Morgunblaðið - 18.02.2017, Qupperneq 49
DÆGRADVÖL 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2017
svalandi ísar í
einum kassa
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér veitist erfitt að sinna starfi þínu
af kostgæfni. Forðastu að taka mikilvægar
ákvarðanir sem snerta fjölskylduna.
20. apríl - 20. maí
Naut Stundum þegar þú talar sleppur orkan
út um munninn á þér. Ekki gleyma að setja
þitt eigið nafn á lista yfir þá sem þú vilt veita
aðstoð.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Farðu yfir birgðastöðuna og fjar-
lægðu kóngulóarvefina úr kollinum – líka úr
skúmaskotum heimilisins. Lífið, líkt og djass-
inn, verður til í bilinu á milli nótna.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hafðu augun hjá þér og gríptu tæki-
færið þegar það gefst. Taktu þér tak. Gefðu
þér tíma til þess að heyra músíkina í nið um-
ferðarinnar, regndropum sem falla á rúðu
eða suði tölvunnar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú færð hugsanlega óvænta gjöf í dag,
eða týnir einhverju þér að óvörum. Haltu
ótrauð/ur þínu striki en láttu ekki velgengn-
ina stíga þér til höfuðs.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er fyrir öllu að vera sjálfum sér
samkvæmur. En hvað ef aðrir fyllast ekki
áhuga gagnvart hugmyndum þínum? Skiptir
engu, þú hefur auga fyrir því einstaka.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú verður ekki lengur undan því vikist
að sinna því fólki sem þú hefur vanrækt að
undanförnu. Taktu nýju fólki með opnum
huga, maður veit aldrei hvaðan gott kemur
næst.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ætlast til að þú sért alveg
brilljant og þar af leiðandi gera aðrir það líka.
Hjálp skilar sér væntanlega aftur þegar þú
þarft sjálf/ur á því að halda því þú átt stóra
inneign í karma-bankanum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Meira rugl og bull verður á vegi
þínum en vanalega. En fyrst verður þú að
gera þér grein fyrir við hverja er að fást, ann-
ars næst ekki árangur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert enn á báðum áttum meðan
vinnufélagar þínir eru búnir að taka afstöðu
og pressa þig stíft. Láttu einskis ófreistað og
ef þú leitar svars munt þú finna það.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að vinna í því að ná tök-
um á tilfinningum þínum. Til allrar hamingju
er hluttekning einn af kostum þínum líka.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vinnusemi er dyggð, en of mikið má
af öllu gera. En þú vilt líka örvunina af því að
læra eitthvað nýtt.
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Trygg og húsbóndaholl er sú.
Á hjólum léleg græja.
Fús til ásta, en engum trú.
Oft er hún send milli bæja.
Harpa á Hjarðarfelli svarar:
Hundtíkin er trygg og trú.
Tík á hjólum léleg græja.
Mannleg tík oft sögð er sú.
Senditík fór milli bæja.
Sigrún Erla Hákonardóttir svarar
Hugaríþrótt iðkum við á Ísalandi.
Forðum því að gleymska grandi.
Í góðri vísu er helgur andi.
Og leysir gátuna:
Tíkin er húsbóndaholl.
Hjólatík léleg græja.
Kventíkin sótti í soll.
Senditík fer milli bæja.
Hjá Helga R. Einarssyni varð
lausnin til í flugvélinni á leið til
Tenerife.
Þótt hrörlegt sé mitt heilabú
og hugsunin mig svíkur,
um ferskeytluna flækjast nú
fjórar, held ég, tíkur.
Árni Blöndal svarar:
Hunds er tíkin holl og góð
hún á hjólum, léleg slík
tík er kona í karla óð
kemur í hlaðið senditík.
Þannig skýrir Guðmundur gát-
una:
Herra sínum tík er trú.
Tík er léleg hjóla græja.
Til í „geim“ er tíkin sú.
Tík er send á milli bæja.
Og bætir við limru:
Aleinn sat Ingimundur
eftir, þegar ’ans hundur
fékk veður af tík
í Trékyllisvík,
og með þeim varð fagnaðar fundur.
