilbúinn að fara á vit feðra
sinna. Far þú í friði, vinur.
Elsku Villi, Baldvin, Hjörtur
og fjölskyldur, við Tony, strák-
arnir og fjölskyldur þeirra
sendum ykkur innilegar sam-
úðarkveðjur.
Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir.
Sigurpáll
Óskarsson
✝ Guðfinna AnnaSigurbjörns-
dóttir fæddist á
Kleifunum í Ólafs-
firði, 22. sept-
ember 1933. Hún
lést á Akureyri 22.
janúar 2017.
Foreldrar henn-
ar voru Jónína
Ragnhildur Davíðs-
dóttir fædd í
Bandagerði, Gler-
árþorpi, 16. október 1900, d.
25. október 1984, og Sigurbjörn
Jónsson, fæddur í Nýjabæ í
Ólafsfirði 27. maí 1911, d. 16.
september 1936. Þann 30. des-
ember 1954 kvæntist Guðfinna,
Arngrími Friðrik Kristjánssyni,
f. 14. nóvember 1930, d. 15. júlí
2016. Foreldrar hans voru
Anna Pétursdóttir, f. 23. júlí
1894, d. 14. desember 1954, og
Kristján Hallfreður Sigur-
jónsson, f. 24. júlí 1895, d. 17.
júlí 1981 Börn Guðfinnu og
Arngríms eru: 1) Sigurbjörn, f.
6. apríl 1956, 2) Bryndís, f. 2.
júlí 1958, 3) Kristján Guð-
mundur, f. 24. mars 1964, og 4)
Arngrímur, f. 21. júlí 1971.
Barnabörn Guðfinnu og Arn-
barnaskólann og fór að honum
loknum í Gagnfræðaskóla Ak-
ureyrar og lauk gagnfræða-
prófi vorið 1951. Guðfinna spil-
aði á gítar og söng mikið með
vinkonum á Gagnfræða-
skólaárunum. Sumarið 1951
byrjar hún að vinna í súkku-
laðiverksmiðjunni Lindu á Ak-
ureyri. Hún kynnist Arngrími
eiginmanni sínum 1954, þau
trúlofa sig 8.maí það ár og
gifta sig 30. desember. Þau
hefja búskap í Brekkugötu 13 á
Akureyri og flytja svo í
Brekkugötu 39 árið 1956. Þá
eru þau byrjuð að byggja húsið
sitt að Stórholti 2, og flytja
þangað í júlí 1960. Ragnhildur,
móðir Guðfinnu, býr með þeim
á þessum stöðum. Guðfinna
hættir störfum í Lindu um það
leyti sem Arngrímur og hún
kynnast og sinnir eftir það hús-
móðurstörfum og barnauppeldi.
Hún vann við framreiðslustörf í
Félagsheimili Kópavogs á sjö-
unda áratugnum, þegar fjöl-
skyldan flutti í eitt ár í Neðstu-
tröð 8 í Kópavogi. Síðar meir
fer Guðfinna að vinna á Sjúkra-
húsinu á Akureyri sem ganga-
stúlka, þar vann hún á hand-
læknisdeildinni í kring um
1978. Guðfinna var síðast í
vinnu við þrif í Verkmennta-
skólanum á Akureyri.
Útför Guðfinnu fór fram 3.
febrúar 2017, í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
gríms eru sjö og
barnabarnabarn
eitt. Guðfinna ólst
upp í Ólafsfirði
fyrstu þrjú æviárin
með foreldrum sín-
um og föðurfjöl-
skyldu. Hún átti
eldri systur sem
lést í fæðingu og
fékk Guðfinna því
aldrei að kynnast
henni. Guðfinna
átti ekki fleiri systkini. Við frá-
fall föður Guðfinnu litlu fluttu
mæðgurnar til Akureyrar þar
sem móðurfjölskyldan bjó. Ólst
Guðfinna upp á Akureyri frá
þriggja ára aldri við ástríki
fjölskyldunnar allrar, ömmu og
afa, móðursystra og móður-
bróður. Þær mæðgur bjuggu
samt alltaf útaf fyrir sig og
fyrstu árin á Akureyri tók
Ragnhildur að sér ýmis kaupa-
konustörf í Eyjafirði og hafði
þá Guðfinnu með sér. Hluta
barnaskólaára Guðfinnu bjuggu
þær í Barnaskóla Akureyrar
þar sem Ragnhildur vann við
þrif ofl. Á unglingsárum Guð-
finnu bjuggu þær í risíbúð við
Krabbastíg. Guðfinna kláraði
Elsku mamma mín, við
kveðjum þig í dag, það hefur
verið erfitt fyrir þig að lifa án
pabba og nú í janúar þegar
flensan helltist yfir þig þá var
mátturinn ekki mikill til að
berjast.