Síðan kemur ný gáta:
Svaf ég lengi sætt og rótt,
senn er mál að rísa,
löngum hef ég hyskinn þótt,
en hér er gátuvísa:
Kallaði forðum á faðirinn.
Fer að rétta úr drengsnáðinn.
Kunn er flík úr kindar ull.
Kallast blaðra af lofti full.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Margur teygir annan
á tíkarroðinu
Í klípu
„ÉG VIL AÐ ÞÚ BÆTIR SAMSKIPTI ÞÍN
VIÐ ANNAÐ FÓLK. SENDU MÉR SMS EF
ÞÉR ER EKKI ALVEG SLÉTT SAMA.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVERSU LENGI ERTU BÚINN
AÐ VERA Á KVÖLDVAKT?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þetta leynda í
uppskriftinni.
EINN DAGINN VERÐUR ÞÉR
SKIPT ÚT FYRIR VÉLMENNI
SEM STEIKIR KLEINUHRINGI
HVAÐ ERTU AÐ
TALA UM?
FRAMFARIR,
ELSKAN
PABBI, RÍKASTI PRINSINN
Í HEIMINUM VAR AÐ BIÐJA
MÍN… EN ÉG MUN BARA GIFTA
MIG AF ÁST!
EF ÞÚ ELSKAR MIG MUNTU
GIFTAST HONUM!
GOTT
HJÁ
ÞÉR!
Íslendingar eru alltaf að slá met mið-að við höfðatölu og nú hefur enn
eitt metið bæst við; við erum sú þjóð
sem er fjölmennasti meðlimahópur
íbúðaskiptasíðunnar Home-
Exchange.com. Það dugar þó ekki til
og stóð síðan fyrir fundi í Salnum í
Kópavogi um síðustu helgi í þeim til-
gangi að fjölga íslenskum eignum.
Þangað mætti stofnandi Home-
Exchange, Ed Kushins, sem sýnir að
síðunni er alvara í því að fjölga áskrif-
endum á Íslandi.
x x x
Þetta er væntanlega gert til þess aðgeta mætt óskum viðskiptavin-
anna, en Ísland er í hópi fimmtán
eftirsóttustu viðkomustaða þeirra
sem skráðir eru á síðunni, sagði for-
stjóri fyrirtækisins, Jim Pickell, í
samtali við Markaðinn. Þar segir
einnig að alls séu um 66 þúsund eign-
ir skráðar á heimsvísu. Innan við þús-
und þessara eigna eru á Íslandi.
x x x
HomeExchange.com er stærstihúsaskiptavefurinn og hefur
Víkverji einu sinni skipst á húsnæði
með hjálp síðunnar við franska fjöl-
skyldu. Einnig var skipst á bílum og
gekk allt mjög vel. Kostirnir eru
margir; hvað barnafjölskyldur varðar
er heppilegt að hafa dót og leikjatölv-
ur á staðnum. Svo er líka miklu
huggulegra fyrir foreldrana að geta
setið í stofunni eða úti á verönd á
meðan börnin sofa á kvöldin heldur
en að kúldrast inni á hótelherbergi.
x x x
Þetta er líka mjög hagkvæmt.Ársáskrift að HomeExchange
kostar um 20.000 kr. en í staðinn er
hægt að hafa samskipti við fólk um
allan heim. Þessi peningur dygði ekki
einu sinni fyrir einni nótt á hótelher-
bergi fyrir fjölskylduna. Svo er líka
mikill sparnaður í því að geta eldað
heima í stað þess að fara út að borða.
x x x
Vefurinn er mjög þægilegur í notk-un og það er gaman að skoða
hvernig fólk býr á öðrum stöðum í
heiminum. Svona skipti snúast líka
um traust og því er mikilvægt að eiga
í góðum samskiptum við þá sem eru á
leið hingað til lands. vikverji@mbl.is
Víkverji
Jesús segir við hann: „Ég er vegurinn,
sannleikurinn og lífið. Enginn kemur
til föðurins nema fyrir mig.
(Jóh. 14:6)