Undanfarna daga hef ég
ásamt bræðrum mínum verið að
taka saman minningar liðinna
ára og margt komið fram sem
maður hugsaði ekki svo mikið
um á meðan á því stóð, sem
minnir mann á að lifa í núinu og
vera vakandi fyrir hverju dýr-
mæti.
Það sem kemur upp í hugann
þegar ég hugsa til þín er
nægjusemi, man að þú sagðir
mér frá því einu sinni að þú
hefðir verið hvað stoltust og
ánægðust þegar þú gast fundið
ódýra búta af efni og saumað úr
því flotta kjóla eða hvað eina
sem þig vantaði, t.d. náttfötin á
elsta bróður minn þegar hann
var lítill.
Þegar ég og eldri bróðir
minn vorum lítil nutum við þess
að hafa ömmu búandi hjá okkur
og passaði hún okkur af og til
þegar þið pabbi fóruð út að
dansa, man eftir flottu kjólun-
um þínum sem þú oftast saum-
aðir sjálf. Við vorum heppin að
þú valdir að vera heima og nut-
um þess að hafa mömmu alltaf
innan seilingar, matar- og kaffi-
tímar alltaf á réttum tíma og
svo var lesið í Andrés og fleiri
góðum bókmenntum á kvöldin
og alltaf beðnar bænir fyrir
svefninn. Svo tókstu líka alveg
helling af myndum af okkur og
umhverfinu þannig að minning-
arnar eru ljóslifandi þegar öll-
um albúmunum er flett
Alltaf þótti mér gaman þegar
saumaklúbbskonurnar komu til
þín, þá földum við okkur stund-
um og njósnuðum þangað til
upp komst, pabbi átti nefnilega
að svæfa okkur en var alltaf
sofnaður sjálfur nánast strax.
Yngsti bróðir minn talar um
að þú og ég höfum alltaf verið
að sauma eitthvað og man eftir
sniðum og efni dreifðu um
stofugólfið.
Þú studdir okkur í hverju því
eina sem við tókum okkur fyrir
hendur og gleymi ég aldrei þeg-
ar þú spurðir mig 15 ára hvort
ég mundi ekki vilja fara til
Englands að læra ensku um
sumarið, ég þáði það og bý
ennþá að því og mun alltaf gera,
einnig studdir þú mig þegar ég
fór í Sjúkraliðanámið og pass-
aðir barnið mitt á meðan.
Það háði þér mikið fæðinga-
gallinn í mjöðmunum þínum og
þú gast ekki hreyft þig eins
mikið og þú hefðir viljað, en þú
aðlagaðir þig og fórst svo í
mjaðmaskipti og gast haldið
áfram að nota fótleggina
Það var gott að koma til ykk-
ar pabba í heimsókn eftir að ég
flutti suður, það var svo gaman
og gott að sjá hvað þið voruð
alltaf samstiga í öllu sem þið
gerðuð, þið voruð heppin að
hafa hvort annað svona lengi og
geta verið í húsinu ykkar allan
þennan tíma
Ég sakna þín, elsku mamma.
Þín,
Bryndís.
Guðfinna Anna
Sigurbjörnsdóttir
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Okkar ástkæra
ASTA MARIE FAABERG,
Kaplaskjólsvegi 52,
Reykjavík,
lést 7. febrúar á heimili sínu.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Hjartanlegar þakkir fyrir samhygð og hlýjar kveðjur.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki heimahlynningar
krabbameinsdeildar Landspítalans fyrir frábæra alúð og
umhyggju.
Árni Kristinsson
Gísli Þór Jónsson Ingela Bjurenborg
Andór og Freyja
Gunnar J. Árnason Soffía Karlsdóttir
Árni Freyr, Nína Hjördís, Sunnefa og Júlía
Kristinn H. Árnason og Árni Dagur
Snorri Örn Árnason og Ármann Örn
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar systur minnar og frænku okkar,
GUÐRÚNAR TRYGGVADÓTTUR
tannlæknis.
Sérstakar þakkir til starfsfólks K1 á
Landakoti.
Sigrún Kristín Tryggvadóttir
Tryggvi Hafstein Auður Bjarnadóttir
Kristín Ásta Hafstein Ingólfur T. Jörgensson